Að skipta um DVD drif í Xbox360


Höfundur
SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Að skipta um DVD drif í Xbox360

Pósturaf SteiniP » Mið 03. Jún 2009 16:05

Sælir strákar
Ég var loksins að fá nýtt drif í xboxið mitt, eftir 2 mánaða bið, eina endursendingu og vesen í tollinum. Það er af gerð Hitachi HL GDR-3120L og rom version er 0079FL.
Þetta er sama version á bæði gamla og nýja drifinu. En til þess að láta nýja drifið virka, þá þarf ég flassa nýja drifið með passkey sem að er staðsettur á gamla drifinu og á móðurborði vélarinnar.
En þarna kemur upp vandamál. Controllerinn í gamla drifinu er dauður þannig að ekki er hægt að nota hefðbundar aðferðir til að nálgast kóðann af geisladrifinu sjálfu.
Þá langar mig að vita hvort það sé mögulegt að finna þennan kóða, annaðhvort á drifinu eða móðurborðinu. Væri jafnvel hægt að taka firmware kubbinn af gamla drifinu og lóða hann á nýja?
Allar uplýsingar eru mjög vel þegnar. I miss my xbox :(




TechHead
Geek
Póstar: 822
Skráði sig: Þri 23. Nóv 2004 14:56
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Að skipta um DVD drif í Xbox360

Pósturaf TechHead » Mán 15. Jún 2009 05:45

SteiniP skrifaði: Væri jafnvel hægt að taka firmware kubbinn af gamla drifinu og lóða hann á nýja?
Allar uplýsingar eru mjög vel þegnar. I miss my xbox :(


Já það virkar þar sem firmware kubburinn geymir passkey-pairing upplýsingar drifsins.