Ökuprófið Rant

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
2ndSky
Nörd
Póstar: 135
Skráði sig: Mán 02. Mar 2015 09:54
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Ökuprófið Rant

Pósturaf 2ndSky » Þri 08. Apr 2025 21:45

Sælir vaktarar,

Ég er núna að taka, læra fyrir bifhjólið.
Ég fór núna í prófið um daginn og féll í fyrstu tilraun. Ekkert mál, gerist fyrir alla og ég læri bara betur og tek það aftur.
En svo fékk ég að lesa yfir prófið og þær spurningar sem ég féll á voru:

Hvar fer skráning nýbíla fram?
A)Samgöngustofa (rétt svar)
B)Frumherja
C)Sýslumanni

Ég viðurkenni að ég var ekki með þetta á hreinu og fékk vitlaust fyrir. En hvernig í ösköpunum kemur þetta akstri eða hæfni í umferð við ? Mér finnst þetta svo lágkúrulegt að það hálfa væri nóg.

Hin spurningin var eftirfarandi:
Hvað gerir þú þegar þú mætir fyrst á slysastað:
A)Hringja í 112
B)slökkva á bifreið á slysastað sem enn er í gangi (rétt svar)
c)færa slaðasa af vegi

Mér finnst þessi spurning svo út í hött en skal svosem fyrirgefa hana en ég fékk vitlaust fyrir að svara að hringja í 112 og færa ökuman af veginum. Ég veit að ekki á að hreyfa slaðasa af óþörfu en á maðurinn bara að liggja berskjaldaður á veginum ?

Og svo er ég að taka æfingarpróf á netinu hjá aka .is og við mér blasir þessi spurning:

https://ci3.googleusercontent.com/mail-img-att/AGAZnRqKbX5mIvag5O6H7rtl3KfhfMJK4MTcaXUyvwd-seUENzktogr9BWkuUbD5nt0hZPnFotxWuwqtEkkkHRHcRDhKiGirAhhGQkXfhz5IwtrRGwltfQb1R128l-XkxWG-F__4A_EIPY-ddgoTOItsPcUVQBvxSt7wYSHiWk5aT3yt2UYG0JybOnC6wpI59TDmLxvW6egYp_9KbYLCua6-xjA0jhj1e0qsAzrzBPP5Bge3QhndiKxfLGIPe7Ui_pYNPhWfG8-qbJb6DV-D4bBDZHySWseiF6NQowk4WipQUQ3hiMaiuxo9FoOIRC_ywicdAB34SCWWKfjg0rfrdavJMnxt-JhMrJZ2eULpoI6c_7Hl3NbcdNbNeHfQSnrkzS0qy8nNx0daP5727uLI0KZPj8p55d4bQLd6dcgFFNNQalOsRUjuYtlmvJ7ziB70NjIiwwp2lLrLJMS-Zx9vJAyaPy_YbFlen9i_BtEWhKHVTo7rrsiB9vD27Sw5FlxJd0ECefBViH1TnBD4y9_2IU2Da8Lqi6obyFNru6X4B4TYge5Gxn0VWOeG127jEB6S6PWAriZlyPljh9mJnba-OAaBZ2rAUr3_YFn_QyKwXfyW5AoXNyve6G6DM7lU4cN_MQwPZ4m-jX1LF8TfUAEh-9abFpTqP_6f2Nsr6fRgCrQQAu8N-5Had_IJiSQi8V34JdIwPoswXFMsCaesgP6VeRqehQYCQHxDyUR8ILeDZ4-LFBz6V_bfdqejdl2Sn2S-BWQ_7zi3ztKS4QQdru6CUau4WVIV4jAOTF28UVribt9Ma4ZjCrHoRMpureZ2pVshxUkbQP_RMoiUdGSSKT1iz-sHq2SxgDBLEqIQ0dZ-vkYmlXZ4AmhSVolO_hP-eXXWM-m5KRhSvEWahwua8wyslzA1DK-8My9TYG1rNXcx-NsR_3TcMU0qRD-tCmW3UPiFApjSWNrB9dbm9wQs9DQYbyhWauqqditjn-b52DeF-MsgheG3vUH18PdvnzJK1K1dgyPGcxa4ZDSF-Uh_ajnzd4tuHZ67=s0-l75-ft

