Námskeið í netmálum hjá Rafmennt - CompTIA Network+, Cisco CCNA og Linux+

Skjámynd

Höfundur
russi
Geek
Póstar: 809
Skráði sig: Mán 02. Maí 2011 01:28
Reputation: 202
Staðsetning: Terran Empire
Staða: Ótengdur

Námskeið í netmálum hjá Rafmennt - CompTIA Network+, Cisco CCNA og Linux+

Pósturaf russi » Mið 13. Ágú 2025 12:20

Sæl öll

Ætla henda inn hérna smá shameless pluggi.
Ég starfa sem verkefnastjóri hjá Rafmennt og hef verið að henda af stað námskeiðum sem falla eflaust að einhverjum ykkar. Námskeiðin sem um ræðir eru networks námskeið og líka eitt í Linux. Verðin eru góð myndi ég segja, ef við tökum til dæmis CCNA námskeiðið þá er það á 355.000kr hjá mér meðan sambærilegt námskeið yfir 700.000kr annars staðar

CompTIA Network er hugsað fyrir byrjendur og líka þá sem vilja skilja netkerfi betur og er mjög góður grunnur til að koma sér af stað í þessum geira. Verð á þetta námskeið 160.000kr en sambærileg námskeið annarsstaðar er rúmar 320.000kr. Námskeiðið hefst 9 sept og er í 4 vikur, þar af tveir laugardagar.

Cisco CCNA er líka hugsað fyrir byrjendur en ég mæli sterklega með því að fólk þekki vel á netkerfi áður en það situr þetta námskeið og hafi helst einhverja reynslu á að vinna í kringum þau, ef menn eru alveg grænir bakvið eyrum ættu viðkomandi alltaf að taka CompTIA Network fyrst eða hafa sambærilega þekkingu. Námskeiðið hefst 7.október og er í 8 vikur, þar af tveir laugardagar.

Eftir áramót er stefnt að því að hafa námskeið í CCNP ef fólk vill ná enn lengra í Cisco fræðum.

CompTIA Linux+ er svo fyrir þau sem vilja verða fær í Linux stýrikerfum, ná skilningi á uppbyggingu og virkni Linux Stýrikerfa ásamt því reka þjóna og vinnustöðvar í Linux umhverfi. Verð fyrir þetta námskeið er 160.000kr en sambærilegt námskeið annarsstaðar er á tæpar 400.000kr. Námskeiðið hefst 29. sept og er í 5 vikur.

Svo aö öðrum hlutum, þá er á döfunni Arduino, ESP32, Þráðlaus netkerfi og mörg önnur námskeið, svo er ég líka opin fyrir hugmyndum að nýju námsefni sem má henda á mig.

ps. öll verðin sem ég nefni eru án afsláttar, en einstaklingar sem borga í endurmenntunarsjóð Rafiðnarsambandsins fá talsverðan afslátt af gjöldunum. Námskeiðin eru niðurgreiðsluhæf hjá flestum stéttarfélögum.
Síðast breytt af russi á Mið 13. Ágú 2025 16:00, breytt samtals 1 sinni.