Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Allt utan efnis

Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

42
38%
Nei
42
38%
Veit ekki
28
25%
 
Samtals atkvæði: 112


gunni91
Besserwisser
Póstar: 3185
Skráði sig: Mán 03. Jan 2011 00:22
Reputation: 237
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf gunni91 » Mið 28. Maí 2025 13:07

þetta mun allt saman hækka duglega ef sameining / samruni gengur í gegn

https://www.mbl.is/vidskipti/frettir/20 ... iku_banka/



Skjámynd

nidur
Bara að hanga
Póstar: 1500
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 235
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf nidur » Mið 28. Maí 2025 14:48

Gefa afslátt á bréfum íslandsbanka til að borga kviku 10% meira markaðsvirði, sé ekki hvernig það sé í plús.




falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf falcon1 » Mið 28. Maí 2025 14:56

2007 er að kalla...



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 8279
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1323
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf rapport » Mið 28. Maí 2025 22:55

nidur skrifaði:Gefa afslátt á bréfum íslandsbanka til að borga kviku 10% meira markaðsvirði, sé ekki hvernig það sé í plús.


nkl. þetta eru fjármálafyrirtæki... þau verða ekki verðmætari bara við að sameina eignarhald og einhvern rekstur.




falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf falcon1 » Fim 29. Maí 2025 15:21

Mér finnst eins og það sé verið að reyna að búa til eitthvað svaka hype til að trekkja fólk í að leggja pening í hítina. Kannski er maður of brenndur eftir Hrunið en ég er ekki að fara að treysta þessu. Vonandi er ég bara svona svartsýnn og þetta verður í lagi fyrir fólkið sem er að fjárfesta í þessu dæmi.
Ég ætla bara að halda áfram að greiða niður húsnæðislánið í staðinn. :D




agnarkb
Tölvutryllir
Póstar: 690
Skráði sig: Fös 03. Okt 2008 20:36
Reputation: 125
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf agnarkb » Fim 29. Maí 2025 20:33

Hvaðan fá aktívistar og áhrifavaldar allan þennan pening til að henda í þetta?


Leikjavél | ASRock X870E NOVA | 9800x3D | LF II 240| RTX 3090 | 32GB 6400MHz CL32 | RM850x | Fractal Design North
Server | ASRock H610M-ITX/ac | i5 12400 | Dark Rock TF2 | 32GB | 14 TB | Unraid Basic

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf GuðjónR » Fim 29. Maí 2025 23:01

agnarkb skrifaði:Hvaðan fá aktívistar og áhrifavaldar allan þennan pening til að henda í þetta?


IMG_4752.jpeg
IMG_4752.jpeg (466.4 KiB) Skoðað 774 sinnum
IMG_4753.jpeg
IMG_4753.jpeg (1.02 MiB) Skoðað 774 sinnum



Skjámynd

nidur
Bara að hanga
Póstar: 1500
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 235
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf nidur » Fös 30. Maí 2025 09:58

Vel launað greinilega hjá hjálparsamtökum.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf GuðjónR » Fös 30. Maí 2025 10:45

nidur skrifaði:Vel launað greinilega hjá hjálparsamtökum.

Segðu! :wtf



Skjámynd

dori
Besserwisser
Póstar: 3611
Skráði sig: Fim 12. Feb 2009 10:46
Reputation: 143
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf dori » Fös 30. Maí 2025 11:02

GuðjónR skrifaði:
nidur skrifaði:Vel launað greinilega hjá hjálparsamtökum.

Segðu! :wtf

Er ekki líklegra að fólk sem er ágætlega sett getur leyft sér að velja vinnu meira út frá hugsjón?



Skjámynd

nidur
Bara að hanga
Póstar: 1500
Skráði sig: Fim 18. Ágú 2011 16:50
Reputation: 235
Staðsetning: In the forest
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf nidur » Fös 30. Maí 2025 11:18

dori skrifaði:
GuðjónR skrifaði:
nidur skrifaði:Vel launað greinilega hjá hjálparsamtökum.

Segðu! :wtf

Er ekki líklegra að fólk sem er ágætlega sett getur leyft sér að velja vinnu meira út frá hugsjón?


