Hvar fæ ég spennubreyti?

Allt utan efnis
Skjámynd

Höfundur
mercury
Besserwisser
Póstar: 3357
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Hvar fæ ég spennubreyti?

Pósturaf mercury » Þri 19. Maí 2020 20:35

Sælir vaktarar.
Gerði þau mistök að panta mér rakvél frá US. Í fljótfærni minni spáði ég auðvitað ekkert í mögulegu rafmagnsveseni.
Fatta það svo auðvitað þegar ég sé tengilinn á vélinni og les þá á vélina 115vac 60hz 11w. Þekki allar þessar tölur og menn þurfa ekkert að fræða mig um það.... En fór í Elko og keypti þennan https://elko.is/power-converter-230-v-ac-110v
Stóð ekkert með hz-in á kassanum og keypti ég þetta í góðri trú um að vélin myndi virka. prufa að henda þessu í samband og vélin gefur frá sér hellings læti en virðist alveg kraftlaus.
Les þá á spennubreytinn 110v 50hz..
Svo já mig vantar spennubreyti sem er þá 110-120v 60hz. eftir talsvert google þá fynn ég þetta ekki neinstaðar á netinu hér heima ? hafa vaktarar einhverja hugmynd um hvar ég gæti fundið þetta. ???
Síðast breytt af mercury á Mið 20. Maí 2020 15:40, breytt samtals 1 sinni.



Skjámynd

Höfundur
mercury
Besserwisser
Póstar: 3357
Skráði sig: Fös 31. Júl 2009 16:15
Reputation: 64
Staða: Ótengdur

Re: Hvar fæ ég spennubreyti?

Pósturaf mercury » Mið 20. Maí 2020 15:40

engar hugmyndir?



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4953
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 866
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvar fæ ég spennubreyti?

Pósturaf jonsig » Mið 20. Maí 2020 15:44

Spennubreytar ehf í hafnarf. Eru með invertera og svona gums




Kristján Gerhard
Gúrú
Póstar: 522
Skráði sig: Mið 17. Maí 2006 20:27
Reputation: 38
Staða: Ótengdur

Re: Hvar fæ ég spennubreyti?

Pósturaf Kristján Gerhard » Mið 20. Maí 2020 16:20

mercury skrifaði:Sælir vaktarar.
Gerði þau mistök að panta mér rakvél frá US. Í fljótfærni minni spáði ég auðvitað ekkert í mögulegu rafmagnsveseni.
Fatta það svo auðvitað þegar ég sé tengilinn á vélinni og les þá á vélina 115vac 60hz 11w. Þekki allar þessar tölur og menn þurfa ekkert að fræða mig um það.... En fór í Elko og keypti þennan https://elko.is/power-converter-230-v-ac-110v
Stóð ekkert með hz-in á kassanum og keypti ég þetta í góðri trú um að vélin myndi virka. prufa að henda þessu í samband og vélin gefur frá sér hellings læti en virðist alveg kraftlaus.
Les þá á spennubreytinn 110v 50hz..
Svo já mig vantar spennubreyti sem er þá 110-120v 60hz. eftir talsvert google þá fynn ég þetta ekki neinstaðar á netinu hér heima ? hafa vaktarar einhverja hugmynd um hvar ég gæti fundið þetta. ???


Tíðnin er háð netinu, þú breytir því ekki svo glatt. Gæti bent á mögulegar lausnir en þær yrðu svo glóralausar að þær ná ekki nokkurri átt. Afskrifaðu apparatið.




Hizzman
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Hvar fæ ég spennubreyti?

Pósturaf Hizzman » Mið 20. Maí 2020 18:23

Gætir pantað 12V í 115V 60Hz breyti og notað rafgeymi. :D



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4953
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 866
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvar fæ ég spennubreyti?

