Sælir.
Ég var í sjónvarpsflakkaranum mínum (Tvix Slim S1) um daginn og upp úr þurru komu einhver skilaboð sem ég man ekki alveg hver voru en mér finnst eins og hann hafi meðal annars verið kvarta yfir einhverju og spyrja hvort hann ætti að formata eða eitthvað. Ég klikkaði bara á ok til að losna við þetta vandamál. Þetta tók um 10-20 sek ef ég man rétt. Núna tek ég hins vegar eftir því að það er allt horfið af honum nema stofnmöppurnar sem ég bjó til (Movie, Music, Photo, Other) og ný mappa komin sem heitir AUTOMP3 hvort sem það tengist þessu máli eða ekki. Þetta er leiðinlegt þar sem ég var með flott safn af bíómyndum og sjónvarpsþáttum inná þessu sem ég var búinn að raða upp einkar fallega.
Var diskurinn að hrynja? Af hverju komu þessi skilaboð upp?
Allt horfið af flakkaranum
Re: Allt horfið af flakkaranum
Án þess að vita neitt um þennan tiltekna sjónvarpsflakkara þá myndi ég tengja diskinn við heimilistölvu og nota eitthvað recovery forrit til að reyna að finna gögnin.
-
AntiTrust
- Stjórnandi
- Póstar: 6379
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 173
- Staða: Ótengdur
Re: Allt horfið af flakkaranum
Þú fyrirgefur, en hann bað um að fá að "formatta eða e-ð" og þú ýttir bara á OK?
Annars er eina leiðin að keyra recovery forrit á þetta og sjá hvað kemur úr því, það tekur þó oft alveg djöfulli langan tíma (dagar/vikur) að recovera videoskrár.
Annars er eina leiðin að keyra recovery forrit á þetta og sjá hvað kemur úr því, það tekur þó oft alveg djöfulli langan tíma (dagar/vikur) að recovera videoskrár.
Re: Allt horfið af flakkaranum
Skil ekki af hverju sjónvarpsflakkari á að geta poppað upp glugga þegar einhver aðili er í honum í sjónvarpinu sem getur orðið til þess að flakkarinn fer að reformata disknum með fjarstýringunni einni og sér.