Er ekki alltaf talað um að 10-20% af því sem er sett í svona félög komist til þeirra sem félagið snýst um. Restin fer í milliliði.




falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf falcon1 » Fös 30. Maí 2025 12:13

Það er greinilega hægt að græða á því að mola undan því góða samfélagi sem við höfum átt hingað til.
Síðast breytt af falcon1 á Fös 30. Maí 2025 12:24, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf GuðjónR » Fös 30. Maí 2025 12:19

Vil samt ekki gera henni upp sakir né ætla henni neitt illt. Þetta er bara sérstök tilviljun.
Held að það verði nóg að gera hjá Skattrannsóknarstjóra á næstunni við að skoða alla þessa óvæntu milljónamæringa sem virðast eiga svona mikið aflögu.
:fly




falcon1
vélbúnaðarpervert
Póstar: 911
Skráði sig: Mán 16. Apr 2007 11:30
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf falcon1 » Fös 30. Maí 2025 12:27

GuðjónR skrifaði:Vil samt ekki gera henni upp sakir né ætla henni neitt illt. Þetta er bara sérstök tilviljun.
Held að það verði nóg að gera hjá Skattrannsóknarstjóra á næstunni við að skoða alla þessa óvæntu milljónamæringa sem virðast eiga svona mikið aflögu.
:fly

Segi það með þér... hver liggur bara á 20 millum sem er hægt að henda í eina fjárfestingu. Hvaðan koma þessir peningar? Ég er í sæmilegri vinnu sem er ok borguð en ég sé ekki hvernig ég ætti að ná að safna upp í 20 millur.



Skjámynd

Daz
Besserwisser
Póstar: 3847
Skráði sig: Sun 20. Okt 2002 09:35
Reputation: 162
Staðsetning: Somewhere something went horribly wrong
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf Daz » Fös 30. Maí 2025 12:51

falcon1 skrifaði:Segi það með þér... hver liggur bara á 20 millum sem er hægt að henda í eina fjárfestingu. Hvaðan koma þessir peningar? Ég er í sæmilegri vinnu sem er ok borguð en ég sé ekki hvernig ég ætti að ná að safna upp í 20 millur.

Fólk sem er á milli íbúða (búið að selja en ekki kaupa), fólk sem hefur nýlega fengið arf, fólk sem leggur frekar pening í fjárfestingar en að borga niður íbúðarlán, fólk sem kaupir fyrir annan aðila. Osfrv.

Í það minnsta engin sérstök ástæða til að áætla að fólk sé að fjárfesta þarna pening sem er illa fenginn, því það var alveg opinbert og kynnt að nafnalistinn þeirra sem kaupa yrði birtur.



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf Hjaltiatla » Fös 30. Maí 2025 15:17

falcon1 skrifaði:Það er greinilega hægt að græða á því að mola undan því góða samfélagi sem við höfum átt hingað til.


Græða á daginn og grilla á kvöldin :guy

Ég rata út...


Just do IT
  √

Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 871
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 158
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf Hrotti » Fös 30. Maí 2025 23:13

falcon1 skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Vil samt ekki gera henni upp sakir né ætla henni neitt illt. Þetta er bara sérstök tilviljun.
Held að það verði nóg að gera hjá Skattrannsóknarstjóra á næstunni við að skoða alla þessa óvæntu milljónamæringa sem virðast eiga svona mikið aflögu.
:fly

Segi það með þér... hver liggur bara á 20 millum sem er hægt að henda í eina fjárfestingu. Hvaðan koma þessir peningar? Ég er í sæmilegri vinnu sem er ok borguð en ég sé ekki hvernig ég ætti að ná að safna upp í 20 millur.



Það er hellingur af fólki sem getur hent 20 millum í svona með tiltölulega lítilli fyrirhöfn, þetta eru ekki einusinni árslaun fyrir allskonar millistjórnendur.


Verðlöggur alltaf velkomnar.

Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf appel » Fös 06. Jún 2025 21:50

Boða tæp 10% þjóðarinnar á hlut­hafa­fund
https://www.visir.is/g/20252736355d/bod ... uthafafund

Er ekki búinn að selja. En er að hugsa hvort gengið gæti styrkst upp að þessum fundi, þar sem aðilar reyna að styrkja stöðu sína til að geta haft áhrif.

https://keldan.is/Tilkynningar/mfn-5206 ... 37418823d9


*-*

Skjámynd

olihar
ÜberAdmin
Póstar: 1330
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 305
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf olihar » Fös 06. Jún 2025 21:57

appel skrifaði:Boða tæp 10% þjóðarinnar á hlut­hafa­fund
https://www.visir.is/g/20252736355d/bod ... uthafafund

Er ekki búinn að selja. En er að hugsa hvort gengið gæti styrkst upp að þessum fundi, þar sem aðilar reyna að styrkja stöðu sína til að geta haft áhrif.

https://keldan.is/Tilkynningar/mfn-5206 ... 37418823d9



https://cdn.islandsbanki.is/image/uploa ... stefna.pdf



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf appel » Fös 06. Jún 2025 22:03

olihar skrifaði:
appel skrifaði:Boða tæp 10% þjóðarinnar á hlut­hafa­fund
https://www.visir.is/g/20252736355d/bod ... uthafafund

Er ekki búinn að selja. En er að hugsa hvort gengið gæti styrkst upp að þessum fundi, þar sem aðilar reyna að styrkja stöðu sína til að geta haft áhrif.

