
Ég er með 2016 árg. af Subaru Forester - ekinn 61 þús. km. Ég er búin að eiga hann frá upphafi, alltaf farið með hann í allar þjónustuskoðanir og smurningu á réttum tíma. Lítið ekinn.
Ég fór með hann í smurningu um daginn og lét kanna svona lága smelli sem koma þegar ég sný stýrinu, heyri ekki við akstur, bara þegar bíllinn er kyrrstæður og ég sný stýrinu eða ef ég er að bakka í stæði og sný stýrinu. Þeir segja að það þurfi að skipta um stýrismaskínu - sem er frekar dýr viðgerð

Er "eðlilegt" að þessi stýrismaskína sé farin í bíl sem verður 7 ára í október og ekinn svona lítið? Ég hef aldrei lent í þessu með neinn annan bíl sem ég hef átt. Bíllinn er að öðru leiti í mjög fínu lagi.