Það eina sem ég er ekki 100% ákveðinn með er kassinn. Svo að mig langaði að heyra álit ykkar á þessum þrem kössum:
NZXT H440 (Hvíta útgáfan): http://www.nzxt.com/product/detail/143-h440-performance-mid-tower.html

Corsair Air 540 (Arctic white): http://www.corsair.com/en/carbide-series-air-540-arctic-white-high-airflow-atx-cube-case.html

Corsair Graphite 760T: http://www.corsair.com/en/graphite-series-760t-arctic-white-full-tower-windowed-case
Ég held að ég fari ekki í Corsair 760T þó að hann er ótrúlega flottur kassi, aðallega af því að eins og er er ég með full tower kassa og ég þarf hann í rauninni ekki.
Eins og er hallast ég að NZXT H440, og fyrst ég væri þá að panta beint frá þeim - gæti hugsað mér að fá mér 280mm radiatorinn þeirra Kraken X60 http://www.nzxt.com/product/detail/83-kraken-x60-cpu-cooler.
Ég er að stefna á að hafa sleeved cables - hef svolítið gaman af cable management - og hugsanlega hvít/blá led ljós inní kassanum.
Vill endilega fá að heyra ykkar skoðanir og uppástungur ef einhverjar.
