beatmaster skrifaði:Þetta með indefence.is og "undirskriftasöfnun"

, að skrá sig á heimasíðu er ekki undirskrift!
Svo er alltaf verið að bera þetta saman við fjölmiðlalögin en það voru tugþúsundir
handskrifaðar undirskriftir, það er ekki það sama í mínum huga
Það er allt of mikið gert úr "gjá milli þings og þjóðar" í þessu máli 80% venjulegra íslendingaa vill bara að þetta kjaftæði hætti.
Tala nú ekki um fólk sem að skilur ekki orsök og afleiðingu, því er bara ekki viðbjargandi.
Baggalútur tók það best fyrir um daginn, með manninn sem að þoldi ekki af þurfa að skafa af bílnum sínum og vildi fá sjálfstæðisflokkinn aftur til valda því að hann þurfti aldrei að skafa af bílnum þegar að hann var við völd
Ég myndi seint kjósa VG en Steingrímur J er maður ársins að mínu mati, en varðandi mínar persónulegu pólitísku skoðanir þá auglýsi ég eftir alvöru hægri flokki á íslandi (og fólk sem að í alvöru telur X-D vera hægri sinnaðan flokk ætti að kynna sér sögu síðustu 20 ára)
Æi beatmaster þú ert æði, ég ætlaði ekki einu sinni að taka þátt í þessari umræðu eins og hefur komið fram hérna annars staðar ( og á fleirri stöðum ) þá hugnast mér ESB af tvennum ástæðum Evran, ég tel okkur þurfa stabílan gjaldmiðilin til að geta fengið lán og geta forðast eignaupptöku með verðtryggingngunni. Þeir sem segja að krónan og verðtryggingin sé góð er gjörsamlega ..... Og tollabandalagið, vegna þess að ég held að íslenskir pólitíkusar muni aldrei leyfa Íslenskum landbúnaði að vera samkeppnishæfum. Muni aldrei fella niður verndartolla og kvóta og aldrei fella niður asnalega mjólkurtolla o.s.frv.....
Hins vegar hugnast mér ekki ESB vegna þess að þetta er rosalega bjúrokosía sem mér finnst vera nóg af hérna heima til að byrja með, ég verð að játa það að ég vill geta hindrað fólksflutninga soldið og vill að Ísland segi sig úr Schengen strax. Og svo menn eins og þú beatmaster sem eru kvarta yfir því að einhverjir tengja saman Icesave og ESB og svo gerið þið sama.
Og svo kemurðu ennfremur með "ohh ég ætla að vona að fólk hætti að hugsa um flokka eins og fótboltalið" þessir flokkar haga sér eins og fótboltalið þetta fáranlegt. Hvernig í fjandanum geta allir -1 í stjórnarandstöðu verið á móti og allir í stjórn verið með. ÞAÐ ER ENGINN SVONA ÓGEÐSLEGA SAMMÁLA ( er að tala um á báða bóga )
Og 80% þjóðarinnar vilja þetta í burtu. Veit ekki betur en að 70% þjóðarinnar vilja þetta í þjóðaratkvæðagreiðslu sem hefur komið fram í hverri könnunni á fætum annari. Það er mjög líklegt að indefence.is sé mikið underestimate.
----
Fólk sem heldur að flokkar séu til hægri og vinstri á Íslandi ættu bara að kíkja á þá ( ennfremur er skemmtilegt að kynna sér afhverju það er til hægri og vinstri flokkar, en það er annað discussion ).
Íhaldið er miklu betri lýsing á flokknum heldur en að kalla hann frjálshyggjuflokk og okkur frjálshyggjumönnum gnístir í tennunar við það að heyra að þetta sé frjálshyggjunni ( eða eithvað sem kallast neo-liberasim - þetta er næstum því andstæður ) í frjálshyggju væri Icesave ekki til ( og þá myndi ég alls ekki vilja ganga í ESB

