
Ég því miður er engann veginn að fíla þessa íslensku servera, þá aðalega útaf ég spila einungis á rifle-only serverum.
málið er að pingið akkúrat á þessum tíma til útlanda er ekki að gera sig eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
ég er búinn að hringja í vodafone og kvarta en þeir segja að farice hafi ekki næga bandvídd til að anna álaginu á þessum tímum og sögðu þeir mér að þetta væri alveg eins hjá hinum netveitunum.
Pingið á þessum serverum að neðan er mjög gott á öðrum tímum dags, oft 60 á þeim bestu.
En já tilgangurinn með þessum þráð er aðalega að fá það staðfest hvort þetta sé eins hjá hinum netveitunum, gæti t.d. einhver ykkar sem er hjá hinum netveitunum pingað þessa servera milli 21 og 1 á morgun til að fá smá samanburð.
og svo væri líka gaman að vita hvort það væru ekki einhverjir fleiri að verða brjálaðir á þessu ástandi

annars ef þetta er ekki einskorðað við ogvodafone þá er þetta orðið frekar pirrandi ástand að geta ekki spilað tölvuleiki á netinu nema á því takmarkaða úrvali af leikjaþjónum sem staðsett eru hér á landi.
nú eða fara að vinna á nóttunni, og spila leiki á morgnana þegar farice annar álaginu.
