netkaffi skrifaði:Dropi skrifaði: guð hjálpi þér ef það var slökkt á fartölvunni í 1-2 vikur. Þá þarftu að gefa henni 1klst bara til að jafna sig áður en þú getur gert nokkurn skapaðan hlut.
þetta hef ég aldrei lent í eða heyrt um.
Af hverju eruð þið annars að nota linux fyrir gaming? veit að proton er orðið mjög gott, en er samt ekki eitthvað verra performance og stuðningur?
Stuðningurinn er furðulega góður, Valve eru búnir að leggja mikið af mörkum í þennan compatibility layer, enda er þetta eiginlega grundvöllurinn fyrir Steam Deck og svo SteamOS hjá þeim. Ég hef séð í gegnum tíðina samanburð sem sýnir betra performance á Proton en native á sömu vélinni, en svo líka sem sýnir öfugt, sérstaklega þegar kemur að ray tracing.
Fyrir mína parta, ef ekki væri fyrir leiki, þá væri ég búinn að vera í eingöngu í Linux í mörg ár, en hef verið ragur til þess að skipta út af leikjaspilun hjá mér. Hvatinn fyrir mig er hversu mikið mér finnst Microsoft taka völdin af mér, með focus breytingum þegar ég er að skrifa inn (sem ruglar allt almennt), troða Edge inn á mann, og svo Copilot áníðslan sem er bara rétt að byrja. Með Linux þá finnst mér
ég hafa stjórnina á
minni tölvu.
Þetta hentar náttúrulega ekki öllum, og hver og einn verður að gera upp við sig hvað þeir vilja.
NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo