64 bit svar Intel við amd?


Höfundur
Takai
Nörd
Póstar: 146
Skráði sig: Mán 19. Júl 2004 01:45
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

64 bit svar Intel við amd?

Pósturaf Takai » Mán 02. Ágú 2004 12:01

Var að skoða síðu Intel manna í leit að hvort að ég sæi uppkomandi 64bit örgjörva frá þeim.
Sá ekkert sem að segir að þeir séu komnir með "the ultimate 64 bit version of Intel" eins og mætti segja að Amd hafi gert með sýna örgjörva en þeir tala mikið um "Extended 64 bit memory" ... er þetta bara 64bit útgáfan þeirra eða er þetta svona fyrsta skrefið þeirra með því að teygja eitthvað á 32 bit tækninni þeirra?

Sá þetta annars bara á Xeon örranum frá þeim ... er það þá rétt hjá mér að hann verði 64 bit örrinn þeirra?
Allavega virðist Amd ekki eiga mikla möguleika lengi ef að þetta verður comaback frá Intel miðað við allan þann nýja búnað og háa clockspeed sem að Xeon verður þá með 64bit útgáfu nema að Amd sé að plana álíka stökk fram nema bara með nýjum tæknibúnaði til að matcha Intel.

Allavega er þetta það sem að ég hef fengið útúr því að skoða Intel síðuna og pæla.

Plzz ekki byrja að skamma mig ef að þetta er ein stór steypa hjá mér :?




nomaad
has spoken...
Póstar: 198
Skráði sig: Fös 09. Jan 2004 11:06
Reputation: 0
Staðsetning: Á hvolfi.
Staða: Ótengdur

Pósturaf nomaad » Mán 02. Ágú 2004 13:53

Þeir voru mikið að tala um þetta í byrjun árs:
http://techreport.com/onearticle.x/6299

Hinsvegar hefur ekkert heyrst um Clackamas lengi. Sennilega af því að það er lítill sem enginn hugbúnaðarstuðningur ennþá. Það var verið að tala um í vikunni að Windows XP 64bita var seinkað fram á næsta ár, þetta fer ekki á skrið fyrr en þá svo að Intel hefur nægan tíma.


n:\>