Hvurslag rugl er þetta ? Spurningin gæti alveg eins verið hvort hlutfall ljóshærðra sé meira en þeir með dökkt hár. Svo kostar prófið 8 þúsund krónur í hvert skipti. Ég er alveg á því að það er vísvitandi verið að fella fólk sem meiri peningur komi í kassan



Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf rostungurinn77 » Þri 08. Apr 2025 22:03

Til að svala gremju þinni ( ekki) þá hefur þetta því miður ekkert með akstur eða öryggi að gera.

Ekki frekar en saga bílsins á Íslandi, sem er eitthvað sem þú þarft að læra til að fá meiraprófið.

Verð að játa að ég hefði svarað spurningu 2 með A.

Skil ekki alveg hvað B merkir. Slökkva á hvaða bíl? Mínum?



Skjámynd

Höfundur
2ndSky
Nörd
Póstar: 135
Skráði sig: Mán 02. Mar 2015 09:54
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf 2ndSky » Þri 08. Apr 2025 22:21

rostungurinn77 skrifaði:Til að svala gremju þinni ( ekki) þá hefur þetta því miður ekkert með akstur eða öryggi að gera.

Ekki frekar en saga bílsins á Íslandi, sem er eitthvað sem þú þarft að læra til að fá meiraprófið.

Verð að játa að ég hefði svarað spurningu 2 með A.

Skil ekki alveg hvað B merkir. Slökkva á hvaða bíl? Mínum?


Nei semsagt slökkva á ökutæki þess sem lenti í slysi (til að hindra frekari slys áætla ég)



Skjámynd

olihar
ÜberAdmin
Póstar: 1330
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 305
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf olihar » Þri 08. Apr 2025 22:32

Ég myndi 100% hringja í 112 fyrst, ég skal falla Á öllum prófum fyrir að voga mér að gera það.



Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1276
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 144
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf Minuz1 » Þri 08. Apr 2025 22:58

Tryggja slysstað, það gæti hugsanlega verið eitthvað að ökutæki sem er nýbúið í árekstri.

Ef þú ert eini maðurinn á slysstaðnum fyrir utan hinn slasaða þá væri það frekar súrt að verða líka slasaður.
Þetta er hluti af skyndihjálpinni.


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það

Skjámynd

olihar
ÜberAdmin
Póstar: 1330
Skráði sig: Mán 13. Ágú 2007 13:23
Reputation: 305
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf olihar » Þri 08. Apr 2025 23:00

Minuz1 skrifaði:Tryggja slysstað, það gæti hugsanlega verið eitthvað að ökutæki sem er nýbúið í árekstri.

Ef þú ert eini maðurinn á slysstaðnum fyrir utan hinn slasaða þá væri það frekar súrt að verða líka slasaður.
Þetta er hluti af skyndihjálpinni.


Tryggja slysstað er samt ekki möguleiki.



Skjámynd

appel
Stjórnandi
Póstar: 5780
Skráði sig: Fös 13. Jún 2003 16:46
Reputation: 1078
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf appel » Mið 09. Apr 2025 00:46

Sammála þér, þetta eru frekar skrítnar spurningar. Skráning nýbíla? Ég hef aldrei gert það. Umboðin væntanlega sjá um það fyrir þig.

Svo þetta með að slökkva á bíl sem hefur lent í árekstri, þarna er alveg horft framhjá því hvernig aðstæðurnar eru.

T.d. er mögulegt fyrir þig að gera slíkt? Hvað ef bíllinn er bara svo kraminn að það er ómögulegt að komast inn í hann til að slökkva. Svo eru margir bílar orðnir rafbílar þannig að þú gætir verið að setja þig í stórhættu að reyna smeygja þér inn í stórskemmdan rafbíl sem gæti gefið þér banvænt stuð eða fuðrað upp á sekúndu.
Eða að bíllinn hangir fram af brú, áttu að klifra upp á hann og hvaðeina?? :D


*-*

Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1276
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 144
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf Minuz1 » Mið 09. Apr 2025 06:16

olihar skrifaði:
Minuz1 skrifaði:Tryggja slysstað, það gæti hugsanlega verið eitthvað að ökutæki sem er nýbúið í árekstri.

