Greiðsukorta app, hvað er best?

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
krissdadi
Geek
Póstar: 824
Skráði sig: Sun 24. Jan 2010 11:50
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf krissdadi » Fim 05. Nóv 2020 13:47

Sælir Vaktar

Ég er að velta fyrir mér greiðslukorta og greiðslu öppum

Ég hef verið að nota korta appið frá Landsbankanum og það er gjörsamlega að gera mig brjálan virkar bara stundum þarf oft að enduræsa símann til að fá það til að virka (gaman þegar það er röð á eftir manni í búinni) og núna sinjar það öllum greiðslum :pjuke

Ég er búinn að henda því úr símanum og ætla að spyrja ykkur hvort það sé eitthvað betra þarna úti sem ég get notað?

Hefði viljað geta notað Samsung pay en það er víst ekki í boði hér.


Með fyrirfram þökk



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf Viktor » Fim 05. Nóv 2020 14:00

Apple Pay

Búinn að nota það síðan það kom út og það hefur aldrei klikkað


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB


kjartanbj
Tölvutryllir
Póstar: 683
Skráði sig: Fim 24. Sep 2009 12:42
Reputation: 128
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf kjartanbj » Fim 05. Nóv 2020 14:06

krissdadi skrifaði:Sælir Vaktar

Ég er að velta fyrir mér greiðslukorta og greiðslu öppum

Ég hef verið að nota korta appið frá Landsbankanum og það er gjörsamlega að gera mig brjálan virkar bara stundum þarf oft að enduræsa símann til að fá það til að virka (gaman þegar það er röð á eftir manni í búinni) og núna sinjar það öllum greiðslum :pjuke

Ég er búinn að henda því úr símanum og ætla að spyrja ykkur hvort það sé eitthvað betra þarna úti sem ég get notað?

Hefði viljað geta notað Samsung pay en það er víst ekki í boði hér.


Með fyrirfram þökk



Ég lenti í sama, fékk alltaf synjað, henti út og setti inn aftur og virkar núna, held þú hafir engan kost um annað app nema skipta yfir í apple



Skjámynd

Höfundur
krissdadi
Geek
Póstar: 824
Skráði sig: Sun 24. Jan 2010 11:50
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf krissdadi » Fim 05. Nóv 2020 14:10

Sallarólegur skrifaði:Apple Pay

Búinn að nota það síðan það kom út og það hefur aldrei klikkað


Já konan er með apple pay og það hefur ekki verið til vandræða hjá henni.

En núna er flóknara nota það vegna andlisgríma

Ég er með Samsung síma þannig að apple pay er ekki í boði



Skjámynd

Viktor
Internetsérfræðingur
Póstar: 6774
Skráði sig: Mán 04. Apr 2005 11:01
Reputation: 935
Staðsetning: https://notendur.hi.is/vjh2/
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf Viktor » Fim 05. Nóv 2020 14:30

Því miður er það algerlega undir Google og Samsung komið, hvenær þau leyfa Íslandi að vera með :uhh1


I wish I was cool enough to not care how much I care about pretending not to care about things


Macbook Pro 13" M2 16GB 512GB

Ryzen 3600X 2070S 16GB

Skjámynd

Tiger
Besserwisser
Póstar: 3838
Skráði sig: Sun 16. Mar 2003 13:22
Reputation: 265
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf Tiger » Fim 05. Nóv 2020 14:55

krissdadi skrifaði:
Sallarólegur skrifaði:Apple Pay

Búinn að nota það síðan það kom út og það hefur aldrei klikkað


Já konan er með apple pay og það hefur ekki verið til vandræða hjá henni.

En núna er flóknara nota það vegna andlisgríma


Apple watch kemur þar sterkt inn, bölvaði einmitt grímunni fyrst, en svo auðvitað notar maður bara úrið.


