Þeir sem verða fyrir einhverjum skaðlegum áhrifum af völdum tölvuleikja eru yfirleitt eitthvað veikir á geði fyrir, vissulega er til það fólk sem tekur þessu of alvarlega, en það ætti ekki að þróa markaðinn í kringum þá einstaklinga, heldur hina, okkur, þessa venjulegu.
Hvað myndu menn gera ef markaðurinn færi alltaf eftir þessum lögmálum, húsmæður gætu líklega ekki keypt sér hárblásara út í búð, vegna þess að hann gæti endað sem sjálfsmorðstól í baðkarinu, hnífar og skæri eru ekki barnameðfæri og væru líklega ekki fullorðinsmeðfæri heldur ef hugsunin væri svona.
Pointið er að það eru alltaf einhverjir sem eru veikir/viðkvæmir fyrir ýmsum hlutum, það á ekki að refsa fjöldanum vegna þeirra.