Ef þú ert eini maðurinn á slysstaðnum fyrir utan hinn slasaða þá væri það frekar súrt að verða líka slasaður.
Þetta er hluti af skyndihjálpinni.


Tryggja slysstað er samt ekki möguleiki.


Þetta er hluti af því að tryggja slysstað, þú munt ekki hafa leiðbeiningar um hvað er á slysstað þegar þú kemur þangað.

Þetta gæti verið bifreið, hjól, flugvél, þyrla.

Það að geta ekki svarað þessu rétt segir mér og prófdómurum að þú hafir ekki skilið hvað var verið að segja við þig og er réttilega rangt svar.


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það

Skjámynd

Höfundur
2ndSky
Nörd
Póstar: 135
Skráði sig: Mán 02. Mar 2015 09:54
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf 2ndSky » Mið 09. Apr 2025 11:34

Minuz1 skrifaði:
olihar skrifaði:
Minuz1 skrifaði:Tryggja slysstað, það gæti hugsanlega verið eitthvað að ökutæki sem er nýbúið í árekstri.

Ef þú ert eini maðurinn á slysstaðnum fyrir utan hinn slasaða þá væri það frekar súrt að verða líka slasaður.
Þetta er hluti af skyndihjálpinni.


Tryggja slysstað er samt ekki möguleiki.


Þetta er hluti af því að tryggja slysstað, þú munt ekki hafa leiðbeiningar um hvað er á slysstað þegar þú kemur þangað.

Þetta gæti verið bifreið, hjól, flugvél, þyrla.

Það að geta ekki svarað þessu rétt segir mér og prófdómurum að þú hafir ekki skilið hvað var verið að segja við þig og er réttilega rangt svar.


Ok en hvað finnst þér og prófdómurum um þessa spurningu ?
https://imgur.com/a/SksdYU3



Skjámynd

rostungurinn77
spjallið.is
Póstar: 424
Skráði sig: Fim 30. Nóv 2023 12:01
Reputation: 146
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf rostungurinn77 » Mið 09. Apr 2025 11:57

2ndSky skrifaði:
Ok en hvað finnst þér og prófdómurum um þessa spurningu ?
https://imgur.com/a/SksdYU3


Þetta virðist vera próf sem er samið af einhverjum sem er embættismaður en aðallega í áskrift að launum.
Síðast breytt af rostungurinn77 á Mið 09. Apr 2025 11:57, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Minuz1
Kerfisstjóri
Póstar: 1276
Skráði sig: Fös 17. Okt 2003 21:44
Reputation: 144
Staðsetning: Fyrir framan bílinn með blikkandi blá ljós.
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf Minuz1 » Mið 09. Apr 2025 17:55

2ndSky skrifaði:
Minuz1 skrifaði:
olihar skrifaði:
Minuz1 skrifaði:Tryggja slysstað, það gæti hugsanlega verið eitthvað að ökutæki sem er nýbúið í árekstri.

Ef þú ert eini maðurinn á slysstaðnum fyrir utan hinn slasaða þá væri það frekar súrt að verða líka slasaður.
Þetta er hluti af skyndihjálpinni.


Tryggja slysstað er samt ekki möguleiki.


Þetta er hluti af því að tryggja slysstað, þú munt ekki hafa leiðbeiningar um hvað er á slysstað þegar þú kemur þangað.

Þetta gæti verið bifreið, hjól, flugvél, þyrla.

Það að geta ekki svarað þessu rétt segir mér og prófdómurum að þú hafir ekki skilið hvað var verið að segja við þig og er réttilega rangt svar.


