Vextir - Snjóhengjan fellur!

Allt utan efnis
Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8663
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1395
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf rapport » Sun 28. Des 2025 11:41

Daz skrifaði:
rapport skrifaði:

Nema ef við hefðum skuldað miklu meira. Fólk er verðlaunað fyrir að skuldsetja sig út á ystu nöf.

Nei, það er tekju hámark (og gjalda hámark). Þannig að ef þú ferð yfir ákveðnar tekjur færðu ekki vaxtabætur, sama hvað þú skuldar mikið. Og ef þú ert í gjalda hámarkinu þá hækka bæturnar ekki ef þú eykur skuldirnar.
Þú getur fiktað með reiknivélina á https://www.skatturinn.is/einstaklingar ... vaxtabota/

Mér sýnist tekju hámarkið vera rétt undir 15 milljónir fyrir hjón, sem eru 640 þúsund (rassvasareiknað) á mánuði í heildarlaun á mann.

Einu skiptin sem ég fékk vaxtabætur var þegar makinn minn var í skóla og engri vinnu.


Ég þekki þetta ekki, en finnst að ríkið ætti að taka þessa 15 milljarða á ári og nota þá frekar í að byggja ódýrar 2-3 herbergja íbúðir til að mæta þörf á markaði og halda framboði á eignum nokkuð stöðugu til að kæla markaðinn næstu 15-20 árin.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3855
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 165
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf Daz » Sun 28. Des 2025 12:27

Hvaða 15 milljarða? Við höfum rætt þetta áður, ríkið leggur 2 milljarða (ca) á ári í vaxtabætur
viewtopic.php?f=9&t=97580&p=810941&hilit=Vaxtab%C3%A6tur#p810941

Ef þú ferð að blanda saman leigubótum þá ertu kominn í allt aðra umræðu.

Eins og markaðurinn er núna (fasteignir eru fjárfestingar vara) þá getur ríkið ekki beitt sér með beinum hætti til að lækka eða halda niðri fasteignaverði. Ekki nema líklega skapa sér skaðabótaskyldu sem yrði okkur dýrari í heildina litið.



Skjámynd

worghal
Kóngur
Póstar: 6602
Skráði sig: Sun 11. Mar 2007 14:00
Reputation: 549
Staðsetning: fyrir aftan þig
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf worghal » Sun 28. Des 2025 17:44

Daz skrifaði:Hvaða 15 milljarða? Við höfum rætt þetta áður, ríkið leggur 2 milljarða (ca) á ári í vaxtabætur
viewtopic.php?f=9&t=97580&p=810941&hilit=Vaxtab%C3%A6tur#p810941

Ef þú ferð að blanda saman leigubótum þá ertu kominn í allt aðra umræðu.

Eins og markaðurinn er núna (fasteignir eru fjárfestingar vara) þá getur ríkið ekki beitt sér með beinum hætti til að lækka eða halda niðri fasteignaverði. Ekki nema líklega skapa sér skaðabótaskyldu sem yrði okkur dýrari í heildina litið.

ein leið fyrir ríkið til að beita sér gegn fasteignafjárfestingum á almennum fasteignamarkaði er að skoða leigu þök og airbnb kvóta.


CPU: Intel Core i7 12700KF MB: Gigabyte Z690 Gaming X GPU: EVGA RTX 3080 FTW3 ULTRA 12Gb RAM: Corsair Vengeance RGB Pro 2x16Gb 3600Mhz CPU Cooler: Noctua NH-D14 Sound: Topping DX7s - HD380PRO - Yamaha HS7 CASE: Corsair 4000D Airflow

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8663
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1395
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Vextir - Snjóhengjan fellur!

Pósturaf rapport » Mán 29. Des 2025 09:10

Daz skrifaði:Hvaða 15 milljarða? Við höfum rætt þetta áður, ríkið leggur 2 milljarða (ca) á ári í vaxtabætur
viewtopic.php?f=9&t=97580&p=810941&hilit=Vaxtab%C3%A6tur#p810941

Ef þú ferð að blanda saman leigubótum þá ertu kominn í allt aðra umræðu.

Eins og markaðurinn er núna (fasteignir eru fjárfestingar vara) þá getur ríkið ekki beitt sér með beinum hætti til að lækka eða halda niðri fasteignaverði. Ekki nema líklega skapa sér skaðabótaskyldu sem yrði okkur dýrari í heildina litið.


Fann þessa fínu grein - https://vinnan.is/hvad-vard-um-vaxtabaeturnar/°

Þær eru líklega ekki jafn mikið bruðl og ég hélt, a.m.k ekki í seinni tíð.

En er samt á þeirri skoðun að ríkið ætti að hætta að niðurgreiað húsnæði og ætti að einbeita sér að því að útvega ódýrt húsnæði.

Einakvæðing er t.d. að valda því að vegakerfið er að hruni komið, hreinlega því að það er búið að flækja aðfangakeðjuna svo mikið að milliliðir bera enga ábyrgð og allar taka sitt. Ef Vegagerðin væri t.d. með 24/7 mönnun á tveimur teymum sem mundu ekki gera neitt annað en að tvöfalda undirlag fyrir þjóðveg 1 þá væri það geggjað, fjögur teymi sem væru í að leggja malbik út um allt land (líka ofaná nýtt undirlag fyrir #1) og svo eitt teymi og bor í að bora göng...

Þetta hljómar svakalega mikið... þar til fólk fattar að bara "rekstur" Vegagerðarinnar kostar í dag 3.500.000.000 kr. á mánuði.

Helmingurinn fer í verktaka sbr. Ístak, ÍAV, Borgarverk, Suðurloft, Hlaðbæ Colas. Suðurverk um 1.750 milljónir á mánuði.

Salt kostar að meðaltali 7,2 milljónir á mánuði og Malbik, olímöl og tengd efni = 111,8 milljónir á mánuði... á meðan EFLA fær ein og sér 52 miljónir á mánuði í "Verkfræðingar, tæknifræðingar og arkitektar".

Mig grunar að þetta sé mikið til gerviverktaka þar sem verið er að greiða "tímagjald" fyrir aðgang að þekkingu en ekki verið að láta verkfræðistofur gera tilboð í og leysa fyrirframskilgreind verkefni.