Ef að þú hefur áhuga á 65nm CPU (sem á að skila sér í lægri hita), 120 gb og HDMI tengi skaltu bíða. Það er talið (talið, ekki heldur ÖRUGGT) að Microsoft svari þessu á CES sem er haldið í næstu viku (mánudag-miðvikudag). Það er nú ekki langt í það.
Þitt er valið - en Elko á að vera með vélina ódýrast (hvort hún er uppseld í augnablikinu veit ég eigi). Held að Max sé einnig með hana til sölu. Ef Max er með hana ódýrar áttu að geta fengið endurgreiddan mismuninn + 5% af honum aukalega frá Elko.
Ef ég tek dæmi: Segjum að hún sé á 42 þús í Max en 43 þús í Elko. Þá áttu að fá 1.050 kr. endurgreitt frá Elko (1 þús mismunur + 5% sem er 50 kr.). Einnig býður Elko upp á viðbótartryggingu fyrir 4 þús minnir mig - þá er vélin í ábyrgð í þrjú ár en ekki tvö ár. Færðu þá nýja vél ef vélin bilar, eyðileggst af slysförum (t.d. að þér takist að hella gosi inn í vélina einhvern veginn

) eða ef henni er stolið.
Nú er komin mun haldbærri sönnun fyrir þessu, ég efast stórlega um að þetta sé allt saman falsað (skoðið einnig myndbandið): Ýtið hér