Ok en hvað finnst þér og prófdómurum um þessa spurningu ?
https://imgur.com/a/SksdYU3


Mér finnst að þetta ætti ekki að vera á skriflegu ökuprófi, kemur hæfni þinni til að stjórna bifreið ekkert við.
Er þetta ekki úr stikkprófi úr ökuskólanum sjálfum?

Nb. Ég er ekki prófdómari, bara atvinnubílstjóri
Síðast breytt af Minuz1 á Mið 09. Apr 2025 17:56, breytt samtals 1 sinni.


Helsti öryggisgalli í windows er að fólk notar það

Skjámynd

einarhr
Vaktari
Póstar: 2070
Skráði sig: Þri 27. Maí 2008 10:12
Reputation: 306
Staðsetning: 110 Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf einarhr » Mið 09. Apr 2025 20:43

Ég tók gamla ökuprófið, það voru mjög margar spurningar en ég fékk 2 villur og þar var spurt eitthvað á þennan veginn.
Ef það kemur bíll á móti þér á vitlausum vegahelmingi og er líklegur til að klessa á þig, hvað gerir þú? Það voru 4 svör ef að ég man og ég setti x í að forðast árekstur með því að keyra út í kant eða af veginum en það var ekki samþykkt og ég fékk 2 villur, eina fyrir að svara vitlaust og svo refsistig fyrir að velja ekki rétt. Ég var ekki sáttur og stóð á mínu 17 ára gamall og krafðist útskýringa , það endaði með því að prófdómarinn bakkaði með þetta og ég fór í gengum þetta villulaust.

Ps. þessi prófdómari var svo rekinn með skömm og lögsóttur fyrir að mismuna kvennmönnum í ökutímum og prófum.

Pss, þegar ég mætti í verklega prófið hjá honum seinna um daginn þá keyrði ég hann frá gömlu lögreglustöðinni á Selfossi þar sem verklega prófið var tekið á Hótel Selfoss þar sem hann fór inn í kaffi og sígó og svo keyrði ég til baka meðfram Ölfusánni á nýju Lögreglustöðina og sótti ökuskírteinið, næst á eftir mér var skólasystir mín sem var látin nefna allt í vélarrýminu og var látin keyra út um allar trissur og leggja alskonar í stæði og féll svo.
Síðast breytt af einarhr á Mið 09. Apr 2025 20:53, breytt samtals 2 sinnum.


| Ryzen 7 5800X 32GB |RTX 3070Ti| Server i7 6700K 16GB |

Skjámynd

Hrotti
Geek
Póstar: 871
Skráði sig: Mán 22. Mar 2010 20:05
Reputation: 158
Staðsetning: Reykjanesbær
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf Hrotti » Mið 09. Apr 2025 21:41

Þetta er ótrúlegt skítabatterí sem stendur fyrir þessum prófum og hagnast á því að fella sem flesta. Mikið af þessum spurningum snúast bara um lesskilning og tengjast bílum/umferð ekki neitt.


Verðlöggur alltaf velkomnar.

Skjámynd

Lexxinn
/dev/null
Póstar: 1473
Skráði sig: Sun 22. Nóv 2009 12:26
Reputation: 177
Staðsetning: Júpíter
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf Lexxinn » Mið 09. Apr 2025 23:58

:hmm
2ndSky skrifaði:Hin spurningin var eftirfarandi:
Hvað gerir þú þegar þú mætir fyrst á slysastað:
A)Hringja í 112
B)slökkva á bifreið á slysastað sem enn er í gangi (rétt svar)
c)færa slaðasa af vegi


Svo lengi sem maður hefur ekki menntun eða færni í mati á slösuðum er best að láta þá vera þar semeir eru svo lengi sem þeim stafi ekki frekari hætta af núverandi stellingu/staðsetningu, þá a ég við eins og eldur, eitrun etc. Áverkar geta verið lúmskir og óstabílir svo ekki sé gott að hreyfa við fólki án þess að huga að réttum atriðum.



