Uppfærsla á Dell Dimension XPS 3 GEN


Höfundur
Lexinn
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Þri 30. Jún 2009 04:38
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Uppfærsla á Dell Dimension XPS 3 GEN

Pósturaf Lexinn » Þri 30. Jún 2009 04:49

Jæja, mig langar að sjá hvort það sé eitthvað hægt að gera við gömlu vélina mína. En þar sem ég hef ekkert vit á tölvum ákvað ég að spyrja ykkur snillingana.
Það sem mig langar helst að vita er hve öflugt skjákort ég gæti fengið mér án þess að það komi þessi svokallaði flöskuháls(var það ekki flöskuháls? 8-[ ).
Minnið ætla ég líka að bæta og fá mér 2-3GB 533 MHz. Kannski 2GB sé nóg?

Dell Dimension XPS 3 GEN.
Tölvan er svona:
Intel 925X Based Móðurborð
Intel Pentium 4 560 3.6GHz Örgjörvi
1 GB 533 MHz Vinnsluminni
Radeon x800xt 256 MB Skjákort
250 GB Harðurdiskur
Soundblaster Audigy 2 ZS


Tölvan er aðalega ætluð sem leikjavél. Væri gaman að vita að ef ég myndi henda í hana sniðugu skjákorti, hvort hún gæti nokkuð höndlað nýja leiki!
Með von um frábær svör, Lexinn!


(970a-UD3)( Fx-8120 )( GTX 680 )( 2x4GB 1600mhz Crucial Ballistix )( Tagan BZ 800W)

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Dell Dimension XPS 3 GEN

Pósturaf rapport » Þri 30. Jún 2009 11:22

Sæll

Ég er/var með sömu vél... nema fiffuð til helv þar sem PSU skemmdist og ég fór frumlegu leiðina að þvíað setja nýtt í kassann...

Móðurborðið ræður ekki við betri CPU, og max 4Gb minni (minnir mig).

Skjákortið er fínt, ég notaði það áfram í Asus P5K og Q6600 og það hefur ekkert klikkað í því sem ég er að spila.

Man reyndar að ég setti Fallout 3 inná gömlu vélina sem réð ekkert æðislega við leikinn en hann var alveg spilanlegur.

Ef þú ert kominn með MAX minni þá er skjákortið það eina sem hægt er að uppgrade-a.

Móðurborðið ætti að ráða við það, það er ekki málið. Þú mundir þá bara nota kortið áfram í næstu tölvu sem þú færð þér.

p.s. ég væ ri til í að kaupa gamla kortið af þér... nýja móðurborið ræður við tvö og flott að hafa tvö eins skjákort...




Gets
spjallið.is
Póstar: 461
Skráði sig: Mið 01. Ágú 2007 21:01
Reputation: 0
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Dell Dimension XPS 3 GEN

Pósturaf Gets » Þri 30. Jún 2009 12:08

Já það eru fjórar minnisraufar í þessu móðurborði, smá lesning :arrow: http://www.memorystock.com/memory/DellD ... SGen3.html

Gaman væri að vita hve margir minniskubbar eru í henni núna ? 1 x 1024 kubbur eða 2 x 512 kubbar eða 4 x 256 kubbar, því það er jú 1 GB minni í henni.

Hvort að 2 gig vinsluminni er nóg fyrir þig getur engin svarað nema þú sjálfur og þá miðað við hvaða forrit þú ætlar að keyra á vélinni, getur mælt það á meðan forritið/leikurinn er í gangi og þá sérðu hvort að þig er nokkuð að svelta vinsluminni, hefur bara "Task manager" opið á meðan og velur "performance".

Ætla að benda þér hérna :arrow: http://www.tolvulistinn.is/vara/17412 á vinsluminni sem þú gæti kannski notað, kosta allavega ekki mikið.
Þú nærð þá vélinni í 2 gig fyrir 5.160 kr. "persónulega færi ég þá leið"
Nú eða í 4 gig :arrow: http://ejs.is/Pages/1042/itemno/KTD-DM8400A%252f1G fyrir 21.360

Í þessu geri ég ráð fyrir að þú getir ekki notað minniskubbana áfram sem eru fyrir í vélinni "ég myndi samt prófa það" því stundum kemur fyrir að minniskubbar vinna bara ekki saman og er því gott að reyna að kaupa kubb/kubba sömu gerðar "timings" og frá sama framleyðanda til að lenda ekki í veseni með þetta.

Að lokum myndi ég skella þessu korti :arrow: http://www.kisildalur.is/?p=2&id=778 í vélina og þá ertu góður =D>
Man ekki hvort að X800XT kortið sem fyrir er í vélinni er tengt við rafmagnskapal í aflgjafan, en það verður allavega að vera rafmagnssnúra fyrir PCi-Xpress skjákort í þessum aflgjafa til að geta notað nýja skjákortið.




Höfundur
Lexinn
Fiktari
Póstar: 68
Skráði sig: Þri 30. Jún 2009 04:38
Reputation: 4
Staða: Ótengdur

Re: Uppfærsla á Dell Dimension XPS 3 GEN

Pósturaf Lexinn » Þri 30. Jún 2009 13:17

Gaman væri að vita hve margir minniskubbar eru í henni núna ? 1 x 1024 kubbur eða 2 x 512 kubbar eða 4 x 256 kubbar, því það er jú 1 GB minni í henni.

Í vélinni eru núna 2 x 512 Mb kubbar, og held ég að 2 Gb ættu allveg að duga mér þar sem ég keyri aldrei neitt nema eitt forrit/leik í einu. Auk þess eru þessi 4 Gb þvílíkt dýr! :)

En takk kærlega fyrir þetta frábæra innlegg, Gets!


(970a-UD3)( Fx-8120 )( GTX 680 )( 2x4GB 1600mhz Crucial Ballistix )( Tagan BZ 800W)