https://keldan.is/Tilkynningar/mfn-5206 ... 37418823d9



https://cdn.islandsbanki.is/image/uploa ... stefna.pdf

Má reyndar senda inn önnur mál.
"Þeir hluthafar sem óska eftir því að fá tiltekið mál tekið til meðferðar á hluthafafundinum, skulu senda kröfu um slíkt á netfangið hluthafar@islandsbanki.is í síðasta lagi tíu dögum fyrir boðaðan hluthafafund, eða í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 þann 20. júní 2025. Kröfu um slíkt skal fylgja rökstuðningur eða drög að ályktun fundarins."
Gæti alveg eins verið að einhverjir séu búnir að sanka að sér bréfum og krefjist kjör nýrrar stjórnar.
Síðast breytt af appel á Fös 06. Jún 2025 22:04, breytt samtals 1 sinni.


*-*

Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf Hjaltiatla » Lau 07. Jún 2025 11:27

appel skrifaði:Boða tæp 10% þjóðarinnar á hlut­hafa­fund
https://www.visir.is/g/20252736355d/bod ... uthafafund

Er ekki búinn að selja. En er að hugsa hvort gengið gæti styrkst upp að þessum fundi, þar sem aðilar reyna að styrkja stöðu sína til að geta haft áhrif.

https://keldan.is/Tilkynningar/mfn-5206 ... 37418823d9


Sama hér , sirka 12% ávöxtun ef maður ákveður að selja í dag. Ég held mínu striki og sel ekki strax.
Síðast breytt af Hjaltiatla á Lau 07. Jún 2025 11:27, breytt samtals 1 sinni.


Just do IT
  √

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf GuðjónR » Lau 07. Jún 2025 11:38

Ekki ólíklegt að það sé valdabarátta framundan eins og @appel nefnir.

En þið „bagholders“, eru þið með eitthvað viðmiðunargengi þar sem þið mynduð selja? 125? 130? 135?



Skjámynd

Hjaltiatla
Besserwisser
Póstar: 3250
Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
Reputation: 590
Staðsetning: ::1
Staða: Tengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf Hjaltiatla » Lau 07. Jún 2025 11:50

GuðjónR skrifaði:Ekki ólíklegt að það sé valdabarátta framundan eins og @appel nefnir.

En þið „bagholders“, eru þið með eitthvað viðmiðunargengi þar sem þið mynduð selja? 125? 130? 135?


Maður skoðar að selja ef ávöxtun fer yfir 20% á næstu mánuðum, annars bíð ég þolinmóður. Það spilar inní ákvörðunartöku að maður er með fasteignalán sem maður er að greiða af og ekki sjálfsagt að stýrivextir lækki hratt og þess vegna gæti maður tekið uppá því að selja þó svo maður telji að þetta væri ágætis framtíðarfjárfesting.


Just do IT
  √

Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 17028
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 2297
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf GuðjónR » Lau 07. Jún 2025 11:57

Hjaltiatla skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ekki ólíklegt að það sé valdabarátta framundan eins og @appel nefnir.

En þið „bagholders“, eru þið með eitthvað viðmiðunargengi þar sem þið mynduð selja? 125? 130? 135?


Maður skoðar að selja ef ávöxtun fer yfir 20% á næstu mánuðum, annars bíð ég þolinmóður. Það spilar inní ákvörðunartöku að maður er með fasteignalán sem maður er að greiða af og ekki sjálfsagt að stýrivextir lækki hratt og þess vegna gæti maður tekið uppá því að selja þó svo maður telji að þetta væri ágætis framtíðarfjárfesting.


20% ávöxtun er sirka 128.
En já, flækir stöðuna ef maður skuldar á sama tíma.



Skjámynd

olihar
ÜberAdmin
Póstar: 1330
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 305
Staða: Ótengdur

Re: Ætlar Þú að Kaupa í Íslandsbanka?

Pósturaf olihar » Lau 07. Jún 2025 16:15

GuðjónR skrifaði:
Hjaltiatla skrifaði:
GuðjónR skrifaði:Ekki ólíklegt að það sé valdabarátta framundan eins og @appel nefnir.

En þið „bagholders“, eru þið með eitthvað viðmiðunargengi þar sem þið mynduð selja? 125? 130? 135?


Maður skoðar að selja ef ávöxtun fer yfir 20% á næstu mánuðum, annars bíð ég þolinmóður. Það spilar inní ákvörðunartöku að maður er með fasteignalán sem maður er að greiða af og ekki sjálfsagt að stýrivextir lækki hratt og þess vegna gæti maður tekið uppá því að selja þó svo maður telji að þetta væri ágætis framtíðarfjárfesting.


20% ávöxtun er sirka 128.
En já, flækir stöðuna ef maður skuldar á sama tíma.



Ekki gleyma að reikna 22% skattinn af hagnaðinum.
Síðast breytt af olihar á Lau 07. Jún 2025 16:26, breytt samtals 1 sinni.