Hahahahahahahahahahahaha

þessi þráður er algjör fokkings snilld að lesa yfir svona 3 árum seinna! Kostulegur þráður!
Var að skoða prófílinn minn hérna á síðuni og þar stóð að ég hefði verið all virkastur í þessum þræði af öllum sem ég hef póstað í með 30 pósta allt í allt, bara á þessum þræði! Ákvað að tékka á því hvað væri svona merkilegt við þennan þráð, þó ég muni alveg vel eftir þessu basli og hvað ég var mikil tepra í sambandi við þetta gífurlega vandamál mitt!
Frá 12. Feb 2016 til 20. Sep 2016, eða í 221 daga, var ég að basla með þetta, allt útaf því að ég þorði ekki að snerta innvols tölvunar minnar!
Þökk sé Klemma og fleirum, þá hef ég eftir þetta skipt sjálfur um skjákort alveg þúsund og þrisvar, finnst það ekkert mál í dag fyrir utan það að ná læsinguni á í botninum á móðurborðinu, það getur reynst svoldið mál stundum fyrir feita putta hahaha

En ég fer samt sem áður í dag ekki mikið lengra en að fokka í skjákortunum mínum... Baby steps! Slow and steady wins the race! Þegar það kemur að því þá á ég pottþétt eftir að mana sjálfann mig upp í það að skipta um þennan 7 ára gamla 3570k sem er í vélinni núna... En sá dagur er ekki í dag og er ég mjög þakklátur fyrir það!
Fyndið samt að lesa öll mín svör í þessum þræði aftur, talaði um það t.d. að fara með vélina á verkstæði svona 10x en lét aldrei verða að því útaf leti! Var of latur til þess að lyfta þessum 20-30kg kassa mínum af borðinu sem hann stóð alltaf á og útí bíl, svo úr bílnum og inná verkstæðið... Þessvegna talaði ég alltaf um það en fór samt aldrei með hana á verkstæðið... Hefði ég gert það strax í byrjun hefði þetta mál verið leyst á skot stundu!
Sama mætti segja um það að útiloka skjákortin í byrjun bara eins og maður í stað þess að chicken'a alltaf út á því að koma nálægt þeim!
Og turns out með RAM kubbana, þegar ég fór með hana á verkstæðið seinna meir, að þegar hún kom til baka, þá virkuðu allir RAM kubbar alveg 100% og allt var í topp lagi með það! Ég skemmdi víst ekki rassgat, hef bara ekki sett þá rétt í eða eitthvað...
Samt finnst mér svo skrítið að það er alltaf talað um að maður megi ekki taka mikið á svona tölvu dóti, en í minni reynslu þá þarf maður að rassskella skjákortin rækilega og sýna þeim svoldið hver er "Daddy Dom"... Þar að segja hef ég alltaf þurft að beita meira afli en ég var að búast við að ég þyrfti við að skipta um skjákort! Maður þarf ákveðið force! Ég var bara alltaf að búast við því að það væri aðeins minna en ég hef þurft að notast við!
En já, það var gaman að heimsækja þennan þráð aftur og lesa öll svör við honum líka! Þið voruð að segja mér nákvæmlega hvað ég átti að gera from the get go, ég vildi bara ekki hlusta á ykkur af einhverjum ástæðum... Líklega útaf tepruskapnum í sambandi við að koma nálægt hardware'inu í vélinni sjálfri!
Tók einnig eftir því að mér hefur farið ótrúlega mikið fram í skrifum á síðustu þrem árunum! Alveg ÓTRÚLEGA fram í skrifum! Finnst ég skrifa miklu skírari texta í dag, gera mig enþá meira skiljanlegri og vera búinn að læra nokkurn veginn hvernig ég á að skrifa! Var svo óviss um það hvernig ég ætti að hátta mínum skrifum í þessa daga. Enda var ég líka þrem árum yngri, þrem árum heimskari, þrem árum reynsluminni!
Það er gaman að sjá svona framför! Gaman að prufa að stíga fæti í tímavélina einstöku sinnum! Mæli með því að þið gerið það kannski líka, það gæti komið ykkur vel á óvart!
Ekki var það meira frá mér í bili! Ég kveð á þessum þræði að sinni! Adios!
Hvaaa, ekki er ég eini skemmtilegi gaurinn hérna inná??? Heyrðu, nei! Ég fann annan! Meikiði að tala um eh tölvudrasl frekar? Mig langar meira að spá í því akkúrat núna.
Edrú síðan 4. Apríl 2021 - Still a Joker, even tho I'm sober...