Jæja þá var maður að versla sér kortið sem allir eru að tala um þessa dagana. GTX 460 kortið er klárlega mesta bang-for-the-buck kortið núna, sérstaklega vegna hversu auðvelt er að ná mikilli yfirklukkun á því. 1GB útgáfan skilar þónokkuð meira afli í háum upplausnum, sem ætti að henta 27.5" Hanns.G skjánum mínum betur.
Ég ætlaði að fá mér MSI Cyclone 1GB kortið en það varð uppselt, þá var ákveðið að reyna fá EVGA kort, en ég meikaði ekki biðina eftir því svo ég stökk á Gigabyte kortið á endanum.

Eins og sjá má, þá er bundle-ið bara bare basics (afsakið sletturnar), ekkert verið að fylla kassann af demo-um og trial-um. Bara sáttur með það. (Það vantar driver diskinn á myndina)
Nokkuð vígalegt kort. Kælingin á þessu á víst að vera ein sú besta sem fáanleg er á 460 kortunum og það besta við þessa kælingu er að hún er nánast dead silent! Rykhlífar á tengjunum er sniðug viðbót.
Afturendinn á kortinu. Tveir 6 pinna power pluggar. Það sést ekki á þessarri mynd (og ég gleymdi að skoða það nógu vel) en m.v. það sem ég hef lesið á spjöllum úti, þá eiga að vera heatsink á VRM-unum (voltage regulator module). Ég sá þó að heatsink-ið á GPU-inu nær ekki snertingu við minnin, svo þau eru ókæld.
Kortið komið í. Það ætti nú að vera ágætis air-flow innan í þessum kassa en mér finnst dótið keyra frekar heitt hjá mér, en ég fer í það seinna.
Black is beautiful.
Jæja þá er kortið komið í gagnið. Gekk alveg klakklaust fyrir sig. Ég er langt kominn með að yfirklukka það eins og ég get og stefni að því að gera annan þráð um það í yfirklukkunardálknum hér á vaktinni. Stay tuned.