Veit ekki hversu legit það er að auglýsa þetta hér.. en.
Ég er meiri rauðvínskarl en bjórkarl og keypti á uppboði kassa af eftirfarandi.
Kostnaðarverð pr. flösku er um 10þ. (óháð aldri) og það er ekki ætlunin að vera græða, mig bara dauðlangaði að smakka svona gamalt stöff.
En að kaupa þetta allt var stupid og dýrt... EN, ef einhver hefur áhuga á að taka þátt í ævintýrinu, þá má senda mér PM :-)
2x Campo Viejo Gran Reserva - 1970
Ekki búinn að smakka, er að bíða eftir góðu tækifæri. Er einna mest spenntur fyrir þessum. Flöskurnar komu í orginal pappakassanum og líta mjög vel út.
2x Campo Vieja Gran Reserva - 1964
Búinn að smakka, eins og blóð á litinn, þungt og þurfti að vera í karöflu í svolítinn tíma til að losna við örlítið edikbragð (kemur ef súrefni kemst inn í flöskuna). Var í raun of þungt til að vera sötra en hefði örugglega verið geggjað með steik.
Tappinn var vel myglaður í toppinn (er víst algengt) og rifnaði svolítið í sundur við opnun en ég varð að skrúfa í tappann því að tappin ætlaði ofaní flöskuna þegar ég reyndi að nota "butler´s friend" opnara. Þurfti að hella því í gegnum filter vegna gruggs + smá korks því tappin "tættist" smá við opnun.
1x Ramon Bilbao Monte Seco Reserva - 1973
Ekki búinn að smakka, er að bíða eftir góðu tækifæri. Gaf eina svona flösku til félaga míns sem er fæddur 1973 og veitekki hvort hann er búinn að opna hana.
2x Faustino V Reserva - 1985 (Gold Medal. VINEXPO 89 - Bordeaux)
Var alveg geggjað. Fannst það mjög vínrautt, eiginlega eins og það væri vatnsblandað á litinn en bragðið gott. Miðarnir á flöskunum mikið tættir (því að flöskunni hefur verið snúð reglulega í mörg mörg ár) og það fer víst eftir hillum hvort miðarnir tætast.
2x Heredad de Baroja Gran Reserva - 1987
Hlakka mikið til að smakka þetta vín. Las eitthvað um það á vefnum (finn það ekki aftur) en minnir að það hafi verið um að þessi víngerð sé rekin af einhverjum uppum á Spáni sem selja ekki mikið frá sér.
p.s. get látið nokkra svon "butlers friend" upptakara fylgja, keypti 5 á Temu (því það tók því ekki að panta bara einn).
Að eldast eins og rauðvín...
-
Höfundur - Kóngur
- Póstar: 8279
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
- Reputation: 1323
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Að eldast eins og rauðvín...
Síðast breytt af rapport á Þri 20. Maí 2025 16:18, breytt samtals 1 sinni.