Nei hann er ekki jafn stór og hann. Minni. Eiginlega mikklu minni (samt rosalega stórt

).
Kassinn er ca.:
60cm x 24cm x 62cm (lengd x breidd x hæð).
Ég borgaði 25þ. fyrir hann (með 2x 120mm viftum).
Fanst ekki svo mikill verðmunur miðað við þann sem ég ætlaði að fá mér upphaflega (ThermalTake Kandalf). Auðvita eru 7000 kr. munur alltaf 7000 en þegar maður er að spá í svona dýrum kassa eins og Kandalf er þá finst mér þetta ekki eins mikill munur, miðað við sá munur sem er á kössunum.
Ég fór sko í Task til að skoða Kandalfinn, en sá þennann og varð allveg ástfanginn. Allgerlega toppaði alla kassana þarna inni. Einnig fanst mér galli við kandalfinn að það voru sumir hlutir á honum úr plasti. Ekki nóg með það, heldur voru þeir úr rosalega "simpilu" plasti og ég er nú þannig týpa að ég vil ekki svoleiðis í kringum mig. Ég vil "massífa" og sterka hluti. Eitthvað sem ég get óvart rekist í og þá krassar draslið ekki eða brotnar osf. (en það er bara ég

).
Ykkur finst kanski mikið að borga 25þ. fyrir kassa, en ég hugsaði líka um það hvað hann er flottur, einnig er hann silfurlitaður og passar vel við aðra hluti sem ég er með hérna. Ég hugsa einfaldlega mikið um hönnun og gæði.
Mér finst þetta svona svipað eins og að fara í bónus og kaupa sér JDV plastmasjónvarp eða fara og kaupa sér almennilegan Samsung skjá (sem dugar og maður nýtur þess að horfa á). Frekar að safna aðeins lengur og fá þá alvöru græju, heldur en að vera alltaf í rúmfatalagerum að kaupa sama gamla ódýra draslið (if you get the point).