), það er út af leiðinlegum afturhaldskommatittum sem ég vill ganga í ESB, þar sem ég held því miður að þeir verði alltaf til í svolitlu magni hérna ( eins og SJS ).
Steingrímur J, er auli ársins ( ásamt fleirri pólitíkusum ) hann og Atli Gíslason berjast um þann titill hart, þetta er menn sem voru með miklar hugsjónir sem allir héldu að þeir myndu aldrei gefast uppá en voru fljótari en allir til að gefa þær upp. Eru í flokknum sem hóf ESB umsókn á vitlausum tímapunkti, gáfu eftir í Icesave hugsjónum sínum og virðast líka ætla ekki að reforma fiskveiðistjórnunarkerfið á Íslandi. AULAR.
Maður ársins er eins og flest öll fyrri ár ( í pólitík það er að segja ) Pétur Blöndal sem hvort sem hann er í stjórn eða stjórnaandstöðu gefst aldrei uppá hugsjónum sínum ( ohhh Atli, ég hélt að þú tilheyrðir þessum mjög svo fámenna hópi )
Svikarar ársins eru klárlega Jóhanna Sigurðardóttir og Samfylkingin sem ætla líka að reyna svíkja allt fyrir ESB aðild, vegna þess að eins og allir vita þá lagast allt við að samþykkja Icesave nokkru sinnum enda býst ég við að dollarinn verði í kringum 70 og evra 120 beint eftir áramót og henda DO út úr Seðlabankanum og svo styrkist gengið ennþá meira við að bara setja inn umsóknina inní ESB ( að þetta lið hafi látið þetta út úr sér ) og svo forðumst við bara fjölmiðla eins og heitan eldinn og þá þurfum við ekki að taka á vandanum, af því að þeir eru hvort sem er svo lélegir.
jodazz skrifaði:Annars er dásamlegat að hlusta á fortölur um hið vonda ESB. Staðreyndin er sú að eftir fremur stutta sögu sjálfstæðis þar sem flokkurinn hefur verið við völd mestan part af tímanum þá eru lífskjör hér í hið minnsta helmingi verri en á hinum norðurlöndunum. Maður á lyftara sem vinnur 38 stunda vinnuviku í Danmörku er með 850þús á mánuði miðað við gengið í dag. En að vísu hlýtur hann náttúrulega að hafa það skelfilegt þar sem hann býr ekki lengur í sjálfstæðu landi.
Klárlega er ég sammála hér, en samt sem áður að jafnvel eftir kreppu erum við mjög háa landsframleiðslu, við getum bæði lifað utan og innan ESB en ég tel persónulega EES samning ekki góðan þar sem við erum algjörlega áhrifalausir og getum ekkert gert í álitamálum eins og Icesave er.
Varðandi Danadæmið, þá er kaupmátturlauna enn tiltölulega hár og vonandi verður þetta tímabundið skerðing á þjónustu og tekjum sem verður hér á landi ( og ég reyndar held það, þar sem landið hefur uppá margt að bjóða ).
Daz skrifaði:Samþykkt icesave þýðir í það minnsta að við getum stundað viðskipti við útlönd á næstunni, ef við hefðum ekki samþykkt er alls óvíst hvað hefði gerst, hversu ósanngjarnt sem það kann að hljóma að borga skuldir einkafyrirtækis. Ég hefði nú haldið að tölvunördar skildu mikilvægi þess að eiga lítið heftann innflutning!!

Og heilaþvottur Samfylkingarinnar hefur náð til Daz, tókstu ekki eftir því hvernig allur innflutningur og Ísland hruni 28. Október ?.
Ég bara skil þessa þvælu ekki, hvernig þetta náði svona langt.
A) Evrópa er ekki einu staðurinn í heiminum
B) Við gætum lifað góðu lífi án EES
C) Við ásamt fleirri löndum erum í WTO
D) Það líklegra að innflutningur stoppi vegna Icesave þar sem við þurfum að nota svo mikið af tekjum okkar í að borga Icesave að við munum líklegast fella gengið enn meira.
F) Samfylkingin eru endanlegir svikarar og fólk virðist gleyma því að Samfylkingin var í stjórn svo ég myndi segja xD + xB = 70 - 75% xD + xS = Rest
Hins vegar gæti ég alveg tekið uppá því næst að kjósa xS eða VG, xD eða xB ég kýs bara það sem mér finnst samsvara mínum skoðunum best og sem slíkt kaus ég xD síðast.