Er það ekki alltaf þannig að gjald fyrir bilanagreiningu fellur niður ef viðkomandi ákveður að láta gera við tölvuna á viðkomandi verkstæði.
Erlendis þekkist það að fólk fái greiningu hjá lækni og fari svo til annars læknis og fái aðra greiningu (án þess að segja hvað fyrri læknirinn sagði), bara til að vera visst um að vera ekki að eyða peningum og hugsanlega heilsunni í vitleysu.
Það er því ekkert óeðlilegt við að geta greitt fyrir bilanagreiningu og svo fara með tölvu á annað verkstæði í viðgerð eða gera við sjálfur.
En hann fékk aldrei þetta val, að fá að vita hvað væri að og hvað þyrfti að laga.
Það er reyndar enn verra að hafa rukkað fyrir viðgerð sem lagaði ekki neitt, faktískt séð þá klúðra þeir öllu á öllum stigum.
Þeir eiga að endugreiða þennan 7000, rukka 3900 fyrir fyrstu heimsóknina.
Heimsókn 2 = þá eru þeir að staðfesta að viðgerðin var useless og ættu að bjóða bætur vegna allrar þessarar fyrirhafnar.
Uppfært: Málið leyst og allir sáttir :)
Re: Ráðleggingar vegna viðgerðar hjá Tölvuvirkni
Tbot skrifaði:Hvernig stendur á þessu.
Það er ekkert sem er frítt, það hangir alltaf einhvað á spýtunni.
Frekar að fara þangað sem tekur hóflegt skoðunargjald.
=> Það þarf að borga starfsmönnum laun fyrir vinnu sína og meiri líkur á að fá réttar upplýsingar.
Tölvuvirkni skrifaði:Þjónusta - Ókeypis bilanagreining.
Þjónustan felur í sér:
að greina bilun í Fartölvum , Borðtölvum, vélbúnaði eða hugbúnaði.
Margra ára reynsla, þekking og vönduð vinnubrögð höfð í fyrirrúmi.
Ef það er e-h catch, að þá ætti það að vera tekið fram.
Re: Ráðleggingar vegna viðgerðar hjá Tölvuvirkni
chaplin skrifaði:Tbot skrifaði:Hvernig stendur á þessu.
Það er ekkert sem er frítt, það hangir alltaf einhvað á spýtunni.
Frekar að fara þangað sem tekur hóflegt skoðunargjald.
=> Það þarf að borga starfsmönnum laun fyrir vinnu sína og meiri líkur á að fá réttar upplýsingar.Tölvuvirkni skrifaði:Þjónusta - Ókeypis bilanagreining.
Þjónustan felur í sér:
að greina bilun í Fartölvum , Borðtölvum, vélbúnaði eða hugbúnaði.
Margra ára reynsla, þekking og vönduð vinnubrögð höfð í fyrirrúmi.
Ef það er e-h catch, að þá ætti það að vera tekið fram.
Þetta virkar þá þannig að fólk kemur vegna fríu bilanagreiningarinnar og þeir græða svo peninginn til baka þegar það lætur gera við tölvuna hjá þeim...
-
thalez
Höfundur - Fiktari
- Póstar: 85
- Skráði sig: Lau 08. Júl 2006 12:08
- Reputation: 0
- Staðsetning: Reykjavík
- Staða: Ótengdur
Re: Ráðleggingar vegna viðgerðar hjá Tölvuvirkni
Flott samtal sem ég átti við starfsmann Tölvuvirkni áðan. Skortur á upplýsingaflæði varð til þess að tölvan var sett í viðgerð til að byrja með (ég náði tali af starfsmanninum sem tók fyrst við tölvunni á sínum tíma).
Hann skoðaði verkbeiðnina og kom auga á vandann. Ég fæ allan kostnað endurgreiddan og góða útskýringu á málinu öllu saman.
Málið leyst, ég sáttur og traust mitt á fyrirtækinu endurheimt
Starfsmaðurinn á hrós skilið fyrir að setja sig í mín fótspor og sýna góða þjónustulund.
Góða helgi
Hann skoðaði verkbeiðnina og kom auga á vandann. Ég fæ allan kostnað endurgreiddan og góða útskýringu á málinu öllu saman. Málið leyst, ég sáttur og traust mitt á fyrirtækinu endurheimt
Starfsmaðurinn á hrós skilið fyrir að setja sig í mín fótspor og sýna góða þjónustulund.
Góða helgi
"A computer is a machine for manipulating data according to a list of instructions."
Re: Uppfært: Málið leyst og allir sáttir :)
Samskiptaleysi getur orðið svona fyrirtækjum dýrkeypt en frábært að þetta leiðindarmál hefur verið leyst! Ætli maður verði ekki að gefa þeim amk. einn góðan þumal fyrir að leysa vandamálið á góðan máta. 

Re: Uppfært: Málið leyst og allir sáttir :)
Allir bara mannlegir, mistök gerast. Gott að þetta leystist 
-
rapport
- Kóngur
- Póstar: 8736
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1403
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Uppfært: Málið leyst og allir sáttir :)
Það hlaut að vera eitthvað svona, þetta var ekki í takt við orðsporið sem fer af þeim...