Er að spá í kaupum á Bmw 3 línu (E90) 2006 módeli og er ekkert endilega viss hvort það sé bluetooth í bílnum fyrir síma og tónlist. Goggi frændi segir að þetta hafi ekki verið staðalbúnaður í þessum bílum. Ef það er ekki bluetooth í bílnum er þá hægt að láta græja svoleiðis í bílinn hérna á klakanum?
Ég er búinn að finna nokkur flott tæki t.d. þetta: https://avinusa.com/9-multimedia-naviga ... 2-e93.html
Þá væri ég semsagt að skipta original tækinu út. Hef bara ekkert vit á þessu enda rúm 20 ár síðan ég hef látið skipta út hljómtækjum í bíl

Er eitthvað verkstæði hérna á landi sem tekur svona að sér, hvort sem er að ég komi með tæki til þeirra og þeir setja í eða að þeir selji samskonar tæki og setji þau í?
Kv. Elvar