Contact cleaner á cherry mx switcha.


Höfundur
einarn
Gúrú
Póstar: 562
Skráði sig: Mán 15. Mar 2010 06:06
Reputation: 25
Staða: Ótengdur

Contact cleaner á cherry mx switcha.

Pósturaf einarn » Sun 11. Okt 2020 19:39

Er eitthver contact cleaner sem er betri enn aðrir til að hreinsa cherry mx switcha? Er með shine lyklaborð með nokkrum óvirkum sem mig lángar að gera heiðarlega tilraun til að laga áður enn ég reyni að fá replacement switcha.



Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1277
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 387
Staða: Ótengdur

Re: Contact cleaner á cherry mx switcha.

Pósturaf Njall_L » Sun 11. Okt 2020 20:22

Er mjög ánægður með contact cleaner frá Electrolube sem fæst í Íhlutum, sjá mynd hér að neðan.

Hinsvegar langar mig að skjóta inn í eftir að hafa lagað fjöldan allan af hinum ýmsu lyklaborðum. Mín reynsla er sú að það er MJÖG sjaldgjæft að svissar(rofar) bili eða verði svo óhreinir að þeir hætti að virka, hvað þá margir á einu borði. Það er mun algengara að díóðan yfir rofann skemmist eða lóðning á henni eða rofanum brotni. Myndi ráðleggja þér að byrja á því að framkvæma sjónskoðun og viðnámsmæla yfir rofann þegar þú ýtir á hann.
Ef biluðu rofarnir eru allir staðsettir í sömu röð (lárétt eða lóðrétt) þá er vandamálið líklega eitthvað með þá röðina í heild sinni frekar heldur en alla einstaka rofa.

ELECTROLUBE-CCC-200ML.jpg
ELECTROLUBE-CCC-200ML.jpg (6.8 KiB) Skoðað 1722 sinnum


Löglegt WinRAR leyfi