Quad 6600+P35?


Höfundur
littel-jake
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Lau 18. Ágú 2007 20:04
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Quad 6600+P35?

Pósturaf littel-jake » Fim 01. Nóv 2007 16:16

Er að spá hvaða P35 ég ætti að fá mér móti Q6600. Er búinn að rekast á nokkrar típur. Þarf samt ekki að vera P35 ef menn vita um eitthvað betra/heppilegra.

Síðan var ég að pæla hvaða skjákort ég ætti að fá mér með þessu. Líst ekert á að halda gamla Radion 1600

Er ekki að hugsa um owerclock


Ps. Nægir 400W aflgjafi til að keira þetta?



Skjámynd

stjanij
Tölvutryllir
Póstar: 609
Skráði sig: Þri 31. Ágú 2004 20:49
Reputation: 0
Staðsetning: Rvk
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf stjanij » Fös 02. Nóv 2007 00:05

ertu að fara nota þetta í leiki líka?




Höfundur
littel-jake
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Lau 18. Ágú 2007 20:04
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf littel-jake » Fös 02. Nóv 2007 19:44

Jamm. talsvert. Ætla til dæmis að spila Fallout3, sama hvernig hann kemur út. Hann á eftir að þurfa eitthavað öflugra en það sem ég er með núna. þótt að það sé "bara" vélin úr oblivion



Skjámynd

ManiO
Besserwisser
Póstar: 3963
Skráði sig: Fim 08. Jún 2006 18:40
Reputation: 0
Staðsetning: Seltjarnarnes
Staða: Ótengdur

Pósturaf ManiO » Fös 02. Nóv 2007 20:54

Fílaðiru Fallout 1 og 2? Ef þú ert að vonast eftir svipuðum leik þá getur þú sleppt því.


"Knowledge is knowing that a tomato is a fruit,
wisdom is knowing not to put one in a fruit salad."


Yank
</Snillingur>
Póstar: 1058
Skráði sig: Mið 29. Des 2004 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: www.tech.is
Staða: Ótengdur

Pósturaf Yank » Fös 02. Nóv 2007 23:20

Fer eftir því hvað þú ætlar að eyða miklum pening og hverjar þarfir þínar eru. En svo ég vitni nú í sjálfan mig :roll: .

"Þegar settur er saman innkaupalisti fyrir nýjan vélbúnað, er rétt að gefa sér góðan tíma. Mikilvægt er að allir hlutir passi vel saman. Það kemur nefnilega fyrir að vélbúnaður hreinlega virkar ekki í ákveðnum samsetningum. Þetta er sem betur fer sjaldgæft, en ráðlagt er að kynna sér vel lista yfir þann vélbúnað sem prufaður hefur verið með ákveðnum móðurborðum. Slíkan lista er að finna á flestum heimasíðum framleiðenda.

Þegar kemur að vali á móðurborði vandast oft valið. Móðurborðið er nefnilega einn mikilvægasti hluturinn á innkaupalistanum, enda er það móðurborðið sem tengir saman og “talar við” alla aðra hluti tölvunar. Gott er að byrja á því að gera sér grein fyrir hverjar þarfirnar eru. Þarfir eins og hversu marga harðdiska þarf að nota?, eða er möguleiki að notaðir verði í framtíðinni, hversu mörg USB tæki á að nota?, er þörf fyrir eSATA eða firewire? hvað á að nota margar PCI, PCI Express x16 eða PCI Express x1 raufar. Á að nota eitt skjákort eða tvö?, eða á bara að halda möguleikanum opnum þannig hægt sé að uppfæra í framtíðinni í tví-skjákortalausn með því að kaupa annað eins skjákort síðar? Á þá að nota tvö kort frá Nvidia í SLI eða tvö skjákort frá AMD/ATI í crossfire?. Og síðast en ekki síst á að yfirklukka?"

Úrvalið af móðurborðum er mjög fjölbreytilegt og þau koma í öllum mögulegum og ómögulegum útfærslum, verðlag er oftast í samræmi við búnað. Þegar þarfirnar sem taldir eru upp hér að ofan liggja fyrir er hægt að fara að þrengja niður hópinn og velja endanlega hvernig móðurborð á að fá sér" http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=15813

Foxconn borðið kom mjög vel út í prófunum í samanburði við borð sem kostaði tæplega helmingi meira.

http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=view&f ... _FC_P-35_S

En ef þú vilta það besta sem ég hef séð hingað til þá er það Gigabyte X38-DQ6 í augnablikinu.




