ergonomic lyklaborð


Höfundur
ejm
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Mið 30. Sep 2020 12:43
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

ergonomic lyklaborð

Pósturaf ejm » Fim 19. Jún 2025 11:04

Er þetta eina sem er í boði á landinu? Hefur einhver prófað þetta? Ég er pínu að fá upp í kok af öllu Logitech dótinu, finnst ég meira vera að leigja af þeim búnað en kaupa. Er með k850, sem er ekki ergonomic og með frekar slappt tactile response. Eins eru stafirnir farnir að mást út.



Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1272
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 385
Staða: Ótengdur

Re: ergonomic lyklaborð

Pósturaf Njall_L » Fim 19. Jún 2025 11:27

Er sjálfur að nota Ultimate Hacking Keyboard með palm-rest og í "tenting" mode og er með báða helminga splittaða þannig að ég kem þeim fyrir eins og hentar hverri setustöðu í staðinn fyrir að vera með báða helminga fasta saman.

Eftir að hafa prófað ýmislegt fram og til baka er þetta lang besta ergonomic útfærsla á lyklaborði sem ég hef fundið fyrir mig. Er síðan búinn að forrita helling af flýtileiðum og músarnotkun inn í lyklaborðið svo hendurnar eru mest á lyklaborðinu og fara lítið á músina.

https://ultimatehackingkeyboard.com/uhk60


Löglegt WinRAR leyfi


Höfundur
ejm
Nýliði
Póstar: 20
Skráði sig: Mið 30. Sep 2020 12:43
Reputation: 2
Staða: Ótengdur

Re: ergonomic lyklaborð

Pósturaf ejm » Fim 19. Jún 2025 12:37

Já, ég var einmitt að skoða þetta, hugsa að maður endi á einhverju svona. Fannst bara spes að sjá ekkert split lyklaborð í boði hér á landi.



Skjámynd

ekkert
Ofur-Nörd
Póstar: 209
Skráði sig: Mán 05. Apr 2021 11:23
Reputation: 101
Staða: Ótengdur

Re: ergonomic lyklaborð

Pósturaf ekkert » Fös 20. Jún 2025 20:01

Neo Ergo er magnað tented Alice lyklaborð fyrir peninginn.


AMDip boii
Jarðeldsneytis- og koníaklaust Ísland 2030