Ég ætla að skilja þetta eftir hérna.
Bara svona ef fólk heldur virkilega að 8 metra hóll sé eitthvað svaka vísindalegur

hagur skrifaði:Eigum við ekki bara að gera ráð fyrir því að þarna sé að verki fólk sem veit eitthvað aðeins hvað það er að gera?
Miðlunarlón grunnskilyrði fyrir hraunskildi
Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur segir á Facebook í dag að það sé að myndast miðlunarlón við gíginn. Þaðan vellur yfir í mestu kvikustrókahrinunum. Þorvaldur segir að þetta sé athyglisvert því að myndun svona lóns sé grunnskilyrði fyrir myndun hraunskjaldar eða dyngju.
jonfr1900 skrifaði:Það er komin útskýring á því hvað er að gerast í miðju hrauninu.Miðlunarlón grunnskilyrði fyrir hraunskildi
Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur segir á Facebook í dag að það sé að myndast miðlunarlón við gíginn. Þaðan vellur yfir í mestu kvikustrókahrinunum. Þorvaldur segir að þetta sé athyglisvert því að myndun svona lóns sé grunnskilyrði fyrir myndun hraunskjaldar eða dyngju.
Leiðigarðar og stíflur koma til greina í Nátthaga (Rúv.is)
Svona eldgos standa yfir í áratugi og það er alveg eins gott að fara að hugsa um það hvert á að færa Grindavík þar sem það er væntanlega innan þess svæðis sem fer undir hraun eftir 10 til 30 ár. Þó gæti eldgosið aukist á næstu mánuðum og því stytt þennan tíma. Ég reyndar held að þarna sé að byggjast upp eldkeila svipað og það sem sést á Snæfellsnesi þó að þarna í fréttinni sem talað um dyngju eldstöð. Hvernig þetta endar verður að koma í ljós en það mun taka 50 ár væntanlega að sjá fram á þann enda.
zetor skrifaði:jonfr1900 skrifaði:Það er komin útskýring á því hvað er að gerast í miðju hrauninu.Miðlunarlón grunnskilyrði fyrir hraunskildi
Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur segir á Facebook í dag að það sé að myndast miðlunarlón við gíginn. Þaðan vellur yfir í mestu kvikustrókahrinunum. Þorvaldur segir að þetta sé athyglisvert því að myndun svona lóns sé grunnskilyrði fyrir myndun hraunskjaldar eða dyngju.
Leiðigarðar og stíflur koma til greina í Nátthaga (Rúv.is)
Svona eldgos standa yfir í áratugi og það er alveg eins gott að fara að hugsa um það hvert á að færa Grindavík þar sem það er væntanlega innan þess svæðis sem fer undir hraun eftir 10 til 30 ár. Þó gæti eldgosið aukist á næstu mánuðum og því stytt þennan tíma. Ég reyndar held að þarna sé að byggjast upp eldkeila svipað og það sem sést á Snæfellsnesi þó að þarna í fréttinni sem talað um dyngju eldstöð. Hvernig þetta endar verður að koma í ljós en það mun taka 50 ár væntanlega að sjá fram á þann enda.
Ef það kemur til þess að hraun renni að byggðarlögum, já jafnvel yfir heilt byggðarlag, þrátt fyri tilraunir með varnargarða og kælingar. Þá býst ég við þvi að flestir fari og starfsemi flytjist til Reykjanessbæjar.
mikkimás skrifaði:Vogar eru líka að fara undir á næstu 3 mánuðum.
zetor skrifaði:En er ekki töluverð hækkun við enda Nátthaga? þarf hraunið ekki að bunka sig töluvert upp í dalnum áður en það fer að renna yfir suðurlandsveg?