Pósturaf jonsig » Mið 20. Maí 2020 19:25

Hizzman skrifaði:Gætir pantað 12V í 115V 60Hz breyti og notað rafgeymi. :D



Hann getur fengið mjög öfluga ólínulega spennubreyta á lítinn pening (12V). Annars eru til rafeindastýrðir áriðlar sem búa ekki til endilega hreina sínusbylgju sem ættu að virka í þetta gigg hjá honum og haft tíðnina rétta án þess að kaupa neitt af viti. Margir sem liggja á þannig ónotaðari græju.
Síðast breytt af jonsig á Mið 20. Maí 2020 19:26, breytt samtals 1 sinni.




arons4
vélbúnaðarpervert
Póstar: 938
Skráði sig: Mið 27. Apr 2011 20:40
Reputation: 126
Staða: Ótengdur

Re: Hvar fæ ég spennubreyti?

Pósturaf arons4 » Mið 20. Maí 2020 19:25

Hef séð þessu reddað um borð í skipi með 230V 60hz kerfi með ca 300þ kr marine smart UPSa frá apc, getur stillt bæði spennu og tíðni sem þeir gefa út. Efast samt um að þessi blessaða rakvél sé þess virði.



Skjámynd

rapport
Kóngur
Póstar: 7053
Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 13:07
Reputation: 1000
Staða: Tengdur

Re: Hvar fæ ég spennubreyti?

Pósturaf rapport » Mið 20. Maí 2020 20:35




Skjámynd

hagur
Besserwisser
Póstar: 3095
Skráði sig: Mið 17. Des 2003 16:11
Reputation: 443
Hafðu samband:
Staða: Tengdur

Re: Hvar fæ ég spennubreyti?

Pósturaf hagur » Mið 20. Maí 2020 22:41

rapport skrifaði:https://www.computer.is/is/product/spennubreytir-220v-110v-300w-fyrir-usa-raftaeki

https://www.computer.is/is/products/fyr ... 110-i-230v


Get ekki séð að þessir séu 110v 60Hz eins og OP þarf.




Hizzman
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Hvar fæ ég spennubreyti?

Pósturaf Hizzman » Mið 20. Maí 2020 23:15

jonsig skrifaði:
Hizzman skrifaði:Gætir pantað 12V í 115V 60Hz breyti og notað rafgeymi. :D



Hann getur fengið mjög öfluga ólínulega spennubreyta á lítinn pening (12V). Annars eru til rafeindastýrðir áriðlar sem búa ekki til endilega hreina sínusbylgju sem ættu að virka í þetta gigg hjá honum og haft tíðnina rétta án þess að kaupa neitt af viti. Margir sem liggja á þannig ónotaðari græju.


Líka mögulegt að nota tíðnigjafa, góðan hifi-magnara og svo venjulegan spenni til að hækka spennuna. \:D/



Skjámynd

jonsig
Skjákortaníðingur
Póstar: 4953
Skráði sig: Sun 06. Jan 2008 22:28
Reputation: 866
Staðsetning: Reykjavík
Staða: Ótengdur

Re: Hvar fæ ég spennubreyti?

Pósturaf jonsig » Mið 20. Maí 2020 23:26

Sniðug pæling fyrir DC mótor en hvernig ætlaru að búa til negatíva spennu fyrir ac mótorinn í rakvélinni? DC spennar venjulegir ,AC ekki svo algengir?
Síðast breytt af jonsig á Mið 20. Maí 2020 23:28, breytt samtals 1 sinni.




Hizzman
FanBoy
Póstar: 797
Skráði sig: Fös 22. Apr 2016 18:48
Reputation: 136
Staða: Ótengdur

Re: Hvar fæ ég spennubreyti?

Pósturaf Hizzman » Mið 20. Maí 2020 23:31

tíðnigjafinn gefur sínus 60Hz sem sveiflast td plús, mínus eitt volt.



Skjámynd

beggi702
Fiktari
Póstar: 96
Skráði sig: Mán 31. Maí 2010 01:31
Reputation: 9
Staða: Ótengdur

Re: Hvar fæ ég spennubreyti?

Pósturaf beggi702 » Fim 21. Maí 2020 17:06

Mæli með að þú kaupir þér bara aðra rakvél gerða fyrir 230V 50Hz. Að redda spennubreytir og tíðnibreytir á bara eftir að vera vesen og eflaust dýrara þegar uppi er staðið.