Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Allt utan efnis
Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Pósturaf Gúrú » Fim 16. Apr 2009 12:43

prg_ skrifaði:Ég gæti svo byrjað að tala um hvað allt yfir 40 GB er fáránlega mikið og í langflestum tilvikum yfirdrifið af ólöglegu efni sem er sótt þegar gagnamagn fer í hæstu hæðir. Auðvitað eru sumir að sækja sér efni í HD (sem væri hægt að kaupa löglega með Blu-Ray útgáfum), en alla jafna jafngilda 40 GB u.þ.b. 75 klst af efni í SD. Til að geta horft á slíkt magn þyrfti einstaklingurinn að horfa á efni í u.þ.b. tvo og hálfan tíma á dag. Hver finnur áhugavert efni, sem er þess virði að dánlóda frá útlöndum, í svo miklu magni? Sjálfur hef ég held ég einu sinni læðst yfir 30 gíg en er samt nokkuð stífur í bransanum.


Ef að ég er meðlimur á Hd-box.com og er með premium membership, þá get ég nýtt 2,4% af áskriftinni minni, 12 myndir, áður en að ég er hamlaður af ISP.
En samt það einungis að nýta 2,4% af borgaðri áskrift er að spara mér u.þ.b. 82 þúsund krónur, ef að ég myndi annars þurfa að kaupa þær á Blu-Ray.
Svo að nei, 40GB er ekki fáránlega mikið, og nei, það er ekki hægt að kaupa þær löglega með Blu-Ray án þess að vera með innkomu á við Michael Dell.


Modus ponens

Skjámynd

depill
Stjórnandi
Póstar: 1596
Skráði sig: Mán 04. Júl 2005 17:09
Reputation: 260
Staðsetning: Reykjavík, Iceland
Staða: Ótengdur

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Pósturaf depill » Fim 16. Apr 2009 13:02

prg_ skrifaði:snip


Ég hef nú tekið undir þetta á öðrum stöðum með honum Pétri Rúnari. Hins vegar er ég samt ósáttur við hvernig ISParnir gera þetta, og það sem mér finnst alltaf vanta hérna á Íslandi er hreinlega gegnsæi. Til dæmis alveg grenja ég á hverjum mánuði vegna tenginga sem við borgum vegna "NETSambands" sem er sambærilegt og MetroNet hjá Vodafone.

Afhverju það er hægt að mismuna fyrirtækjum á Íslandi svona rosalega skil ég ekki. Ég fæ 10 GB hjá Símanum innifalið í NETSambandinu hjá Símanum með engu verðþaki og eftir það get ég keypt GB á rúmlega 2.090 kr hjá Símanum. Þetta finnst mér alveg endalaust ósanngjarnt. Vegna þess að yfirleitt fá fyrirtæki á landinu ekki þá forgangsröðum á bandvídd út úr landinu sem þau eiga skilið fyrir það verð sem þau borga ( og hjá Pétur þetta er líka svona hjá Voda ).

40 GB pakki hjá Símanum kostar fyrirtæki í dag 52.800 kr m/ VSK. En ef ég sé einstaklingur get ég keypt það á rúman 6000 kall ? Það vantar allt gegnsæi.

Og það er það sama og ég hef vælt í yfir Símanum. EF að síminn ætlar að selja tengingarnar sínar með 40 GB niðurhali, þá verður það að vera á sama tímabili og ég greiði netáskriftina mína. Gagnmagnið verður að taka yfir sama tímabil. Ekki 7 daga fram og til baka eða 30 daga fram og til baka. Það bara sorry er ekki sanngjarnt og er blekking gagnvart viðskiptavinum.

Að þessu leyti finnst mér Vodafone vera að gera þetta sanngjarnast, það er að ég kaupi áskrift fyrir mánuð og gagnamagnið dugar mér í mánuð. Ég skil alveg að bandvídd sé dýr út, en ég bara vill að Íslensku fyrirtækin séu neydd til þess að hafa einfaldari og gegnsæjari verðskrá, svo ég geti hreinlega áttað mig á því að hvað ég er að kaupa. Alltaf þegar ég tala við fjarskiptafyrirtækin um verð, þá fæ ég alltaf höfuðverk og finnst þetta alltof flókið. Meiri segja þegar ég vann hjá 2 af þeim var ég bara WTF, hvað er þessi að kaupa, og hvað er þessi að kaupa.

T.d. GSM Samband 1, 2, 3 og 4 hjá Símanum. Eða þá hvernig það hefur verið hægt að breyta tímamælingunni hjá Símanum ( og mér skyllst að Vodafone ætli að breyta líka, hef heyrt get ekki fullyrt ).

Ef við tökum nýjasta dæmi Símans "Aðgerðaráætlun fyrir fyrirtæki og einstaklinga" þá erum við í fyrsta lagi að tala um nýjar áskriftarleiðir, þótt að auglýsingarnar séu það villandi að maður gæti hugsað að þetta sé aukaþjónusta ( sem ég hugsaði, hugsaði fín viðbót ofan á mitt GSM Samband 3 ) að þá breyttu þeir jafnframt tímamælingunni, ég bara WTF. Sem sagt tímamæling á þessum áskriftarleiðum er 60/60. Afhverju er það ekki áberandi á vefsíðunni þeirra, ég tók fyrst eftir þessu í samanburði PTA, auðvita eiga fjarskiptafyrirtækin að þurfa birta tímamælinguna. Ég er með mitt GSM Samband sekúndumælt, ég borga upphafsgjald + hver sekúndatalin. Upphafsgjaldið er venjulega 5.90.

