Ég var að kaupa mér nýja uppfærslu í tölvuna mína og sést núverandi setup í undirskrift og ég setti windows 7 upp. Þetta var gert í gærkvöldi og allt í góðu þangað til núna í kvöld þá ákveður tölvan alltaf að frjósa bara nokkrum mínútum eftir að ég starta henni og forritin sem eru uppi byrja að frjósa bara eitt í einu s.s. þegar ég tek eftir að eitt forrit er frosið þá fer ég kannski á desktopið og ætla opna eitthvað þar þá frís desktoppið en músin er samt alltaf í gangi (hún frýs ekki) og svo get ég ekki einu sinni komist inní task managerinn með því að ýtá ctrl+alt+del.... kannast einhver við vandamálið?
Þetta gerðist fyrst á meðan ég var að reyna installa Trend PC Chillin forriti sem var inná DVD disknum sem fylgdi móðurborðinu (ps. ég náði ekki að installa þessu forriti eða allavega er það ekki sjáanlegt í programs í control panelnum).
Allar uppástungur vel þegnar, nenni ekki að fara formatta strax aftur
og já ég náði að runna tölvuna í svona 10mín í eitt skiptið og þá runnaði ég prime95 til að kanna hvort hún væri að ofhitna eða hvort hún myndi feila á meðan það væri í gangi en svo var ekki, því að þegar ég lokaði svo forritinu og ætlaði að fara gera eitthvað þá fraus hún. Virðist frjósa bara við hin ýmsu auðveldu verk.
) og þegar ég reyndi að deleta henni kom bara að hún væri in use með einhverju programmi svo að ég end taskaði explorer.exe og startaði nýjum explorer.exe inní task manager og gat þá deletað möppuni og mér sýnist þetta vera komið í lag