Viftan sem fylgir er nóg ef þú ætlar ekki að yfirklukka (getur þess vegna yfirklukkað með hana)
Svo skipta líka margir um viftu til að hafa tölvuna hljóðlátari.
Jú, rétt. Með oem fylgir engin vifta.
Erm hjálp..við uppfærslu
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 960
- Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
- Reputation: 25
- Staðsetning: Hafnarfjörður
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
gnarr skrifaði:http://www.edbpriser.dk/ vaskurinn fer á allt umfram 43.000kr held ég, ég er samt ekki viss. ef þú færð þetta sent í pósti, þá er vaskur á allt dótið. ekki neinn 43.000kr afsláttur. það er annars enginn tollur af tölvuvörum.
Reyndar er það 46þúsund en ekki 43... Hver hlutur má aðeins kosta upp að 23 þúsund og í heildina máttu bara koma með fyrir 46. Ef þú ferð yfir það gætirðu smyglað þessu inní landið eða borgað VSK sem er bara tekinn af tölunni sem fer umfram þessi 46þúsund.
Einnig ef þú reynir að smygla þessu inn og það mistekst er þetta gert upptækt og bara aumingja þú... svo þú verður bara að meta áhætturnar og ákveða hvað þú ætlar að gera varðandi það.
Annars eru MSI eitthvað ekki að standa sig þessa dagana og ASUS og Abit eru að gera mjög góða hluti svo ef ég væri þú myndi ég reyna að kaupa af þeim... auðvitað eru til önnur góð merki en ég man ekki eftir neinu eins og er

EDBpriser.dk er dönsk verðvakt og er mun ítarlegri en vaktin.is enda miklu stærri markaður svo notaðu hana þegar þú skoðar verðin og mundu að þú þarft að borga danskan VSK líka ef þú lætur senda þér þetta uppá hótelið eða hvar þú ert. Ef þú sækir færðu hann hugsanlega felldan niður.
X800 kortið er glænýtt og þar af leiðandi alltof dýrt... Aldrei að kaupa það besta.. taka það næstbesta.
Svo að það er annaðhvort að bíða með skjákort að taka sér 9800 kortið. 9800Pro kostar úti um 24þúsund.
Svo er bara að vera duglegur að nota Google og Toms hardware
Icarus skrifaði:Reyndar er það 46þúsund en ekki 43... Hver hlutur má aðeins kosta upp að 23 þúsund og í heildina máttu bara koma með fyrir 46. Ef þú ferð yfir það gætirðu smyglað þessu inní landið eða borgað VSK sem er bara tekinn af tölunni sem fer umfram þessi 46þúsund.
Núna spyr ég nú einsog kjáni, en er ekki vsk. á öllu, en þessi 46þús regla gildir um tolla??
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 960
- Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
- Reputation: 25
- Staðsetning: Hafnarfjörður
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
MezzUp skrifaði:Icarus skrifaði:Reyndar er það 46þúsund en ekki 43... Hver hlutur má aðeins kosta upp að 23 þúsund og í heildina máttu bara koma með fyrir 46. Ef þú ferð yfir það gætirðu smyglað þessu inní landið eða borgað VSK sem er bara tekinn af tölunni sem fer umfram þessi 46þúsund.
Núna spyr ég nú einsog kjáni, en er ekki vsk. á öllu, en þessi 46þús regla gildir um tolla??
Veistu.. það gæti bara verið rétt hjá þér.
Ferðabúnaður og annar farangur
Við komu til landsins mega ferðamenn, sem búsettir eru á Íslandi, hafa með sér tollfrjálst þann farangur, t.d. fatnað og annan ferðabúnað, sem þeir fóru með til útlanda.
Ferðamenn mega ennfremur hafa meðferðis tollfrjálst varning sem fenginn er í ferðinni eða í tollfrjálsri verslun hér á landi (við brottför eða heimkomu) fyrir allt að 46.000 kr. miðað við smásöluverð á innkaupsstað. Verðmæti hvers hlutar má þó ekki vera meira en 23.000 kr.; sé verðmæti hlutar meira en 23.000 kr., getur viðkomandi notið tollfríðinda miðað við þá fjárhæð og greitt innflutningsgjöld miðað við verðmæti sem umfram er. Upplýsingar um innflutningsgjöld er í síma 425-0650.
Börn sem eru yngri en 12 ára mega hafa tollfrjálst verslunarvörur fyrir 23.000 kr.
Tollfrelsi matvara, þ.m.t. sælgæti, er takmarkað við 13.000 kr. verðmæti og 3 kg þyngd.
Ferðamenn geta ekki framselt rétt sinn til tollfríðinda; tveir eða fleiri ferðamenn geta ekki lagt saman heimildir sínar til tollfrjáls innflutnings, t.d. til að flytja tollfrjálst inn hlut sem er meira en 23.000 kr. að verðmæti.
Icarus skrifaði:gnarr skrifaði:ég veit ekki hversu oft þetta hefur verið sagt hérna: ÞAÐ ER EKKI TOLLUR AF TÖLVUVÖRUM!
Enda vorum við að tala um VSK og ég var að sýna fram á að það sem ég sagði snérist ekki um VSK heldur tolla og var að játa mistök mín.
núna segi ég, ekki alveg jafn mikill kjáni, en sagði ég ekki einmitt við þig fyrir nokkru að þú værir ekki alveg nógu vel að þér í innflutningsgjöldum til þess að vera að tala um þau?

-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 960
- Skráði sig: Mán 08. Des 2003 23:53
- Reputation: 25
- Staðsetning: Hafnarfjörður
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
MezzUp skrifaði:Icarus skrifaði:gnarr skrifaði:ég veit ekki hversu oft þetta hefur verið sagt hérna: ÞAÐ ER EKKI TOLLUR AF TÖLVUVÖRUM!
Enda vorum við að tala um VSK og ég var að sýna fram á að það sem ég sagði snérist ekki um VSK heldur tolla og var að játa mistök mín.
núna segi ég, ekki alveg jafn mikill kjáni, en sagði ég ekki einmitt við þig fyrir nokkru að þú værir ekki alveg nógu vel að þér í innflutningsgjöldum til þess að vera að tala um þau?(ekki það mikilvægt að ég nenni að leita, en minnir endilega að ég hafi sagt eitthvað álíka við þig)
Jájá... getur vel verið en mistök eru til að læra af og ég hætti ekkert að tala þó að einhver segi að ég viti ekki nóg um málið.
Icarus skrifaði:MezzUp skrifaði:Icarus skrifaði:gnarr skrifaði:ég veit ekki hversu oft þetta hefur verið sagt hérna: ÞAÐ ER EKKI TOLLUR AF TÖLVUVÖRUM!
Enda vorum við að tala um VSK og ég var að sýna fram á að það sem ég sagði snérist ekki um VSK heldur tolla og var að játa mistök mín.
núna segi ég, ekki alveg jafn mikill kjáni, en sagði ég ekki einmitt við þig fyrir nokkru að þú værir ekki alveg nógu vel að þér í innflutningsgjöldum til þess að vera að tala um þau?(ekki það mikilvægt að ég nenni að leita, en minnir endilega að ég hafi sagt eitthvað álíka við þig)
Jájá... getur vel verið en mistök eru til að læra af og ég hætti ekkert að tala þó að einhver segi að ég viti ekki nóg um málið.
hmm, þó að þú gætir verið að gefa villandi/rangar upplýsingar?
En vitaskuld máttu segja flestallt hérna, en endilega taktu það fram ef að þú ert ekki viss......