

Ef einhver veit hvað getur verið að þá bara tjá sig
þetta er alveg ný tala eða svona 2 mánaða gömul
Innihald:
AMD Athlon 64 X2 Dual Core 4400+
1 GB DDR
MSI K8N SLI Platinum
500W Fortron Blue Storm
Acer 19" viewable skjár
appel skrifaði:Þú hefur rekið þig í skjásnúruna, og hún hefur *ýtt* við AGP/PCIE kortinu þínu þannig að það sitji ekki lengur rétt í raufinni. Þú verður að opna kassann og taka kortið úr, og svo setja það aftur rétt inn, og þrýsta því sæmilega vel inn og hananú.
Hef nokkrum sinnum lent í þessu áður.
maro skrifaði:þetta er mjög sennilega það að skjárinn sé bilaður eða skjákortið situr ekki alveg í raufini.
Ætlaði að taka viftuna af skjákortinu mínu og setja örgjörva viftu í staðin (eitthvað sem fylgdi örgjörvanum, en er með zalman á honum), en eftir að hafa losað allar skrúfur var viftan enn pikk föst.
orto skrifaði:Ætlaði að taka viftuna af skjákortinu mínu og setja örgjörva viftu í staðin (eitthvað sem fylgdi örgjörvanum, en er með zalman á honum), en eftir að hafa losað allar skrúfur var viftan enn pikk föst.
Ef viftan er pikkföst á skjákortinu, taktu þá hárblásara, kveiktu á honum og blástu heitu lofti á kortið í smástund. Það hitar upp límið sem að er undir skjákortskælingunni. Núna ættir þú að geta fjarlægt kælinguna. Settu svo hreinsispritt á eyrnarpinna og fjarlægðu límið af örgjörvanum á skjákortinu.