Hvernig heimabíó eru þið með ?
Er að spá að fá mér heimabíó en finnst það allt drulludýrt og svo á ég góðann sony dvd spilara og alltaf reyna að þvinga á manni dvd spilara, Hvað mæliði með að maður gera? Get ég ekki bara keypt magnara/bassabox og hátalara og tengja þá við dvd-ið og tv-ið eða ?
Er þetta nokkuð flókið ? nokkrar rca snúrur og svoleiðis right ?
Hvar er best að kaupa og hvar er ódýrast ?
Heimabíó - Ykkar skoðanir
-
Meso
- Ofur-Nörd
- Póstar: 203
- Skráði sig: Fös 10. Des 2004 23:50
- Reputation: 3
- Staðsetning: Ak City
- Staða: Ótengdur
Sjálfur er ég með algera fóbíu gagnvart svona "all-in-one" pökkum, þ.e.a.s. dvd spilari með innbyggðum magnara og svoleiðis,
er sjálfur með Nakamichi magnara sem keyrir Bose 2.1 hátalarasett.
Ef ég væri að kaupa mér heimabíó kerfi núna myndi ég reyna finna góðan magnara og hátalara í sitthvoru lagi, alltaf gott að lesa reveiws á netinu einnig.

Frikkasoft
- Nörd
- Póstar: 119
- Skráði sig: Fim 03. Feb 2005 14:14
- Reputation: 6
- Staðsetning: Ísland
- Staða: Ótengdur
Ég fjárfesti í heimabíói tæpu hálfu ári síðan, og eftir mikla vangaveltur og eftir að hafa fengið bæði denon og pioneer magnara lánaða heim, þá endaði ég á að kaupa Denon 2807 HDMI (2+1 hdmi) magnara.
Svo fór ég útum allt að finna gott hátalarasett við þennan magnara. En eftir að hafa heyrt í Jamo settinu í Ormsson þá kom ekkert annað til greina en Jamo (amk m.v. budget-inn sem ég var með)
Mæli með þessu setupi, kostar ~230.000 samtals

i7-13700K | 64GB RAM | Asus ROG STRIX GeForce RTX 4090 OC | 2TB Firecuda | LINUX FOREVER
Hljóðkerfi
Þetta er þvílíkur frumskógur af græjum og dóti sem hægt er að kaupa af svona búnaði að best er að ákveða fyrst hve miklum peningum maður er tilbúin að eyða í svona pakka.
Ég er búinn að eiga nokkur öflug hljómtæki í gegn um tíðina “er 39 ára” en fékk mér mitt fyrsta heimabíókerfi fyrir ári síðan.
Í fyrsta skipti ákvað ég að halda að mér höndunum og kaupa kerfi í ódýrari kantinum, ég fór að skoða og hlusta, hlustaði á alveg fullt af kerfum.
Að endingu varð fyrir valinu 50.000 kr Thomson kerfi sem flestir hér myndu eflaust bara hlæja að.
Magnarin er í heildina 450W og er þetta sambyggt “magnari/dvd spilari”.
Ég passaði mig bara á að magnarinn væri tengjanlegur “rca” við önnur tæki.
Mörg af þessum ódýru kerfum eru ekki með neinum auka rca tengjum.
Kunningi minn á 200.000 kr kerfi og það kerfi er hreinlega OSOM en hann er líka með stofu sem að ber kerfið, ég er með mjög litla stofu og mitt litla kerfi kemur bara ótrúlega vel út við þessar aðstæður.
Svo er annar kunningi minn sem á kerfi upp á aðra milljón og eru hátalararnir handsmíðaðir á Ítalíu sérvalin viður í boxunum og leðurklætt að hluta til, bara hátalararnir kostuðu litlar 700.000 kr og maður verður hreinlega agndofa
bara við að sjá þá og þá á maður eftir að hlusta á gripina.