Ég var að spá í að uppfæra kvikindið. Það er ekkert gamalt en það er gaman að halda sér í takt við tímann og svona. Það hefur reyndar virkað mjög vel og hef aldrei lent í neinu veseni.
Eins og stendur lítur þetta svona út:
CPU: AMD 64 3500+
Móðurborð: Gigabyte GA-K8NXP-SLI
Minni: 2x512 Corsair 333
Skjákort: GeForce 7800 GT
Kassi: Chieftec Dragon svartur
Kæling: 1x 120 mm vifta framaná (og svo auðvitað PSU og örgjörvaviftan)
PowerSupply: 420w eitthvað ómerkilegt
Hdd: 2x WD 160gb og 320gb
Svo er það spurningin, hvað á ég að uppfæra fyrst? Er einhver hlutur sem er það góður/lélegur að hann passar ekki inní þetta? Veit t.d ekki hvað ég get hlaðið miklu á þetta móðurborð.
Það er allaveganna bókað mál að ég mun fá mér meira minni og kannski einhverjar viftur í viðbót. Fyrir utan það er ég ekki viss. Örgjörvinn? Móðurborðið? Líka spurning hvernig þeir hlutir muni passa og svona. Einhverjar uppástungur?
Hvað á að uppfæra fyrst?
-
Stutturdreki
- Of mikill frítími
- Póstar: 1722
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Reputation: 47
- Staða: Ótengdur
Hmm.. ekki viss um að nýjar viftur falli undir 'uppfærslu'
Anyroad.. án þess að skipta um móðurborð þá er helst að fá sér öflugri 939 örgjörva. Og ef þú ert að leika þér og átt skítnóg af pening að fara í nVidia 8800 skjákort til að fá dx10, aðeins hærra fps.. etc. Ekki viss um að þú græðir mikið á því að auka minnið eða td. skipta því út fyrir ddr400 kubbum. En það fer eftir því hvað þú notar tölvuna í.
Ef þú skiptir um móðurborð.. þá fer náttúrulega líka örrinn.. og minnið.

Já, það er rétt hjá þér, viftur eru auðvitað bara "viðbætur" frekar en uppfærslur.
Er einmitt búinn að vera spá í socketunum á móbbaranum, er bara reyna fresta því að taka allt í gegn, ætli ég bæti ekki bara við minni sem svona tímabundna lausn áður en ég tek kvikindið í gegn.
Annars er ég að miklu leiti í leikjum fyrir utan það að ég vilji náttúrulega að hún virki "smooth"...
P.S. sjitt hvað þessi skjákort eru fljót að verða úrelt, þetta sem ég er með var skíturinn fyrir svona ári...
(sem er reyndar smá tími þegar út í það er farið)