Mynd

Skjámynd

Prentarakallinn
Ofur-Nörd
Póstar: 274
Skráði sig: Mið 01. Jún 2011 13:22
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf Prentarakallinn » Fim 05. Nóv 2020 16:09

Landsbanka appið (Kort) er hörmulegt. Get ekki beðið eftir að Google Pay komi til landsins


Ryzen 5 2600X|MSI B350 TOMAHAWK|GTX 1070 8GB|Corsair Vengeance 16GB 2666MHz|AOC C24G1 144hz|Corsair GS600|Corsair Carbide 400C|AMD Wraith Prism


hilmard94
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Mið 06. Nóv 2013 19:20
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf hilmard94 » Fim 05. Nóv 2020 16:22

Ég nota bara Arion appið það virkar mjög vel hjá mér er með Oneplus 7 pro :)



Skjámynd

Höfundur
krissdadi
Geek
Póstar: 824
Skráði sig: Sun 24. Jan 2010 11:50
Reputation: 18
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf krissdadi » Fim 05. Nóv 2020 18:55

hilmard94 skrifaði:Ég nota bara Arion appið það virkar mjög vel hjá mér er með Oneplus 7 pro :)

Virka Landsbankakort í Arion appinu?




steinarorri
Gúrú
Póstar: 565
Skráði sig: Mán 25. Jan 2010 23:54
Reputation: 45
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf steinarorri » Fim 05. Nóv 2020 18:57

Ég lendi í þessu sama með Kort appinu frá Landsbankanum, alveg skelfilegt þegar maður er kominn á kassann



Skjámynd

GuðjónR
Stjórnandi
Póstar: 16263
Skráði sig: Fim 29. Ágú 2002 18:46
Reputation: 1986
Staðsetning: Hérna
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf GuðjónR » Fim 05. Nóv 2020 19:30

Ég nota alltaf Apple Watch þar sem það er í boði.
Landsbankaappið er gallað, hvít rönd efst.
Viðhengi
5F1DDA96-9F3A-4C30-9F73-F9B224D7AE90.jpeg
5F1DDA96-9F3A-4C30-9F73-F9B224D7AE90.jpeg (342.76 KiB) Skoðað 2092 sinnum



Skjámynd

ChopTheDoggie
vélbúnaðarpervert
Póstar: 979
Skráði sig: Þri 15. Des 2015 01:27
Reputation: 105
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf ChopTheDoggie » Fim 05. Nóv 2020 19:40

Sallarólegur skrifaði:Apple Pay

Búinn að nota það síðan það kom út og það hefur aldrei klikkað


Þetta er einmitt ástæðan því ég færði mig yfir í Apple en datt svo inní eco-systemið.. :guy
Er ekki annars Google Pay eitthvað líka? Eða er það bara eins og Apple Pay þar sem þú þarft að eiga Google síma?
Síðast breytt af ChopTheDoggie á Fim 05. Nóv 2020 19:42, breytt samtals 1 sinni.


Ryzen 7 5800X | ASRock B550M Steel Legend | Corsair 32GB (2x16) LPX 3200Mhz | RTX 3060ti | Seasonic Focus+ Gold | ATX Lancool II

Skjámynd

Onyth
Græningi
Póstar: 49
Skráði sig: Lau 10. Okt 2015 20:33
Reputation: 16
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf Onyth » Fim 05. Nóv 2020 19:43

Íslandsbanka appið. Aldrei klikkað.




hilmard94
Fiktari
Póstar: 63
Skráði sig: Mið 06. Nóv 2013 19:20
Reputation: 8
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf hilmard94 » Fim 05. Nóv 2020 19:44

krissdadi skrifaði:
hilmard94 skrifaði:Ég nota bara Arion appið það virkar mjög vel hjá mér er með Oneplus 7 pro :)

Virka Landsbankakort í Arion appinu?


Ég veit að það er hægt að tengja aðra banka við appið hjá þeim, en veit ekki hvort kort færast yfir. Ég er bara með kort frá Arion. En þú getur kannski prófað það :)



Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf hagur » Fim 05. Nóv 2020 19:56

Ég er búinn að gefast upp á Landsbankaappinu líka. Ekki hægt að treysta á þetta. Þegar maður þarf að vera með veskið og kortin á sér sem backup, þá er þetta fullkomlega tilgangslaust.

