Hefur einhver hér keypt HDD, hvort sem er hérlendis eða erlendis, og látið senda sér í pósti? Hefur það alltaf verið í lagi?
Er þetta ekkert varhugavert? Harðir diskar eru svo viðkvæmir fyrir titringi. Ég hef meira að segja heyrt að diskar í JBOD-kerfum hafi styttri líftíma en þeir sem eru ekki í slíkum kerfum.
Ég veit að verslanir hérlendis fá augljóslega harða diska með flutningi, en þær kaupa auðvitað fleiri en einn í einu, sem þýðir stærri pakkningar og meiri möguleika á að fara vel með þá. Ég get hins vegar ekki ímyndað mér hvernig flutningur á stökum diski fer með hann, miðað við það sem maður hefur séð og heyrt um hvernig farið er með pakka á pósthúsum og við hleðslu í flutningskassa.
Ég veit að diskarnir eru í „park mode“ þegar þeir eru ekki í notkun, sem kemur í veg fyrir að plattarnir rispist. En þetta er samt mekanískur búnaður sem getur hreyfst í flutningi. Tala nú ekki um þegar þessu er hent fram og til baka, jafnvel dottið í gólfið, án þess að kaupandinn hafi hugmynd um það.
Er þetta alveg óhætt, eða er þetta bara óþarfa móðursýki hjá mér?
Eða þarf maður að eyða hátt í 14 tímum í akstur til að kaupa sér disk í borginni?
Flutningar á HDD?
-
Höfundur - Vaktari
- Póstar: 2035
- Skráði sig: Fös 01. Okt 2010 13:26
- Reputation: 81
- Staðsetning: Akureyri
- Staða: Ótengdur
Flutningar á HDD?
CPU: Intel Core i7-14700KF Icosa Core @ 3.4GHz RAM:32GB DDR5 6000MHz Sink: Thermaltake SpinQ VT Tower: Thermaltake Armor Revo
SSD: 238GB PLEXTOR PX-256M9PeGN Motherboard: Z790 Eagle AX GPU: NVIDIA RTX 3070Ti 8Gb
[Main screen:]LG UltraGear 32GP850-B 32" QHD nano-IPS [Secondary screen:] BenQ GW2455 - 24" 16:9 [Tertiary Screen:] BenQ xl2411t 24'' 120Hz 16:9

Re: Flutningar á HDD?
Ég bý úti á landi og hef keypt ótal HDD og fengið sent með póstinum, aldrei lent í neinu veseni og diskarnir allir dugað í mörg ár. Ég myndi segja að líkurnar á að HDD skemmist í flutningi séu afar litlar.
Ég vinn í flutningabransanum og get alveg fullyrt að langflestir pakkar fá mjög góða meðhöndlun, þó það séu auðvitað alltaf einhverjir pakkar sem skemmast eða detta í gólfið eða eitthvað þessháttar, það er bara óhjákvæmilegt í þessum bransa, shit happens eins og maður segir.