Pósturaf Snikkari » Sun 14. Des 2003 17:49
Blessaður,
Ég nýbúin að standa í miklum pælingum varðandi hljóðlátari vél.
Ég sá nokkuð hjá þér sem myndi minnka hljóðið í kassanum þínum.
Þú ert með Vantec Stealth að framan allavega, sýnist mér.
1. Taktu vifturnar úr bracketinu sem þær eru í og skrúfaðu þær beint á kassan með Vantec gúmmíþynnum(Vibration Dampener Kit) á milli. Þær fást í start.is og kosta ekki nema kr. 490.- (kr. 2.500.- í Boðeind)
Þetta munar í hávaða. Það gæti líka verið að þú þyrftir að fara upp um eina stærð í viftum sem er gott ef þú skiptir þeim út fyrir hljóðlátari viftur.
2. Ég myndi skipta Stealth viftunum út fyrir Noise blocker ultra silent viftur sem eru miklu hljóðlátari. Þær fást í task.is
3. Svampurinn sem þú settir í hliðarnar virkar þokkalega. En ef þú vilt eitthvað sem virkar ennþá betur skalltu setja tjörumottu í hliðarnar, toppinn og helst botnin líka. Þessar tjörumottur fást í Byko og Húsasmiðjunni.
Ef þú gerir þetta er ég nokkuð viss um að þú finnir töluverðan mun.
Ég var með 2x 92mm Vantec Stealth viftur sem ég skipti út fyrir Ultra silent vifturnar. Ekki nóg með það að þær séu miklu hljóðlátari, heldur eru þær að blása meira lofti.
92mm Vantec stealth eru að blása 28 CFM (47.6 m³/klst) á 1750 RPM
92mm Ultra silent eru að blása 40,58 CFM (69.0 m³/klst) á 1950 RPM
Ef þú notar 80mm eru nokkrar gerðir af Ultra Silent og sú hljóðlátasta er ekki nema 11dB og blæs 22,35 CFM (38,00 m³/Klst) á 1500 RPM.
Gangi þér vel.
CM Scout 2 | | | Corsair RM850x
G.Skill 2x8GB Trident Z 3200Mhz | Samsung 870 EVO plus M.2 1TB |