Vantar nýja Vista fartölvu


Höfundur
kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Vantar nýja Vista fartölvu

Pósturaf kristjanm » Fös 06. Apr 2007 22:40

Ég er að spá í að kaupa mér nýja fartölvu með Windows Vista í næstu viku.

Ég er að leita að svona mid-range vél með 15.4" skjá sem á að ráða vel við alla almenna vinnslu og leiki að einhverju leyti.

Ég er búinn að finna tvær vélar og væri til í að fá skoðanir um hvora þeirra ég ætti að velja, nema að þið vitið um einhverja sambærilega vél sem er betri kostur.

Acer Aspire 5684WLMIB http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2610
Toshiba Satellite A100-608 http://www.elko.is/item.php?idcat=25&id ... dItem=6454

Hefur einhver reynslu af þessum vélum eða Acer og Toshiba fartölvum yfirleitt?



Skjámynd

Fumbler
spjallið.is
Póstar: 493
Skráði sig: Mið 23. Apr 2003 17:15
Reputation: 25
Staðsetning: Vestfirðir
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Fumbler » Lau 07. Apr 2007 00:42

Ég er búinn að eiga svona Acer 5684 tölvu núna í nokkra mánuði og líkar bara mjög vel við, sérstaklega eftir að ég sótti nýju driverina sem acer gaf út í mars fyrir vista, þá virkar t.d webcamið betur. En ég hef ekki lent í neinum vandræðum. Svo er þetta CrystalBrite á skjánum frá acer algjör snild, skýr og góð mydn.



Skjámynd

urban
Stjórnandi
Póstar: 3750
Skráði sig: Mán 06. Des 2004 01:26
Reputation: 474
Staðsetning: Undir hægra megin
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf urban » Lau 07. Apr 2007 02:12

ok án þess að hafa skoðað þessar vélar (ég semsagt skoðaði þessa linka ekki)
þá langar mig að spurja að einu


afhverju vista ?


Heyrðu þú ert bara alls ekkert svo óvitlaus !


Höfundur
kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kristjanm » Lau 07. Apr 2007 02:29

urban- skrifaði:ok án þess að hafa skoðað þessar vélar (ég semsagt skoðaði þessa linka ekki)
þá langar mig að spurja að einu


afhverju vista ?


Af því að mig langar frekar að nota hið nýja og betra stýrikerfi frá Microsoft í staðinn fyrir hið 5 ára gamla Windows XP.




Blackened
vélbúnaðarpervert
Póstar: 956
Skráði sig: Mið 29. Sep 2004 17:36
Reputation: 14
Staðsetning: Babýlon norðursins
Staða: Ótengdur

Pósturaf Blackened » Lau 07. Apr 2007 12:24

Eins og staðan er í dag.. þá er fulluppfært XP ekkert verra en Vista held ég :)

...amk hvað varðar drivera support og þessháttar



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17029
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Pósturaf GuðjónR » Lau 07. Apr 2007 12:39

Blackened skrifaði:Eins og staðan er í dag.. þá er fulluppfært XP ekkert verra en Vista held ég :)

...amk hvað varðar drivera support og þessháttar

Ég myndi nú segja að XP væri betra hvað varðar support og drivera, ég er búinn að prófa vista núna í 2 mánuði og ætla að formatta og skipta yfir í XP.
Fer svo hugsanlega aftur í vista síðar á árinu...eða þegar supportið verður orðið betra.




HemmiR
Stjórnandi
Póstar: 422
Skráði sig: Fim 05. Maí 2005 23:05
Reputation: 1
Staða: Ótengdur

Pósturaf HemmiR » Lau 07. Apr 2007 13:00

kristjanm skrifaði:
urban- skrifaði:ok án þess að hafa skoðað þessar vélar (ég semsagt skoðaði þessa linka ekki)
þá langar mig að spurja að einu


afhverju vista ?


Af því að mig langar frekar að nota hið nýja og betra stýrikerfi frá Microsoft í staðinn fyrir hið 5 ára gamla Windows XP.

ég setti vista upp á vélini mina um daginn.. ég setti inn skjákorts driver fyrir nvidia kortið mitt og stökk svo i world of warcraft.. og ég var með mikið lélegra fps i honumm á vista heldur en xp.. fpsið liktist svona frekar þegar ég spila wow i cedega á linux :S og svo installaði ég update-um og þá hætti ég að komast á netið eftir að ég reboootaði eftir að hafa sett þau inn. svo ég held að ég haldi mig bara alfarið frá þessu stýrikerfi :lol:




Höfundur
kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kristjanm » Lau 07. Apr 2007 13:45

Ég er mjög lítið fyrir að spila tölvuleiki þessa dagana svo að það er ekkert að angra mig þótt að skjákortsdriverar séu ekki nógu góðir. Ég er sannfærður um að þeir muni batna mjög fljótlega.

Vista er það sem koma skal og það er ekkert óeðlilegt að það taki smá tíma fyrir drivera og hugbúnað að komast í samt lag fyrir nýtt stýrikerfi.

Ég veit ekki betur en að flestir séu sammála um að Vista sé bara þó nokkuð hraðvirkt og stöðugt, að ekki sé minnst á mikið flottara en XP, þó svo að mjög margir sem hafa aldrei prófað Vista séu með mikla fordóma á móti því.

Ég er búinn að nota XP í mörg ár og er orðinn vægast sagt leiður á því, kominn tími til að prófa eitthvað nýtt.



Skjámynd

gnarr
Kóngur
Póstar: 6574
Skráði sig: Lau 29. Mar 2003 19:54
Reputation: 356
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Pósturaf gnarr » Lau 07. Apr 2007 17:45

Vista er æðislegt. Leiðinlegt hvað skítafyrirtæki eins og nVidia eru að standa sig illa í rekla smíði fyrir þetta kerfi.


"Give what you can, take what you need."


Höfundur
kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kristjanm » Mið 11. Apr 2007 06:20

Vá ég fékk vélina í hendurnar í gær og Vista er GEÐVEIKT. Mæli með því fyrir alla að skipta sem fyrst, XP er bara rusl hliðina á Vista.




Taxi
spjallið.is
Póstar: 444
Skráði sig: Fös 17. Feb 2006 20:02
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavik
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf Taxi » Mið 11. Apr 2007 19:40

kristjanm skrifaði:Vá ég fékk vélina í hendurnar í gær og Vista er GEÐVEIKT. Mæli með því fyrir alla að skipta sem fyrst, XP er bara rusl hliðina á Vista.

Hvaða vél keyptir þú að lokum. :?:




Höfundur
kristjanm
1+1=10
Póstar: 1196
Skráði sig: Sun 20. Jún 2004 23:07
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Pósturaf kristjanm » Fim 12. Apr 2007 06:11

Acer Aspire 5684, er mjög sáttur. Vélin ræður leikandi við Vista.




Harvest
Geek
Póstar: 819
Skráði sig: Lau 13. Maí 2006 01:25
Reputation: 1
Staðsetning: artæki
Staða: Ótengdur

Pósturaf Harvest » Þri 24. Apr 2007 14:14

Ekki góð reynsla af þessum toshiba í fjölskyldunni... tæki frekar þessa acer.

Mundi hafa alveg 2gb minni fyrir vista.


Uppljóstrari samfélagsins... Lög og regla almúgans... Rödd samtímans... VAKTIN.IS