Skjámynd

natti
Tölvutryllir
Póstar: 677
Skráði sig: Fös 10. Jan 2003 09:59
Reputation: 93
Staðsetning: 107
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Ökuprófið Rant

Pósturaf natti » Fös 11. Apr 2025 11:28

Nokkur innlegg:

Eitt atriði sem fólk áttar sig enganveginn á fyrr en það er í þeirri aðstöðu sjálft:
Það er lúmskt erfitt að búa til góðar spurningar.

Það eru allsskonar atriði sem þarf að huga að, bæði varðandi málfar og réttleika, og að röngu svörin séu alltaf röng, að spurningin sé með rétt erfiðleikastig, og fleira.
Og þegar þú þarft kannski að láta græja 60 mismunandi spurningar til að búa til þrjú 20 spurninga próf, og lætur 1-2 aðila um það, þá er oft auðvelt að byrja en eftir spurningu 5 þá er maður bara í writers-block og farinn að efast um tilvist heimsins.

Í sumum tilfellum eru spurningar búnar til út frá námsefni, en í sumum tilfellum eru spurningar og námsefnið búið til í sitthvoru lagi út frá sameiginlegum forsendum.
Dæmi um seinni nálgunina gæti verið próf um umferðarlög, aðili A býr til kennslubók um hvernig túlka eigi umferðarlög, og aðili B býr til próf og notar lögin til hliðsjónar, en ekki kennslubókina.
Í þannig tilfelli er oft auðvelt að lenda í að vera með spurningar sem að kennslubókin tekur enganveginn á.

Hvað skriflegt ökurpóf varðar, eftir því sem ég hef séð bæði sem próftaki (hef tekið skriflega prófið 3x) og foreldri, þá hafa prófin verið tengd námsefninu og svör við spurningum má nánast alltaf finna í námsefninu sjálfu.
Ef að hluti af námsefninu eru rannsóknir um mun kynjanna í umferðinni og statistics um slys, þá má alveg gera ráð fyrir slíkri spurningu á prófi.
Er það relevant? Kannski ekki.


2ndSky skrifaði:Hvað gerir þú þegar þú mætir fyrst á slysastað:


Með tilliti til þess að hver mínúta getur skipt máli, þá má alveg færa rök fyrir því að hringja í 112 sé alltaf fyrsta atriði á dagskrá, því þegar þú kemur "að slysstað" þá geturu vippað út símanum og byrjað símtali á speaker á meðan þú stöðvar og ferð að bílunum til að kanna aðsstæður, sem myndi þýða að sjúkrabíll myndi mæta fyrr á vettvang.

En út frá námsefni í fyrstu hjálp hlutanum, þá er það skref #3 að hringja í 112.
Skref #1 er að tryggja slysstað. (leggja fyrir, slökkva á bílum, og svo framvegis)
Skref #2 er að athuga með alla slasaða, athuga meðvitund og hvork að viðkomandi andi, og bregðast við ef áverkar eru lífshættulegir.
Skref #3 er að hringja í 112.
Skref #4 er að veita skyndihjálp

Þessi röð er ekki röng, en hún tekur ekki mið af því að fyrstu 5-10sec sem þú sérð slysstaðinn þá ertu meðvitað og ómeðvitað að meta aðstæður og bregst við í samræmi við þær.
T.d. ef þú sérð bíl í gangi og það lekur bensín undan bílnum á jörðinni, þá myndiru líklega hlaupa til að reyna að slökkva á bílnum sem þitt fyrsta verk.
(Tryggja slysstað, fyrsta atriði)

Í skrefi 1-2 geta auðveldlega tapast 10 mínútur ef þú ert einn á ferð.
Í almennu skyndihjálparnámskeiði er hinsvegar eitt af fyrstu atriðunum að taka stjórn á vettvangi ef enginn annar er með stjórnina, og úthluta verkefnum.
"Þú1 hringir í 112, ég skoða þennan bíl, og þú2 skoðar hinn bílinn"
Þannig eru skref 1-3 unnin samhliða.

En bottom line, ef þú lest námsefnið fyrir það próf sem þú ert að fara í, þá svararu miðað við námsefnið.


Mkay.