Mohamads

Hér gilda almennar reglur, og virðing er skilyrði. Þræðir birtast ekki í Virkum umræðum.
Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5873
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1091
Staða: Ótengdur

Re: Mohamads

Pósturaf appel » Mán 29. Sep 2025 22:56

rapport skrifaði:
appel skrifaði:
rapport skrifaði:
appel skrifaði:Ég vil leggja niður hælisleitendakerfið einsog það leggur sig, afskrifa það sem gamla rómantíska hugsjón um njósnara að flýja yfir landamærin með ríkisleyndarmál einsog þú sást í bíómyndum í gamla daga. Þetta er svo misnotað kerfi að orðið "misnotkun" kvartaði yfir ofnotkun. í dag er þetta bara vegabréf allra í heiminum til að komast til þessara fáu ríkja sem halda í þessa hugsjón. Flest ríki heims hafa aldrei samþykkt þetta hælisleitendakjaftæði.


Já...

Það sést svakalega vel á þessu PowerBI mælaborði hverjir eru ekki búnir að innleiða neitt regluverk eða sáttmála um hælisleitendur/flóttafólk...

https://rimap.unhcr.org/refugee-treaty- ... -dashboard

Þetta er bara hlægilegt, helduru virkilega að lönd einsog Kína fari eftir þessu? Hefuru kynnt þér t.d. hvað þeir gera með flóttafólk frá Norður Kóreu? Svo ég tali nú ekki um Rússland sem nótar flóttafólk til að herja á landamæri nágrannalanda sinna. 90% af þessu korti er bara þvættingur.


Flest ríki hafa samþykkt þetta hælisleitendakjaftæði og hafa ekki innleitt það eins og vesturlönd því þau eru ekki vesturlönd.

Ég hef engan áhuga á að fara apa eftir Kína eða Rússlandi... hvaða klikkun væri það? Voð erum ekki USA er það?


Vandinn er að þegar hælisleitendakerfið er misnotað einsog það er í dag þá kemur það niður á þeim sem virkilega eru að flótta og þurfa hæli.


Best væri að leggja niður núverandi kerfi og taka upp þá annarskonar kerfi sem er með mjög þrönga skilgreiningu á þessu. Þar að auki þarf að innleiða einhverskonar nágrannareglu, þannig að ef einhver er á flótta frá Afganistan, þá ætti hann að leita hælis fyrst í nágrannalöndunum, Pakistan, Íran, Turkmenistan, Usbekistan, etc. frekar en að ferðast 7 þús km til Bretlands. Það eigi að reyna koma einstakling fyrir í landi með svipaða menningu, tungumál og þvíumlíkt.
Sama gildir með Venezúela, ef fólk er að fljúga alla leið til Íslands þá er það bara stórfurðulegt. Það er enginn að segja mér að nærri öll lönd heimsins fyrir utan vesturlönd séu óörugg.

Þannig að ef viðkomandi er að ferðast framhjá og í gegnum örugg lönd þá er klárt að viðkomandi er bara lífskjaraflóttamaður.
Það er ekki hlutverk vesturlanda að skaffa 7 milljörðum manna hælis óski þeir eftir því.

Það er líka vandamál að flugfélög firra sig af ábyrgð af flutningi þessara lífskjaraflóttamanna. Það þarf að taka á því, gera þau ábyrg fyrir heimflutningi slíkra einstaklinga.
Síðast breytt af appel á Mán 29. Sep 2025 22:57, breytt samtals 1 sinni.


*-*

Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8534
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1370
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Mohamads

Pósturaf rapport » Þri 30. Sep 2025 13:11

appel skrifaði:
rapport skrifaði:Flest ríki hafa samþykkt þetta hælisleitendakjaftæði og hafa ekki innleitt það eins og vesturlönd því þau eru ekki vesturlönd.

Ég hef engan áhuga á að fara apa eftir Kína eða Rússlandi... hvaða klikkun væri það? Voð erum ekki USA er það?


Vandinn er að þegar hælisleitendakerfið er misnotað einsog það er í dag þá kemur það niður á þeim sem virkilega eru að flótta og þurfa hæli.


Best væri að leggja niður núverandi kerfi og taka upp þá annarskonar kerfi sem er með mjög þrönga skilgreiningu á þessu. Þar að auki þarf að innleiða einhverskonar nágrannareglu, þannig að ef einhver er á flótta frá Afganistan, þá ætti hann að leita hælis fyrst í nágrannalöndunum, Pakistan, Íran, Turkmenistan, Usbekistan, etc. frekar en að ferðast 7 þús km til Bretlands. Það eigi að reyna koma einstakling fyrir í landi með svipaða menningu, tungumál og þvíumlíkt.
Sama gildir með Venezúela, ef fólk er að fljúga alla leið til Íslands þá er það bara stórfurðulegt. Það er enginn að segja mér að nærri öll lönd heimsins fyrir utan vesturlönd séu óörugg.

Þannig að ef viðkomandi er að ferðast framhjá og í gegnum örugg lönd þá er klárt að viðkomandi er bara lífskjaraflóttamaður.
Það er ekki hlutverk vesturlanda að skaffa 7 milljörðum manna hælis óski þeir eftir því.

Það er líka vandamál að flugfélög firra sig af ábyrgð af flutningi þessara lífskjaraflóttamanna. Það þarf að taka á því, gera þau ábyrg fyrir heimflutningi slíkra einstaklinga.


Af hverju væri það best?

Hvað er stóra vandamálið við núverandi kerfi?

Fjöldi frá 2010 er þarna á grafi - https://www.stjornarradid.is/verkefni/u ... ottafolks/

https://app.powerbi.com/view?r=eyJrIjoi ... IsImMiOjl9

Frá 2022 eru þetta 11.619 umsækjendur frá 106 löndum en 5895 frá Úkraínu og 3068 frá Venesúela = c.a. 2500 frá öðrum löndum

4495 árið 2022
4159 árið 2023
1932 árið 2024
1139 árið 2025 (í viku 39)

En ATH, þetta eru umsækjendur...

Umsækjendur sem eru virkir i "verndarkerfinu" er að sjá í ársskýrslu VMST - https://downloads.ctfassets.net/8k0h54k ... -FINAL.pdf

Voru um 1500 1.janúar 2025 en voru 2.800 fyrsta jan 2024.

Fjöldi flóttafólks í atvinnuleit (fólk á bótum) er þarna líka og var mestur 2023 um 1600, var lægri 2024 og líklega minnkað 2025.

Þannig að ég spyr aftur...

Hvað er stóra vandamálið við núverandi kerfi?

Þetta fólk er ekki baggi á smfélaginu, þetta er auðlind sem samfélagið treystir á, fólk sem skapar öðrum atvinnu bæði sem þjónustuþegar en líka sem viðskiptavinir.

Við vitum að það er ekki að ná að safna sér einhverjum auð á meðan það býr hér og að það er lang líklegast til að flytja annað innan 10-15 ára.

Við munum því ekki bera neinar svakalegar framtíðarskuldbindingar gagnvart þeim, bara græða.

Þau fremja ekki mikla glæpi EN glæpirnir þeirra eru oft útmálaðir og til mikilla rumfjöllunar, mun meira en glæpir Íslendinga.

Þau hafa miklu meiri ástæðu til að vera hrædd við Íslendinga en Íslendingar að vera hræddir við þau.

Skil ekki af hverju verið erað mála skrattann á vegginn með þessari útlendingafóbíu.