Ef við tökum núna Lægsta mínútuverðið 11,90 kr hjá Símanum, þá er upphafsgjaldið 11,90 og sekúndumælingin er 60/60 ( heil mínúta mæld fyrstu mínútuna og svo heil mínúta hver mínúta eftir það ), sem þýðir að ég greiði 23,8 kr fyrir fyrstu mínútuna sem ég hringi. LÆGSTA MÍNÚTUVERÐIÐ jamm..... Ég b.t.w borga ef ég hringi í NOVA ( sem er dýrasti flokkurinn ) í segjum bara 30 sek í minni leið 18,85 ( einhvern tíman heyrði ég að það væri algengasta lengd símtala, þ.e. undir 30 sek ).

Að finna þetta út á vefsíðu Símans er næstum ómögulegt, gegnsæið er ekkert, það er erfitt að finna út hvað maður á að velja, hvað það kostar, hvað er innifalið, hvenær það innifalið. Hvað kostar þetta ef ég nota þetta svona og svo að lokum hver eru gæðin við það sem ég er að fá. Hver er SLAinn o.s.frv.



Og ég hef líka vælt yfir því að mér finnst það ósanngjarnt að það sé hægt að binda mann í 6 mánaða áskrift og svo á 6 mánaða tímabilinu að breyta öllum skilmálum og verðum án þess að gefa viðskiptavini kost á að segja upp áskrift ( eins og þegar Síminn hækkaði verð á myndlykli frá 0 kr í 600 kr, samningsforsendurnar voru brotnar bæði á ADSL og Sjónvarpin ). Og jafnframt með breytingu á gagnamagni, hvernig gagnamagn er mælt eða hvaða aðgerðir eru gerðar. Það á ekki að leyfa fjarskiptafyrirtækjum að setja í skilmála sína "Og já við meigum breyta skilmálunum hvenær sem er án þess að þú meigir gera neitt" það var reynt að negla þetta í fjarskiptalögunum. En PTA er greinilega alltof veikt til þess að framfylgja þessu. Þetta er einfalt, ef að verðbreytingar verða framyfir verðlagsþróun, eða skilmálum sé breytt á einhvern minnsta hátt, þá á samningur að vera automatískt ógildur.



Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1276
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 144
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Vesen að sjá gagnamagn hjá Vodafone

Pósturaf Minuz1 » Fim 16. Apr 2009 16:36

prg_ skrifaði:
Minuz1 skrifaði:Hvað kostar niðurhalið okkur mikið? Heyrt mikið af svona fullyrðingum....proof or STFU
Hvað skilar Farice miklu tapi/gróða á mánuði/ári? Eru símafyrirtækin að tapa á viðskiptum við Farice og fá síðan fullt af arðgreiðslum eða eignamyndun í kapplinum?
Hvað kostar að fullnýta strenginn miðað við að nýta hann ekki? (raunverulegur kostnaður við hvert GB) annar kostnaður á að leggjast yfir alla notendur strengsins.


Í fyrsta lagi er ég ekki fjármálaspegúlant og í öðru lagi er eitthvað af þessum upplýsingum ekki opinbert, eins og svo margt í rekstri fyrirtækja. Hins vegar getur þú grúskað í ársskýrslu Farice:
http://is.farice.is/media/frettir//Fari ... s_2008.pdf
Mér sýnist í fljótu bragði að tekjur Farice af sölu bandvíddar árið 2008 hafi numið 6.576.529 evrum. Á tengi dagsins í dag er kostnaður þeirra sem kaupa þessa bandvídd því um 1,1 milljarður króna.

Samkvæmt Póst- og fjar (skýrsla um fjarskiptamarkaðinn á Íslandi fyrri hluta árs 2008):
http://www.pta.is/upload/files/Tölfræðiskýrsla%20á%20fyrri%20helmingi%20ársins%202008.pdf
er fjöldi xDSL tenginga á Íslandi tæp 95 þúsund.

Út frá þessum tölum ætti kostnaður við þessa bandvídd (án fyrirtækjatenginga!) að vera 11.165 kr. á ári á hverja tengingu. Inn í þessa upphæð er ekki tekinn kostnaður við ADSL tenginguna sjálfa, eðlilega álagningu, rekstrarkostnað og gamla góða virðisaukann sem er á allri smásölu. 40 GB tenging hjá Vodafone kostar 2.000 kr. meira en 5 GB tengingin. Það má því grófreikna að inniföldu 5 GB-in í minnsta pakkanum eru sirka 285 kr. af heildarverðinu, 3.690 kr. 285 kr.*12 gera 3.420 kr., ef tekinn er af því VSK og 20% álagning þá sitja eftir rúmar 2.000 kr. sem heimili með 5 GB pakka borgar (in theory) í erlent niðurhal á ári. Aðrir borga meira.

Tek enn og aftur fram að ég er nú bara að grúska í þessu mér til ánægju og yndisauka, er ekki hluti af því teymi sem sér um bissniss hliðina hér hjá fyrirtækinu. Það getur hver sem er skoðað þessi gögn sem ég er að vísa í og dregið eigin ályktanir.


Þú vilt þá kannski benda þeim á að það er fólk sem myndi gjarnan fá upplýsingar um þetta og værum vel til í raunverulegar upplýsingar og kannski við gætum þá fundið einhverja lausn á þessum málum í staðinn fyrir að þið hafir 5% viðskiptavini sem eru ekki par sáttir við sífellt þrengri kost.


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það