Vandræði með bluetooth mús


Höfundur
KLyX
Fiktari
Póstar: 57
Skráði sig: Lau 17. Feb 2007 12:17
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Vandræði með bluetooth mús

Pósturaf KLyX » Mán 30. Ágú 2010 23:44

Sælir Vaktmenn

Ég er í smá brasi með Razer Orochi mús við fartölvuna mína (win7) sem ég er orðinn frekar pirraður á. Þannig er að stundum á músin það til að detta algjörlega út og tekur þá stundum allt upp í mínútu að fá hana til að virka aftur og stundum þarf ég hreinlega að slökkva á henni og kveikja aftur til að hún virki. Þetta vil oft gerast þegar ég er að skrifa, td. í word eða messenger eða slíkt.

hefur einhver lent í svona brasi og fundið á þessu lausn?

Kveðja,
Daníel



Skjámynd

chaplin
Kóngur
Póstar: 4358
Skráði sig: Fim 26. Mar 2009 14:53
Reputation: 409
Staða: Ótengdur

Re: Vandræði með bluetooth mús

Pósturaf chaplin » Þri 31. Ágú 2010 10:44

Á svona mús og virkar hún perfectly, smá pæling, ertu búinn að skipta um batterí? :)




Höfundur
KLyX
Fiktari
Póstar: 57
Skráði sig: Lau 17. Feb 2007 12:17
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vandræði með bluetooth mús

Pósturaf KLyX » Þri 31. Ágú 2010 12:10

Já, búinn að skipta um batterí, búinn að uppfæra firmware í músinni, búinn að update-a helstu drivera sem ég held að tengist þessu. Stend gjörsamlega á gati gagnvart þessu.




biturk
Kóngur
Póstar: 4431
Skráði sig: Mið 01. Apr 2009 17:08
Reputation: 6
Staðsetning: Akureyri
Staða: Ótengdur

Re: Vandræði með bluetooth mús

Pósturaf biturk » Þri 31. Ágú 2010 21:28

hvað er sendirinn langt frá?


eitthvað að blokka? tölvukassi? skjár? annað drasl?


ef ég spyr spurninga vil ég fá það í þráðinn EKKI í pm!! pm með hótunum, svör við spurningum og fleiru eru án tafar birt í viðeigandi þráð.
Sýnum skynsemi og skrifum undir á móti esb tíma og peningasóun, farðu á www.skynsemi.is og skráðu þig!


Höfundur
KLyX
Fiktari
Póstar: 57
Skráði sig: Lau 17. Feb 2007 12:17
Reputation: 0
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Vandræði með bluetooth mús

Pósturaf KLyX » Mið 01. Sep 2010 12:46

Það er ekkert sem ætti að vera fyrir, sendirinn er að ég held í skjánum og ég er bara með músina alveg við hliðina á vélinni. Get líka notað bluetooth headphones við hana án vandræða. Er líklega eitthvað tengt músinni sem er að gerast, hvort hún fari á standby og taki sér stundum svaka tíma til að vakna. Þarf að gera fyrirspurn til Razer support um þetta.