Er bara verið að stytta leiðina fyrir fólk sem býr í 101 upp í sumarbústað?
halipuz1 skrifaði:Haha, það eru u.þ.b 7-10% af öllu Akranesi sem vinnur í Reykjavík síðast þegar ég vissi. Rosalegt hvað fólk gleymir alltaf skaganum :/
agnarkb skrifaði:Finnst eins og ég eigi minningu á því að hafa heyrt um Sundabraut í fyrsta skipti nýkreistur út úr mömmu seint á níunda áratug síðustu aldar, svo aftur mikið um fermingu og svo töluvert núna síðustu misseri. Þykir það líklegt að ég hvíli í kaldri gröf og saddur lífdagal í hárri elli áður en einhver meiriháttar hreyfing á þessu á sér stað.
GuðjónR skrifaði:Ég efast um að þessi Sundabraut verði nokkurn tíma að veruleika.
Með því að auka fjárfestingu í samgöngum og hefja kraftmiklar framkvæmdir um land allt. Ríkisstjórnin mun rjúfa kyrrstöðu í jarðgangagerð og vinna á viðhaldsskuld í vegakerfinu. Ráðist verður í mikilvægar úrbætur í samræmi við samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins til að greiða fyrir umferð á stofnvegum, efla almenningssamgöngur og styðja við fjölbreytta ferðamáta. Hafist verður handa við framkvæmd Sundabrautar og verkefnið fjármagnað með innheimtu veggjalda.
rapport skrifaði:halipuz1 skrifaði:Haha, það eru u.þ.b 7-10% af öllu Akranesi sem vinnur í Reykjavík síðast þegar ég vissi. Rosalegt hvað fólk gleymir alltaf skaganum :/
En er það fólk sem vinnur í miðbænum?
Vinn sjálfur í KEF og tengi við að hafa greiðfæran og góðan veg í vinnuna, en snemma á morgnana er 1/4 af tímanum innabæjartraffík, seinnipartinn líklega um 1/3 og á slæmum tíma alveg 1/2 upp í 2/3.
Þetta tengist líka borginni á versta stað, var að vinna í Holtagörðum 2017-2018 og þar er traffíkin einna verst í bænum á álagstímum (það er kannski hugmyndin, að veita íbúum Mosó, Grafarvogi og Akranesi framhjá... það meikar sens).
halipuz1 skrifaði:
Fyrir okkur "landsbyggða" fólk þá er bara geggja að fá hvaða styttingu sem er, en þetta gerist aldrei held ég nema bara til að halda einhverjum örfáum vinum í vinnu við að dreyma þetta
depill skrifaði:halipuz1 skrifaði:
Fyrir okkur "landsbyggða" fólk þá er bara geggja að fá hvaða styttingu sem er, en þetta gerist aldrei held ég nema bara til að halda einhverjum örfáum vinum í vinnu við að dreyma þetta
Enga trú að Sundabrautin verði að veruleika, Reykjavík er búin að breytast svo mikið síðan við ræddum þetta fyrst. Tvöföldun Hvalfjarðagangana finnst mér mikið raunhæfara og betri tenging frá Reykjavík til Suðurlands, enda er alltof mikið lokað þar.
Ég bara skil ekki afhverju við getum ekki fengið þessa hérna framkvæmd. Hún er ekki það dýr, er með mikilli umferð og myndi stytta leiðina heilan helling.
CleanShot 2024-12-21 at 16.16.40.png
depill skrifaði:
Ég bara skil ekki afhverju við getum ekki fengið þessa hérna framkvæmd. Hún er ekki það dýr, er með mikilli umferð og myndi stytta leiðina heilan helling.
CleanShot 2024-12-21 at 16.16.40.png
depill skrifaði:Ég bara skil ekki afhverju við getum ekki fengið þessa hérna framkvæmd. Hún er ekki það dýr, er með mikilli umferð og myndi stytta leiðina heilan helling.
CleanShot 2024-12-21 at 16.16.40.png
GullMoli skrifaði:Miðað við hvað Sæbrautin er mikill umferðartappi, þá skil ég ekki hvernig þetta bætir nokkurn skapaðan hlut á álagstímum. Held að minnsta umferðin sé að koma frá Skaganum og Kjalarnesi… Þetta kannski ýtir Mosó í að keyra meira í gegnum Grafarvoginn, sem þolir nú ekkert mikið meira umferðarflæði í núverandi mynd.

halipuz1 skrifaði:GuðjónR skrifaði:Ég efast um að þessi Sundabraut verði nokkurn tíma að veruleika.
Það er einmitt sem ég hef hugsað, það er einhverjir samt að vinna við þessa pípudrauma, skatt peningarnir okkar sem fara í það að halda einhverjum nokkrum aðilum í vinnu.
Sem skagamaður þá myndi ég alveg vera til í þetta en þetta gerist örugglega ekki á mínum tíma. Bara ef það væru almennilegar almenningssamgöngur, þá myndi ég sleppa einkabílnum tbh.