Þá er ég bara að hugsa um ef maður væri með sama minni, örgjörva, disk og skjákort í þeim báðum.
Td. 8400 örgjörva, 4GB minni, 500GB S-ATA2 disk og HD4870 kort (eitt kort, er ekki að hugsa um að vera með fleiri í Crossfire)
.
GuðjónR skrifaði:Efast um að þú finnir mun.

Zorglub skrifaði:Þetta er allt of einföld spurning til þess að flækja hana ekki aðeins![]()
Fyrir það fyrsta er hægt að svara þessu bæði já og nei.
Fyrir þann sem hvorki fiktar né klukkar, lítill munur.
Fyrir áhugamann í fikti og klukkun, mikill munur.
Fyrir atvinnumann í fikti og klukkun, enginn munur.
P45 hefur PCI E 2 framyfir PCI E 1.1 sem nýtist þér ekki nema á high end korti (spurning um framtíðina)
P45 hefur ICH 10 framyfir ICH 9 sem er vissulega betra en nýtist þér ekkert endilega.
P45 hefur milljón trilljón fídusa og skrautfjaðrir, sem kannski nýtast þér ekki neitt.![]()
Vegna þess að þessi kynslóð er að detta út eru framleiðendur að reyna að kreista allt út sem þeir geta á síðustu metrunum, Intel farnir að styðja yfirklukkun og borðið margfallt fiktvænna fyrir notandan.![]()
En svona burtséð frá öllu þessu bulli, þá munar bara of litlu á verði til að kaupa ekki P45 (nema þú sættir þig við strípaða verkamannaútgáfu af P35)
