Sumaruppfærslan


Höfundur
SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Sumaruppfærslan

Pósturaf SteiniP » Mán 16. Jún 2008 23:00

Sælir drengir

Nú er ég að gæla við þá hugmynd að fjárfesta í nýrri tölvu, en þar sem ég er sama og ekkert búinn að fylgjast með vélbúnaðarmarkaðnum síðustu 2 árin eða svo þarf ég smá hjálp við að komast af stað.

Vélin þarf að ráða við nýjustu leikina en einnig aðra vinnslu á borð við klippingu, Photoshop og slíkt.

Mig vantar semsagt örgjörva, móðurborð, RAM, skjákort og góðan kassa utan um þetta allt saman fyrir ekki of mikinn pening (vil helst sleppa með 100k... get samt farið yfir ef það er nauðsynlegt).
Er með 470W OCZ Power Stream PSU, ætti það að duga eða þarf ég stærra?

Endilega komið með uppástungur... ég er alveg lost í þessu. :S



Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Sumaruppfærslan

Pósturaf Gúrú » Mán 16. Jún 2008 23:33

http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... ts_id=1043
Hef heyrt(lesið) að það sé minnsta mál að fá hlutum skipt út í tilboðunum þeirra, en ég veit ekki hvað verðið myndi lækka um þar sem að þeir eru ekki með þennan örgjörva á sölu :-k

Klemmi?


Modus ponens

Skjámynd

zedro
Stjórnandi
Póstar: 2788
Skráði sig: Fös 29. Okt 2004 21:29
Reputation: 129
Staðsetning: FL410
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sumaruppfærslan

Pósturaf zedro » Mán 16. Jún 2008 23:36

Kisildalur.is - Karfan mín skrifaði:

Er þetta ekki bara stílað á þig? Getur svosem sleppt disknum og þá lækkar verðið eitthvað.
Þrusur örru þrusu skjákort 4Gig minni og WiFi það gerist ekki mikið betra.


Kísildalur.is þar sem nördin versla


Höfundur
SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sumaruppfærslan

Pósturaf SteiniP » Mán 16. Jún 2008 23:59

Zedro skrifaði:
Kisildalur.is - Karfan mín skrifaði:

Er þetta ekki bara stílað á þig? Getur svosem sleppt disknum og þá lækkar verðið eitthvað.
Þrusur örru þrusu skjákort 4Gig minni og WiFi það gerist ekki mikið betra.

Þessi lítur helvíti vel út.
Myndi borga sig að bæta við 5000 kalli og taka HD3870 skjákortið?




Klemmi
Stjórnandi
Póstar: 4245
Skráði sig: Fim 10. Apr 2003 12:16
Reputation: 1422
Staða: Ótengdur

Re: Sumaruppfærslan

Pósturaf Klemmi » Mið 18. Jún 2008 00:57

Gúrú skrifaði:http://tolvutaekni.is/product_info.php?cPath=23_96&products_id=1043
Hef heyrt(lesið) að það sé minnsta mál að fá hlutum skipt út í tilboðunum þeirra, en ég veit ekki hvað verðið myndi lækka um þar sem að þeir eru ekki með þennan örgjörva á sölu :-k

Klemmi?


Antec Sonata III kassinn kemur með góðum Antec Earthwatts 500W aflgjafa :) Má alveg skoða að selja vélina án hans en hins vegar ef ég væri sjálfur að velja mér tölvu myndi ég skoða að borga 2000kr.- meira yfir í Antec P182 á 19.900kr.-, en hann kemur án aflgjafa :D
Annars Steini, myndi ég skoða annað skjákort heldur en HD3850 ef vélin er hugsuð í það að ráða vel við nýjustu leikina :wink:


Starfsmaður Tölvutækni.is

Skjámynd

Gúrú
Bannaður
Póstar: 5677
Skráði sig: Fös 17. Mar 2006 23:08
Reputation: 1
Staðsetning: ;)
Staða: Ótengdur

Re: Sumaruppfærslan

Pósturaf Gúrú » Mið 18. Jún 2008 01:08

Mynd
Sérð vel hvað 3870 er mun betra en 3850.

Myndi samt sem áður taka 8800 GTS G92 ef þú vilt að þetta ráði mjög vel við alla nýjustu leikina.


Modus ponens


Höfundur
SteiniP
Bara að hanga
Póstar: 1573
Skráði sig: Mán 16. Jún 2008 21:54
Reputation: 1
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Sumaruppfærslan

Pósturaf SteiniP » Mið 18. Jún 2008 18:32

Kom við í Kísildal áðan og pantaði þessa vél og skipti út skjákortinu fyrir 8800GTS.
Get ekki beðið eftir að fá hana.

Takk fyrir hjálpina strákar.