Tölvu ráðgjöf eða svipað?

Skjámynd

Höfundur
litli_b
Fiktari
Póstar: 71
Skráði sig: Mið 10. Maí 2023 12:22
Reputation: 14
Staða: Ótengdur

Tölvu ráðgjöf eða svipað?

Pósturaf litli_b » Mán 20. Jan 2025 14:50

Ég, eins og flestir hérna, elska að skoða verð á þessari vefsíðu og hjálpa fólki með sölu og slíkt. Ég er samt búinn að vilja geta gert meira en það. Ég myndi kalla mig tölvu sérfræðing (Sem er frekar standard á þessari vefsíðu.) en ég þori ekki að vera bjóða upp á tölvuviðgerðir og slíkt, því ég er unglingur og ef eitthvað screwast upp þá er ég screwed líka.
Haldiði að það sé einhver leið til að hafa einhverskonar tölvu kaups ráðgjöf eða bara tölvu ráðgjöf yfirhöfuð? Gott á reputation ef ég ætla sækja mér IT vinnu í framtíðinni. Ég ímynda mig að bjóða upp á skít ódýra þjónustu, 500 kall, eða meira segja minna fyrir gott spjall um hverskonar tölvu mál. Einhver þarf pc build? Gefðu mér leiki og budget og ég finn parta og þú ert, mostly, good to go. Eitthvað að tölvuni? Ég get boðið þér hugmyndir til að laga hana eða fínar þjónustur.
Þetta er náttúrulega ekkert einhver crazy hugmynd og ég veit varla hvar ég myndi byrja, væri samt geggjað að fá einhverjar hugmyndir og líka bara skoðanir frá fólki.
Ekki vera hrædd um að segja að þetta sé heimskara en ríkisstjórnin okkar, ég fíla hreinskilni.



Skjámynd

olihar
ÜberAdmin
Póstar: 1330
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 305
Staða: Ótengdur

Re: Tölvu ráðgjöf eða svipað?

Pósturaf olihar » Mán 20. Jan 2025 14:51

Bara fínt að halda áfram að hjálpa hérna á spjallinu.




Gemini
has spoken...
Póstar: 177
Skráði sig: Mán 02. Mar 2009 00:56
Reputation: 40
Staðsetning: 105
Staða: Ótengdur

Re: Tölvu ráðgjöf eða svipað?

Pósturaf Gemini » Mán 20. Jan 2025 17:36

Maður lærir mest á mistökunum. En auðvitað best að þau kosti nú sem minnst samt. En líklega hafa allir sem eru reglulega að vinna með vélbúnað skemmt eitthvað í ógáti. Þú átt ekki að láta það trufla þig of mikið. Ef þú ert að hjálpa vinum/ættingjum ættu þeir nú aldrei að rukka þig fyrir nein mistök, þau eru að taka áhættuna og þú að gera þeim greiða. Ef þú hins vegar ætlar að rukka fyrir vinnuna er ábyrgðin hjá þér á að vinna þetta vel.

Ef þú hefur raunverulegan áhuga á hvaða starfi sem er nánast þá er alltaf fyrsta skrefið að tala við þá sem eru í þeim geira í dag og spyrja bara opið hvað þeir vilja sjá í kunnáttu. Hugsanlega gætirðu fengið að fylgjast með og læra nú eða hjálpa til ef þeim vantar einhvern asap. Versta sem gerist er að fólk segist ekki hafa áhuga.

Mundu líka að það eru fleiri staðir en bara tölvuverslanir sem eru að díla við tölvuvesen. Öll fyrirtæki á landinu þurfa á kljást við slíkt.



Skjámynd

Höfundur
litli_b
Fiktari
Póstar: 71
Skráði sig: Mið 10. Maí 2023 12:22
Reputation: 14
Staða: Ótengdur

Re: Tölvu ráðgjöf eða svipað?

Pósturaf litli_b » Mán 20. Jan 2025 18:44

Gemini skrifaði:Maður lærir mest á mistökunum. En auðvitað best að þau kosti nú sem minnst samt. En líklega hafa allir sem eru reglulega að vinna með vélbúnað skemmt eitthvað í ógáti. Þú átt ekki að láta það trufla þig of mikið. Ef þú ert að hjálpa vinum/ættingjum ættu þeir nú aldrei að rukka þig fyrir nein mistök, þau eru að taka áhættuna og þú að gera þeim greiða. Ef þú hins vegar ætlar að rukka fyrir vinnuna er ábyrgðin hjá þér á að vinna þetta vel.

Ef þú hefur raunverulegan áhuga á hvaða starfi sem er nánast þá er alltaf fyrsta skrefið að tala við þá sem eru í þeim geira í dag og spyrja bara opið hvað þeir vilja sjá í kunnáttu. Hugsanlega gætirðu fengið að fylgjast með og læra nú eða hjálpa til ef þeim vantar einhvern asap. Versta sem gerist er að fólk segist ekki hafa áhuga.

Mundu líka að það eru fleiri staðir en bara tölvuverslanir sem eru að díla við tölvuvesen. Öll fyrirtæki á landinu þurfa á kljást við slíkt.


Algjörlega satt! Spurning hvort maður kíkir niður í kísildal og spurji þá hvort þeir hafa einhver meðmæli eða eitthvað líkt. Kemur ekki til greina að sækja mér vinnu þar, þar sem þeir eru pakfullir nú þegar, og aldrei mun ég nokkurn tíman vinna við Elko. Frekar myndi ég liggja dauður.
Computer.is er nú kannski hugmynd, en þarf að sjá hvað meira er í boði. Hef alveg aðeins of mikið hjálpað kunningjum, var nú mánaðarlega að laga tölvu litla bróðir míns. Takk fyrir stuðning!




Hizzman
Geek
Póstar: 874
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 155
Staða: Ótengdur

Re: Tölvu ráðgjöf eða svipað?

Pósturaf Hizzman » Mán 20. Jan 2025 20:52

fjölsmiðjan er með tölvuendurvinnslu, gætir prófað að kíkja þangað til að fá amk hugmyndir,