Síur á heimasíðu Elkó (nöldur)

Allt utan efnis

Höfundur
mikkimás
Gúrú
Póstar: 550
Skráði sig: Mán 03. Feb 2014 18:02
Reputation: 102
Staða: Ótengdur

Síur á heimasíðu Elkó (nöldur)

Pósturaf mikkimás » Lau 17. Okt 2020 18:44

Finnst einhverjum öðrum skrítið að hægt sé að sía eftir verð, lit og framleiðanda, en ekki eftir því hvaða síma vörurnar passa við?

https://elko.is/simar-og-gps/simahulstur-og-veski?p=1

Mér finnst eins og sía eftir viðeigandi síma sem vara passar við hefði átt að vera nr. 1 á aðgerðalista forritarans. Þetta eru eftir allt saman tæplega 500 atriði.




mjolkurdreytill
Ofur-Nörd
Póstar: 267
Skráði sig: Sun 14. Jún 2020 21:21
Reputation: 59
Staða: Ótengdur

Re: Síur á heimasíðu Elkó (nöldur)

Pósturaf mjolkurdreytill » Lau 17. Okt 2020 19:04

ég hef alveg skoðað betri heimasíður en elko.is



Skjámynd

Njall_L
Stjórnandi
Póstar: 1244
Skráði sig: Mið 29. Okt 2014 20:58
Reputation: 372
Staða: Ótengdur

Re: Síur á heimasíðu Elkó (nöldur)

Pósturaf Njall_L » Lau 17. Okt 2020 19:07

Vissulega eru síurnar hjá Elko oft ekki nægilega góðar en þeir fá þó kredid frá mér fyrir að vera með síur. Alltof margar vefverslanir, hérlendis og erlendis, sem bjóða ekki upp á neina síunarmöguleika.


Löglegt WinRAR leyfi


bigggan
spjallið.is
Póstar: 452
Skráði sig: Fim 05. Maí 2011 17:43
Reputation: 34
Staða: Ótengdur

Re: Síur á heimasíðu Elkó (nöldur)

Pósturaf bigggan » Lau 17. Okt 2020 19:31

Finnist alltaf heimasiðu Elko herna vera alveg nokkur ár á eftir Elko erlendis ef maður skoðar það stundum... Það kemur vonandi einhverntíma hingað, þar er allar siurnar sem þú ert að leita eftir i boði...



Skjámynd

ArnarF
Vélbúnaðarníðingur
Póstar: 318
Skráði sig: Þri 04. Mar 2008 20:21
Reputation: 12
Staða: Ótengdur

Re: Síur á heimasíðu Elkó (nöldur)

Pósturaf ArnarF » Lau 17. Okt 2020 19:40

Var einmitt að skoða Elko.is í fyrradag, ákvað að nýta mér filterinn og vel "Samsung" svo þegar ég ætlaði að velja LG til samanburðar þá var það ekki í boði.
Það sama á við um litinn, velur "hvítt" og þá er það eina sem þú færð að velja nema ýta á "x" og velja annan lit.

Fannst alveg nett pirrandi að geta ekki valið nokkra framleiðendur og liti til þess að geta gert samstundis samanburð



Skjámynd

ChopTheDoggie
vélbúnaðarpervert
Póstar: 979
Skráði sig: Þri 15. Des 2015 01:27
Reputation: 105
Staðsetning: Höfuðborgarsvæðið
Staða: Ótengdur

Re: Síur á heimasíðu Elkó (nöldur)

Pósturaf ChopTheDoggie » Lau 17. Okt 2020 20:40

Það er annars hægt að leita af símahulstur með því að skrifa t.d.: Samsung S20 Ultra hulstur
Not ideal but gets the job done :happy

Væri samt fínt að fá fleiri síur.
Viðhengi
trix.PNG
trix.PNG (287.83 KiB) Skoðað 962 sinnum


Ryzen 7 5800X | ASRock B550M Steel Legend | Corsair 32GB (2x16) LPX 3200Mhz | RTX 3060ti | Seasonic Focus+ Gold | ATX Lancool II