Ég var svo heppinn að kaupa nýlegt Palit Daytona MX440SE 128Mb DDR skjákort á heilan 500 kall með 384Mb af PC133 RAM í kaupbæti!
Þegar ég reyni að skipta út gamla ASUS GeForce 256 DDR kortinu rennur gleðin af mér. Ég veit að það er löngu kominn tími á að strauja drusluna mína, en mig vantar að redda mér HDD áður. Til að það sé á hreinu er ég með WinXP Pro.
Ég byrjaði á því að skipta um kort og bæta 256Mb minni við 2x128Mb sem fyrir voru. Mistök... lendi í endalausu veseni og enda með að rekja það til minnisins. Í dag reyni ég aftur að skipta um skjákort og enda með að fara aftur í mitt gamla, uppgötva vírus á vélinni og þurfa að ráða niðurlögum hans.
Aftur í skjákortaskipti: nú er ég búinn að ákveða að best sé að un-installera skjákortsdrivernum áður en ég skipti um kort. Þó það sé sami driver fyrir bæði kortin: nVidia Detonator, eða hvað það kallast í dag.
Alltaf þegar ég er búinn að setja nýja kortið í vélina fæ ég Add New Hardware Wizard upp. Ég næ aldrei að komast áfram í honum, hann hangir fastur í leit, þó að iconið í system tray láti vita að kortið sé fundið.
Ég sleppi því að nota Wizardinn og ákveð að setja bara Detonator, common nVidia driverinn, inn. Alltaf þegar ég reyni það verðir skjárinn minn svartur þegar Install Wizard er búinn með 20% eða minna og smá bjöluhljóð hljómar einu sinni stuttu seinna. Eftir það þarf ég að hardboota vélinni.
Ég set gamla kortið aftur í. Installa Detonator og allt í fínu enn sem komið er. Hvað í ósköpunum getur þetta verið?
MX440 koxar á driver...
-
- spjallið.is
- Póstar: 475
- Skráði sig: Mið 19. Nóv 2003 21:58
- Reputation: 7
- Staðsetning: Hfj.
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: MX440 koxar á driver...
Ég keypti 4200Ti 128Mb í konuvélina, þannig að þér er velkomið að prófa GF2 GTS 32Mb, ef það virkar hjá þér máttu eiga það.
Ég er búin að taka það skrilljón sinnum úr og setja það aftur í uppá síðkastið og í morgun þegar ég var eitthvað að vesenast fannst mér viftan vera eitthvað skringileg til að byrja með, þú ræður þá frammúr því ef það er eithvað.
Hringu bara á undan þér ef þú vilt sækja kortið.
Eirikur Bjórbumba
S: 552-3889 eða 868-5752
P.S. Humlasprengjan er komin frá Belgíu

CM Scout 2 | | | Corsair RM850x
G.Skill 2x8GB Trident Z 3200Mhz | Samsung 870 EVO plus M.2 1TB |
G.Skill 2x8GB Trident Z 3200Mhz | Samsung 870 EVO plus M.2 1TB |
-
Höfundur - Nörd
- Póstar: 109
- Skráði sig: Mán 23. Jún 2003 10:49
- Reputation: 0
- Staðsetning: 101
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: MX440 koxar á driver...
Snikkari skrifaði:Ég keypti 4200Ti 128Mb í konuvélina, þannig að þér er velkomið að prófa GF2 GTS 32Mb, ef það virkar hjá þér máttu eiga það.
Ég er búin að taka það skrilljón sinnum úr og setja það aftur í uppá síðkastið og í morgun þegar ég var eitthvað að vesenast fannst mér viftan vera eitthvað skringileg til að byrja með, þú ræður þá frammúr því ef það er eithvað.
Hringu bara á undan þér ef þú vilt sækja kortið.
Eirikur Bjórbumba
S: 552-3889 eða 868-5752
P.S. Humlasprengjan er komin frá Belgíu
Ég þakka gott boð, en við eigum eftir að rekast hvor á annan fyrir jól þannig að þetta getur alveg beðið, ekki satt?
Ég á ekki að vera að rífa tölvuna í sundur og hárreita mig... ég á að vera að nota hana til að skrifa ritgerð!
Mig grunar samt að þegar ég leysi málið með þetta kort (ef það er í lagi) sé fær í að setja hvaða fj... kort í hana...