Smá lúxusvandræði – eigin lén og Gmail

Skjámynd

Höfundur
GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Smá lúxusvandræði – eigin lén og Gmail

Pósturaf GuðjónR » Mið 09. Apr 2025 22:48

Góða kvöldið Vaktarar.

Smá lúxusvandamál sem einhverjir hér kunna að kannast við:

Mér finnst þægilegt að tengja Gmail við þau lén sem ég á og nota það bæði í vafra og Apple Mail. Þetta hefur virkað fínt í gegnum tíðina, sérstaklega þar sem það var frekar beint og einfalt.

Fyrir um tveimur árum hætti Google með gamla G Suite (sem var frítt), en bauð þeim sem vildu að færa sig yfir í nýtt kerfi án kostnaðar. Þetta lén fór þó fram hjá mér, og í dag þegar ég ætlaði að virkja tenginguna þá var búið að loka á möguleikann og ekkert hægt að gera þar núna.

Fór því að skoða aðra valkosti og rambaði á Zoho Mail. Þeir bjóða upp á ókeypis netfang fyrir eigið lén og allt það, en þegar ég var búinn að berjast í gegnum DNS breytingar og að setja þetta allt upp, þá kom í ljós að POP/IMAP krefst áskriftar. Þannig að...

Tvennt í stöðunni:
  • Sætta mig við að nota Zoho appið og ekkert tengt við Apple Mail
  • Eða spyrja ykkur snillinga hvort þið vitið um einhverja aðrar þjónustur sem leyfa tengingu við eigið lén og styður IMAP án þess að kosta handlegg
Kannski er til einhver redirect-lausn sem færi póstinn eitthvað annað? Endilega deilið ef þið hafið lausnir.

Takk fyrirfram
– Einn sem bara vildi tékka á pósti í friði



Skjámynd

nidur
Bara að hanga
Póstar: 1500
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 235
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Smá lúxusvandræði – eigin lén og Gmail

Pósturaf nidur » Fim 10. Apr 2025 00:58

Nota sjálfur zoho, er með mörg netföng sett þar upp.

Nýjasta sem ég setti upp þurfti að greiða fyrir 12usd á ári eða eitthvað slíkt minnir mig.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Smá lúxusvandræði – eigin lén og Gmail

Pósturaf rapport » Fim 10. Apr 2025 08:55

Er reyndar með keypta áskrift og nota - https://admin.google.com/AdminHome fyrir eitt lén og er svo með Office áskrift og tengi þangað haug af lénum...

(segir sá sem vill ekki versla við USA)

En hef verið að fylgjast með Lark í nokkrun tíma sem alternative - https://www.larksuite.com/en_us/product ... rom=navbar

Veit ekki hvort það sé frítt að tengja external domain við þeirra þjónustu.