Hafa einhverjir vaktar skoðað ódýrar háþrýstidælur ? Langar að fá mér dælu sem ég gæti skolað af bílnum, stéttinni og þetta heimilis stuff sem maður notar háþrýstidælur í. Snöggt googl segir mér að Nilfisk sé ódýrast í Húsasmiðjunni á 15k,105 bar. Múrbúðin er með BLACK OG DECKER 110 bar á 15k og Lavor 140 bör á 20k. Byko er með KÄRCHER (sem ég hef svo sem ekkert heyrt um).
Eru einhver merki sem ber að forðast, er markmiðið að fá sem flest bör fyrir sem fæstar krónur eða er eitthvað annað sem ætti að fókusa á ?
Öll ráð og ábendingar vel þegnar

Ættlaði helst ekki að eyða meira en ca. 15-25k.