Höfundur
littel-jake
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Lau 18. Ágú 2007 20:04
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf littel-jake » Lau 03. Nóv 2007 01:41

Var að skoða þetta Fox-borð og er að spá hvort að það stiðji nokkuð bara ATI kort því eins og stendur þarna einhverstaðar"two ATI graphics cards" en hvergi minst á Nvidia GeForce. Reyndar heur ATI kortið mitt reynst ágætilega en mig langar eginlega að skifta aftur í GeForce. Var með FX550 á sínum tíma og það mökkvirkaði




Selurinn
Kerfisstjóri
Póstar: 1230
Skráði sig: Fös 24. Feb 2006 15:51
Reputation: 2
Staðsetning: Mhz
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Selurinn » Lau 03. Nóv 2007 02:18

littel-jake skrifaði:Var að skoða þetta Fox-borð og er að spá hvort að það stiðji nokkuð bara ATI kort því eins og stendur þarna einhverstaðar"two ATI graphics cards" en hvergi minst á Nvidia GeForce. Reyndar heur ATI kortið mitt reynst ágætilega en mig langar eginlega að skifta aftur í GeForce. Var með FX550 á sínum tíma og það mökkvirkaði


Jú, Crossfire borð en getur notað Geforce.

Bara uppá það að nota tvö ATI kort




Höfundur
littel-jake
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Lau 18. Ágú 2007 20:04
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf littel-jake » Mán 05. Nóv 2007 17:02

og hvað ætti það að geta tekið við góðu korti. 8600?




Yank
</Snillingur>
Póstar: 1058
Skráði sig: Mið 29. Des 2004 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: www.tech.is
Staða: Ótengdur

Pósturaf Yank » Mán 05. Nóv 2007 19:32

littel-jake skrifaði:og hvað ætti það að geta tekið við góðu korti. 8600?


Hvaða PCI Express korti sem er...
Þ.m.t. 8600




Höfundur
littel-jake
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Lau 18. Ágú 2007 20:04
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf littel-jake » Mán 05. Nóv 2007 20:12

Flott Flott en það hefur engin þená sagt mér neitt um það hvort að aflgjafinn minn ráði við þetta.

400W í P35 móðurborð, Quad örgjörva , sirka 8600geforce skjákort og 2-3 harða diska




Yank
</Snillingur>
Póstar: 1058
Skráði sig: Mið 29. Des 2004 17:01
Reputation: 0
Staðsetning: www.tech.is
Staða: Ótengdur

Pósturaf Yank » Mán 05. Nóv 2007 21:19

Þessi vélbúnaður í prófi hjá mér tók í heldina 252 wött við max álag.

Q6600
Foxconn P35 móðurborð
MSI 7950GT skjákort
2x1GB OCZ DDR2 800MHz
WD Raptor 36GB

Þannig já 400w ættu að duga svo lengi sem hann þarf ekki að keyra mikið meira. Ég myndi þó mæla með að þú uppfærðir afgjafa einnig. Ef hann er gamal þá er hann líklega ekki af réttum ATX staðli fyrir þetta setup. Líklega einungis 20 pinna tengi og ekki 2x cpu tengi.




Höfundur
littel-jake
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Lau 18. Ágú 2007 20:04
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Pósturaf littel-jake » Þri 06. Nóv 2007 12:50

Er ekki eitthvað forrit eins og Pc wizard sem getur sagt mér hvernig aflgjafa ég er með....held allavega að PC wizard sýni það ekki, er ekki að finna það




corflame
Tölvutryllir
Póstar: 678
Skráði sig: Fim 15. Apr 2004 20:05
Reputation: 0
Staðsetning: Keyboard central
Staða: Ótengdur

Pósturaf corflame » Þri 06. Nóv 2007 15:42

Ekkert forrit getur sagt þér hvaða aflgjafa þú ert með í vélinni þinni.

Verður að opna kassann og lesa það sem stendur á aflgjafanum.




Selurinn
Kerfisstjóri
Póstar: 1230
Skráði sig: Fös 24. Feb 2006 15:51
Reputation: 2
Staðsetning: Mhz
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Selurinn » Fim 15. Nóv 2007 14:09

Yank skrifaði:Þessi vélbúnaður í prófi hjá mér tók í heldina 252 wött við max álag.

Q6600
Foxconn P35 móðurborð
MSI 7950GT skjákort
2x1GB OCZ DDR2 800MHz
WD Raptor 36GB

Þannig já 400w ættu að duga svo lengi sem hann þarf ekki að keyra mikið meira. Ég myndi þó mæla með að þú uppfærðir afgjafa einnig. Ef hann er gamal þá er hann líklega ekki af réttum ATX staðli fyrir þetta setup. Líklega einungis 20 pinna tengi og ekki 2x cpu tengi.


Fræddu mig meira :)

Er það þessi auka fjögur tengi sem koma frá powerið sem fer á móðurborðið?