prg_ skrifaði:snip
Ég hef nú tekið undir þetta á öðrum stöðum með honum Pétri Rúnari. Hins vegar er ég samt ósáttur við hvernig ISParnir gera þetta, og það sem mér finnst alltaf vanta hérna á Íslandi er hreinlega gegnsæi. Til dæmis alveg grenja ég á hverjum mánuði vegna tenginga sem við borgum vegna "NETSambands" sem er sambærilegt og MetroNet hjá Vodafone.
Afhverju það er hægt að mismuna fyrirtækjum á Íslandi svona rosalega skil ég ekki. Ég fæ 10 GB hjá Símanum innifalið í NETSambandinu hjá Símanum með engu verðþaki og eftir það get ég keypt GB á rúmlega 2.090 kr hjá Símanum. Þetta finnst mér alveg endalaust ósanngjarnt. Vegna þess að yfirleitt fá fyrirtæki á landinu ekki þá forgangsröðum á bandvídd út úr landinu sem þau eiga skilið fyrir það verð sem þau borga ( og hjá Pétur þetta er líka svona hjá Voda ).
40 GB pakki hjá Símanum kostar fyrirtæki í dag 52.800 kr m/ VSK. En ef ég sé einstaklingur get ég keypt það á rúman 6000 kall ? Það vantar allt gegnsæi.
Og það er það sama og ég hef vælt í yfir Símanum. EF að síminn ætlar að selja tengingarnar sínar með 40 GB niðurhali, þá verður það að vera á sama tímabili og ég greiði netáskriftina mína. Gagnmagnið verður að taka yfir sama tímabil. Ekki 7 daga fram og til baka eða 30 daga fram og til baka. Það bara sorry er ekki sanngjarnt og er blekking gagnvart viðskiptavinum.
Að þessu leyti finnst mér Vodafone vera að gera þetta sanngjarnast, það er að ég kaupi áskrift fyrir mánuð og gagnamagnið dugar mér í mánuð. Ég skil alveg að bandvídd sé dýr út, en ég bara vill að Íslensku fyrirtækin séu neydd til þess að hafa einfaldari og gegnsæjari verðskrá, svo ég geti hreinlega áttað mig á því að hvað ég er að kaupa. Alltaf þegar ég tala við fjarskiptafyrirtækin um verð, þá fæ ég alltaf höfuðverk og finnst þetta alltof flókið. Meiri segja þegar ég vann hjá 2 af þeim var ég bara WTF, hvað er þessi að kaupa, og hvað er þessi að kaupa.
T.d. GSM Samband 1, 2, 3 og 4 hjá Símanum. Eða þá hvernig það hefur verið hægt að breyta tímamælingunni hjá Símanum ( og mér skyllst að Vodafone ætli að breyta líka, hef heyrt get ekki fullyrt ).
Ef við tökum nýjasta dæmi Símans "Aðgerðaráætlun fyrir fyrirtæki og einstaklinga" þá erum við í fyrsta lagi að tala um nýjar áskriftarleiðir, þótt að auglýsingarnar séu það villandi að maður gæti hugsað að þetta sé aukaþjónusta ( sem ég hugsaði, hugsaði fín viðbót ofan á mitt GSM Samband 3 ) að þá breyttu þeir jafnframt tímamælingunni, ég bara WTF. Sem sagt tímamæling á þessum áskriftarleiðum er 60/60. Afhverju er það ekki áberandi á vefsíðunni þeirra, ég tók fyrst eftir þessu í samanburði PTA, auðvita eiga fjarskiptafyrirtækin að þurfa birta tímamælinguna. Ég er með mitt GSM Samband sekúndumælt, ég borga upphafsgjald + hver sekúndatalin. Upphafsgjaldið er venjulega 5.90.
Ef við tökum núna Lægsta mínútuverðið 11,90 kr hjá Símanum, þá er upphafsgjaldið 11,90 og sekúndumælingin er 60/60 ( heil mínúta mæld fyrstu mínútuna og svo heil mínúta hver mínúta eftir það ), sem þýðir að ég greiði 23,8 kr fyrir fyrstu mínútuna sem ég hringi. LÆGSTA MÍNÚTUVERÐIÐ jamm..... Ég b.t.w borga ef ég hringi í NOVA ( sem er dýrasti flokkurinn ) í segjum bara 30 sek í minni leið 18,85 ( einhvern tíman heyrði ég að það væri algengasta lengd símtala, þ.e. undir 30 sek ).
Að finna þetta út á vefsíðu Símans er næstum ómögulegt, gegnsæið er ekkert, það er erfitt að finna út hvað maður á að velja, hvað það kostar, hvað er innifalið, hvenær það innifalið. Hvað kostar þetta ef ég nota þetta svona og svo að lokum hver eru gæðin við það sem ég er að fá. Hver er SLAinn o.s.frv.
Og ég hef líka vælt yfir því að mér finnst það ósanngjarnt að það sé hægt að binda mann í 6 mánaða áskrift og svo á 6 mánaða tímabilinu að breyta öllum skilmálum og verðum án þess að gefa viðskiptavini kost á að segja upp áskrift ( eins og þegar Síminn hækkaði verð á myndlykli frá 0 kr í 600 kr, samningsforsendurnar voru brotnar bæði á ADSL og Sjónvarpin ). Og jafnframt með breytingu á gagnamagni, hvernig gagnamagn er mælt eða hvaða aðgerðir eru gerðar. Það á ekki að leyfa fjarskiptafyrirtækjum að setja í skilmála sína "Og já við meigum breyta skilmálunum hvenær sem er án þess að þú meigir gera neitt" það var reynt að negla þetta í fjarskiptalögunum. En PTA er greinilega alltof veikt til þess að framfylgja þessu. Þetta er einfalt, ef að verðbreytingar verða framyfir verðlagsþróun, eða skilmálum sé breytt á einhvern minnsta hátt, þá á samningur að vera automatískt ógildur.