Ég var bara að velta fyrir mér hverjir ætluðu að fá sér Diablo 3 þegar hann kemur
...sjálfur er ég búinn að pre-ordera hann af blizzard og ná í hann með góðar væntingar

Ég sjálfur spilaði Diablo 2 eitthvað þegar hann var sem stæðstur en hef til dæmis ekki spilað hann með öðrum og mér skillst að þessi eigi að vera rosalega mikið hugsaður sem online/co-op leikur og mikið lagt uppúr þeim hluta leiksins.
Hérna er smá myndband sem sýnir spilun og mun á grafík og þessháttar í Diablo 1, 2 og 3 og verð að segja að 3 lítur alls ekki illa út

| http://www.youtube.com/watch?v=m0M4sksBOtI |
En já ...hverjir ætla að fá sér Diablo 3 og hefur fólk einhver comment um hann til þeirra sem kanski hafa ekki spilað fyrri leikina og jafnvel ef vaktarar hafa verið að kynna sér leikinn eitthvað sérstaklega ?