Þetta reyndar virkaði vel á tímabili, í nokkrar vikur/mánuði í sumar.

En svo er allt búið að fara úrskeiðis sem getur farið úrskeiðis í þessu Landsbankaappi hjá mér:

1. Loggaðist út og læstist úti. Þurfti að hafa samband við Landsbankann og þau þurftu að eyða aðganginum mínum alveg út úr sínum kerfum (!) svo ég gæti enrollað inn í þetta aftur

2. Hættir að "muna eftir mér" og þarf að logga mig inn í hvert skipti. Óþolandi!

3. Margoft búinn að enrolla fingrafaralesarann í þetta, en það er upp og ofan hvort það virki til að komast inn, er oftast beðinn um user/pass og eins og ég hafi aldrei skráð fingrafarið inn

4. Skráði inn fyrirframgreitt kreditkort/gjafakort sem ég fékk að gjöf. Ætlaði svo að nota það til að versla. Sem virtist alveg ganga, opnaði appið, valdi þetta kort og smellti á "Pay in store". Nei, nei, tók svo eftir því löngu seinna að greiðslan var tekin út af aðalkortinu, en ekki gjafakortinu.

5. Þetta er það nýjasta: Fæ bara geiðslu hafnað á allt. Sama hvaða kort ég nota og sama hvaða upphæðir um ræðir. Ég nenni ekki einu sinni að fara að henda þessu út og setja allt upp aftur, bara til að fá þetta til að virka í nokkra daga og svo endurtekur ferlið sig.

Myndi maður sætta sig við að venjuleg kort og venjulegir posar væru svona óáreiðanlegir? Bara 20% séns á því að ná að klára greiðslu í hvert skipti sem maður fer útí búð? Held ekki ....

Jæja, búinn að pústa. Annars góður bara :)




Viggi
FanBoy
Póstar: 735
Skráði sig: Fim 26. Apr 2007 02:04
Reputation: 110
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf Viggi » Fim 05. Nóv 2020 20:13

Er alltaf að lenda í því að geta ekki borgað með landsbankaappinu og nfc en virkaði fínt áður. Svo var næst maður á eftir mér í búðinni með nfc kort og það flaug í gegn. Nett pirrandi.


B450M Steel Legend (AM4). AMD Ryzen 5 3600X. TEAM TM8FP4512G (SSD). 2 tb HDD. 3 tb HDD. 4 tb HDD GeForce RTX 2060 SUPER. 16 gb 3600 mhz RAM.


Cascade
FanBoy
Póstar: 755
Skráði sig: Lau 04. Des 2004 00:02
Reputation: 36
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf Cascade » Fim 05. Nóv 2020 23:17

Ég var með Landsbanka appið þegar ég var með Samsung
Notaði það ávalt og aldrei kort og það bara klikkaði aldrei

Hef haft iPhone í ár núna og notað Apple pay
Það hefur sömuleiðis aldrei klikkað



Skjámynd

beatmaster
Besserwisser
Póstar: 3071
Skráði sig: Fös 14. Jan 2005 15:46
Reputation: 42
Staðsetning: Við hliðina á nýju tölvunni minni
Hafðu samband:
Staða: Ótengdur

Re: Greiðsukorta app, hvað er best?

Pósturaf beatmaster » Fös 06. Nóv 2020 08:59

Ég held að allir geti notað Arion appið, það virkar fínt hjá mér.


Menn rugla saman tveimur orðum, víst og fyrst. Hið fyrrnefnda er komið af orðinu vissa en hitt er úr talmáli og haft í merkingunni: úr því að, þar sem (um orsök). Dæmi: Fyrst að ég get þetta þá getur þú þetta, þ.e.a.s: Þar eð ég get þetta þá getur þú þetta. En víst er notað um vissu: Það er nokkuð víst að ég geti gert þetta.