ég reyndi að recovera þessa fæla en það gekk ekkert.
setti bara upp windows inná annan disk og ætlaði að að skoða RAID'ið mitt frá því windows.
eftir að inní nýtt windows var komið tók ég eftir því að allt stuffið sem var inná þessum 2x120gb diskum í RAID 0 var corrupted og gat ekki opnað neitt af því.
þá byrjuðu áhygjurnar að byrja. mér er nokk sama um alllar bíómyndirnar og þættina og það allt alltaf hægt að ná í það aftur en verst með skólann og svona dót sem ég hef verið að geyma í fleiri ár.
ég reyndi að nota forritið GetDataBack For NTFS jújú með því gat ég acsesað allt dótið sem ég var með á diskunum en það var að mestu corrupted. gat bjargað einhverju skóladóti með því en allar myndir sem ég hafði tekið í gegnum lífstíðina voru ónýtar komu annað hvort hálfar eða bara í rugli.
versta við þetta allt saman að núna fimmtudaginn næstkomandi ætlaði ég að hætta með þessa RAID vitleysu og splitta diskunum í 2 sjálfstæða.
er búinn að ergja mig mikið af þessu.
hafið þið einhver ráð varðandi einhver forrit sem gætu púslað draslinu saman aftur. diskarnir virðast virka báðir og tölvan er alveg í fínasta lagið virðist eins hún hafi fengið eitthvað hjartaáfall eða eitthvað

ekki bara þá þá labbaði annar svartur köttur í veg fyrir bílinn minn núna áðan!! þannig ég er að búast við öllu versta í kvöld.

ef þið hafið einhverja galdra lausn fyrir mig þá koma með hana sem fyrst áður en ég splitta diskunum og eyði öllum gögnunum af þeim. ef gögn eiga að heita.