Smá lúxusvandamál sem einhverjir hér kunna að kannast við:
Mér finnst þægilegt að tengja Gmail við þau lén sem ég á og nota það bæði í vafra og Apple Mail. Þetta hefur virkað fínt í gegnum tíðina, sérstaklega þar sem það var frekar beint og einfalt.
Fyrir um tveimur árum hætti Google með gamla G Suite (sem var frítt), en bauð þeim sem vildu að færa sig yfir í nýtt kerfi án kostnaðar. Þetta lén fór þó fram hjá mér, og í dag þegar ég ætlaði að virkja tenginguna þá var búið að loka á möguleikann og ekkert hægt að gera þar núna.
Fór því að skoða aðra valkosti og rambaði á Zoho Mail. Þeir bjóða upp á ókeypis netfang fyrir eigið lén og allt það, en þegar ég var búinn að berjast í gegnum DNS breytingar og að setja þetta allt upp, þá kom í ljós að POP/IMAP krefst áskriftar. Þannig að...
Tvennt í stöðunni:
- Sætta mig við að nota Zoho appið og ekkert tengt við Apple Mail
- Eða spyrja ykkur snillinga hvort þið vitið um einhverja aðrar þjónustur sem leyfa tengingu við eigið lén og styður IMAP án þess að kosta handlegg
Takk fyrirfram
– Einn sem bara vildi tékka á pósti í friði